Fréttablaðið - 23.05.2009, Síða 62
34 23. maí 2009 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Í gær var dreift á fjölmiðla lagi,
Farðu í friði, af nýjum diski
Mannakorna, Von. Diskurinn
kemur út í næstu viku, 28.
maí og verður útgáfunni fagn-
að með tónleikum í Salnum
þá um kvöldið. Þetta mun vera
34. árið sem Mannakorn eru
lifandi en bandið hefur gengið
gegnum ýmsar breytingar en
þó verið fyrst og fremst farar-
tæki Magnúsar Eiríkssonar
þó að Pálmi Gunnarsson
hafi snemma sest í
framsætið hjá Magnúsi
sem keyrir þennan vagn
lífsgötuna. Að þessu
sinni skarta þeir félagar
gamalli samstarfskonu,
Ellen Kristjánsdóttur. Auk
þeirra þriggja koma fram
á disknum sem geymir níu lög: Þórir Úlfars-
son, Magnús Magnússon, Agnar Már Magn-
ússon, Ragnheiður
Helga Pálmadóttir,
Sigurgeir Sigmunds-
son, Roland Hartwell
og Sigurður Bjarki
Gunnarsson. Upptökur
fóru fram í haust og vetur í
hljóðverum Flís, Hljóðrita og
Furunni undir stjórn Pálma
og Þóris.
Er viðbúið að fornir og
nýir aðdáendur Manna-
korna bregði undir sig
betri fætinum og skjótist
eftir sendingunni og
margir fari í Salinn að sjá
bandið á sviði.
Sögur gefa út.
Nýr diskur frá Mannakornum
Á uppstigningardag hófst í Nor-
ræna húsinu hátíð þar sem listir,
lystir og ást eru hylltar með fjög-
urra daga festi. Hún er nú hálfnuð
en í dag og á morgun verða lista-
menn, ekki færri en tveir tugir,
áfram með aðstöðu í Norræna hús-
inu þar sem þeir munu vinna að
listsköpun á staðnum.
Þetta eru tónlistarmenn, rithöf-
undar, ljóðskáld, dansarar, mynd-
listarmenn og gjörningalistamenn.
Gestum gefst tækifæri til að upp-
lifa listina í sköpunarferli sínu og
um leið, með nærveru sinni, hafa
áhrif á það ferli. Með list&ást&list
vilja aðstandendur sýna að ýmsar
birtingarmyndir listar megi rekja
til einnar uppsprettu og segja:
„Markmiðið er ævinlega að gera
áhorfandann að þátttakanda í verk-
inu. Skreytingar, popptónlist og
afþreyingarbókmenntir gera ekki
þessa kröfu til áhorfandans, held-
ur ýta undir vellíðan og fullnægju.
Hins vegar krefst listin afskipta
áhorfandans, að hann verði virk-
ur þátttakandi í verkinu. Í list er
innihaldið og tjáskipti þungamiðja
verksins, umhverfið skiptir skreyt-
ingar, popptónlist og afþreyingar-
bókmenntir hins vegar öllu máli.“
Þessir tveir flokkar eru hins
vegar ekki alltaf andstæðir, enda
þarf list ekki endilega að sýna
skuggahliðar samfélagsins eða
manneskjunnar, andstætt fegurð
og jákvæðni, til þess að geta tal-
ist listaverk.
List&ást&list er ekki ætlað
að vera tækifæri áhorfenda til
að fylgjast með listamanninum
að verki, né listamannsins til að
fanga áhorfendur í hinu listræna
ferli sem einhver lærifaðir. Hér
verður reynt að skapa vettvang
þar sem tveir hópar hittast sem
jafningjar. Í hópnum sem stendur
að þessu stefnumóti eru kunn nöfn
hérlendra manna eins og Egils
Sæbjörnssonar og Einars Más
Guðmundssonar, Huldu Hákon,
Steingríms Eyfjörð og Söru Riel,
auk fjölda norrænna listamanna.
pbb@frettabladid.is
Listin og ástin ástunduð
LISTAHÁTIÐ Benedikt Erlingsson er kynnir á hátíðinni í Norræna húsinu.
> Ekki missa af …
síðustu sýningu á Dead-
head´s Lament í kvöld í
Hafnarfjarðarleikhúsinu
en þar má sjá nýútskrifaða
nemendur listdansdeildar
Listaháskólans í sérpöntuðu
verki frá hendi Tony Vezic.
Sýningin hefst kl. 20.
Ath kl. 17.00
Apaflasa kynnir vorútgáfu sína í
bókverkabúðinni Útúrdúr sem er
flutt í Nýlistasafnið við Laugaveg.
Bókverkið BISCAYNE BLVD eftir
Ófeig Sigurðsson og Magnús Árnason
verður þar kynnt með upplestri, en
það er helgað Geirlaugi Magnússyni
skáldi. BISCAYNE BLVD er ljóða-
bálkur í silíkoni, saminn undir áhrif-
um af mangó-uppboðum í Miami-
borg. Allir eru velkomnir.
Hess
Is More
(NYC/CPH/FREESTYLE DISCO JAZZ)
TÓNLEIKAR
Í NORRÆNA
HÚSINU
Í KVÖLD
KL. 21
BARINN OPNAR
KL. 20!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
9
-0
9
2
8
Nánari upplýsingar eru á www.bhs.is
Borgarholtsskóli við Mosaveg, sími 535 1700
Borgarholtsskóli
býður upp á nám með starfi
Síðdegisnám fyrir:
Leiðbeinendur í leikskóla
Skólaliða
Stuðningsfulltrúa
Félagsliða
Kennt verður virka daga kl. 1500–1740.
Innritun í síðdegisnám lýkur 12. júní
Dreifnám (fjarnám með staðbundnum lotum) fyrir:
Leiðbeinendur í leikskóla
Skólaliða
Stuðningsfulltrúa
Félagsliða
Félags- og tómstundanám NÝTT
Á lista- og fjölmiðlasviði er boðið upp á dreifnám í:
Bókasafnstækni
Margmiðlun
Innritun í dreifnám lýkur 12. júní
BHS