Fréttablaðið - 23.05.2009, Page 68

Fréttablaðið - 23.05.2009, Page 68
40 23. maí 2009 LAUGARDAGUR > REIÐUR COCKER Tónlistarmaðurinn Jarvis Cocker berst nú gegn því að skrifstofubygg- ing verði reist gegnt íbúð hans í Shoreditch-hverfinu í Lond- on. „Ég vil ekki að skrifstofu- fólk geti séð mig spranga um á náttfötunum. Bygg- ingin mun gnæfa yfir heim- ili fólks, en það er innrás í einkalíf þess, og húsið mun skyggja á sól- ina,“ segir hann. folk@frettabladid.is Söngkonan Jóhanna Guðrún, sem sló í gegn í Eurovision- keppninni, kemur fram á tón- leikum í Laugardalshöll 4. júní. Þar ætlar hún að flytja lög af plötu sinni Butterflies and Elvis í bland við þekktar söngperlur, þar á meðal Is it True? Með Jóhönnu leikur sjö manna hljómsveit undir stjórn Þóris Úlfarssonar og einnig er von á góðum gestum sem munu syngja með henni. Á tónleik- unum gefst fólki einstakt tæki- færi til að sjá Jóhönnu á sviði við bestu mögulegu aðstæður. Hennar bíða fjölmörg tæki- færi erlendis og því gæti orðið bið á að hún syngi hérlendis á næstunni. Miða- sala hefst 25. júní á Midi.is. Eingöngu verður selt í sæti og er miðaverð 3.900 og 4.500 krónur. Jóhanna í Höllinni JÓHANNA GUÐRÚN Syngur á tónleikum í Laugar- dalshöll 4. júní. Stjórn Félags íslenskra leikara hefur sent út yfir- lýsingu til félagsmanna þar sem fordæmt er að með- limir í félaginu hafi lekið efni af póstlista félagsins til Fréttablaðsins. Lögmaður segir fráleitt að álykta að fjölpóstur sé trúnaðarmál. „Stjórn FÍL lítur það mjög alvar- legum augum að einhver af okkar félagsmönnum hafi sent fjölda- póst á fjölmiðla og fordæmir slíkt athæfi. Stjórnin skorar á þann sem það gerði að gera grein fyrir þeim hvötum sem liggja þar að baki,“ segir í fjölpósti sem stjórn Félags íslenskra leikara hefur sent til félagsmanna. Yfirskrift póstsins er „Trúnaðarbrestur“. Yfirlýsingin kemur í kjölfar frétta sem Fréttablaðið hefur birt um bréf sem Edda Björgvins- dóttir leikkona hefur sent á þenn- an sama póstlista þar sem hún varar félagsmenn við „vafasöm- um prentmiðlum“ en Edda telur leikara þráfaldlega hafða að fífl- um með misvísandi fyrirsögnum. Málið tók snúning því Eddu þótti það þá trúnaðarbrot að skrifaðar væru fréttir sem byggðu á þessum fjöldapósti og nú tekur stjórn FÍL undir þau sjónarmið. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lög- maður, sem flutt hefur fjölda mála einmitt gegn fjölmiðlum, telur frá- leitt að leggja þann skilning í fyr- irbærið fjölpóst að þar sé um trún- aðarmál að ræða, hvað þá að sá sem kom fjöldapóstinum á fram- færi við fjölmiðla hafi gerst sekur um trúnaðarbrest. „Þarna er um félagsmann eða menn að ræða sem blöskrar hvernig umræðan er innan félagsins og telur það eiga erindi við almenning. Hann afhendir þessa tölvupósta, sem honum hafa verið sendir, þeir eru ekki stolnir,“ segir Vilhjálmur. Undir yfirlýsingu stjórnar er klásúla þar sem segir að tölvupóst- ur sé eingöngu ætlaður þeim sem tölvupósturinn er stílaður á og gæti innihaldið upplýsingar sem eru trúnaðarmál. „Hafir þú fyrir tilviljun, mistök eða án sérstakrar heimildar tekið við þessum tölvu- pósti og viðhengjum hans biðjum við þig að fara eftir 5. mgr. 47. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003 og gæta fyllsta trúnaðar og tilkynna okkur að þau hafi ranglega bor- ist þér.“ Vilhjálmur segir að þessi klausa hafi ekkert gildi í þessu máli. „Ef hægt væri að hengja „trúnaðarmál“ á allt sem skrifað er og sent í tölvupósti væri senni- lega engin fjölmiðlun í landinu.“ Vilhjálmur bætir við að þarna virðist gæta einhvers misskiln- ings er varðar hugtakið trúnað- ur. Hann hljóti að byggjast á sam- komulagi milli aðila um að halda trúnað þá hugsanlega með und- irskrift trúnaðarsamkomulags. „Tökum sem dæmi ef forseti ASÍ sendi póst á alla félagsmenn þar sem hann kallar forsætisráherra öllum illum nöfnum og vísaði svo í að þetta væri trúnaðarmál milli hans og félagsmanna þá hefur það ekkert gildi,“ segir Vilhjálmur og er afdráttarlaus. Randver Þorláksson er formað- ur stjórnar FÍL. „Það eina sem ég get sagt við þig er að þetta er trúnaðarpóstur. Og vil benda á að fjölmiðlalög – 47. grein þar.“ Með vísan í lögfræðiálit Vilhjálms um að sú klásúla hafi ekkert gildi í þessu samhengi segist Randver ekki löglærður maður. „Mín skoð- un er að svona trúnaðarpóstur eigi ekki að leka í fjölmiðla.“ Sé gengið út frá því áliti Vilhjálms að ekkert sé athugavert við að koma viðkom- andi pósti áfram má líta svo á að í yfirlýsingu stjórnar FÍL séu býsna alvarlegar ávirðingar á hendur þeim sem ákvað að koma póstinum áfram svo sem annarlegar hvatir og trúnaðarbrestur. Randver, sem var á leið á fund, vildi leita til lög- manns síns áður en hann svaraði þeirri spurningu en ekki tókst að koma því við fyrir dagslok í gær. jakob@frettablaðið.is Lögmaður undrast yfirlýsingu leikara HINN MEINTI SVIKARI, RANDVER, EDDA OG VIL- HJÁLMUR Stjórn FÍL tekur undir sjónarmið Eddu en ef ekki er neitt við málið að athuga snýr það þannig að stjórn FÍL hefur í frammi alvarlegar ávirðingar við þann sem kom póstinum áfram. Danska leikkonan Charlotte Munk er kannski þekktust hér á landi fyrir leik sinn í sjón- varpsþáttunum Anna Pihl. En hún sýnir á sér nýja hlið í Nor- ræna húsinu þegar hún þenur raddböndin með hljómsveit- inni Hess is More í Norræna húsinu í kvöld. Hljómsveit- in stefnir saman tónlistar- stefnum úr öllum áttum en í lögum hennar má meðal ann- ars greina djass og raftón- list. Tónleikar Hess is More eru hluti af dagskrá Nor- ræna hússins á Listahátíð Reykjavíkur sem ber heit- ið List&Ást&List. Charlotte Munk er ein af þekktustu leik- konum Dana en þættirnir um lögreglukonuna Önnu hafa slegið í gegn hér á Íslandi. Charlotte þykir jafnframt nokkuð lunkin söngkona þótt ekki hafi þeir hæfileikar bor- ist hingað upp á Ísland. En nú gefst sem sagt íslenskum aðdáendum Önnu Pihl tæki- færi til að sjá hana í nýju ljósi, fjarri bláum ljósum og sírenum lögreglunnar í Kaup- mannahöfn. Anna Pihl syngur í Norræna húsinu STUÐBAND Hess is More er mikið stuðband og á vafalítið eftir að fá einhverja gesti til að dilla sér í Norræna húsinu í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sean Penn hefur beðið dómara í Kaliforníu um að ógilda beiðni sína um skilnað frá eiginkonu sinni, Robin Wright Penn, sem hann lagði fram í síðasta mánuði. Vinir leikarans segja að ákvörðun hans um að sækja um skilnað hafi verið tekin eftir rifrildi þeirra í milli. „Þetta voru hrokafull mis- tök,“ segir niðurlútur Penn. Penn hættur við SÁTT Sean Penn er hættur við að skilja við eiginkonu sína, Robin Wright Penn. www.jonogoskar.is Laugavegur 61 / Smáralind / Kringlan P IP A R • S ÍA • 9 0 8 7 1 Stúdentastjarnan og -rósin 2009 fallegar stúdentsgjafir sem fást hjá okkur 14 kt. gull Stjarnan kr.10.700 Rósin kr.11.800

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.