Fréttablaðið - 18.07.2009, Síða 4

Fréttablaðið - 18.07.2009, Síða 4
4 18. júlí 2009 LAUGARDAGUR LÖGREGLUMÁL Tveir ungir menn réðust á öryggisvörð í verslun 10- 11 í Engihjalla í fyrrinótt. Hann hafði staðið piltana að þjófnaði í búðinni og ætlaði að hindra för þeirra. Þeir brugðust við með því að slá hann í jörðina og sparka í höfuð hans. Piltarnir, sem báðir eru innan við tvítugt að sögn varðstjóra lög- reglu, komust síðan undan á bíl. Lögreglan leitaði þeirra í gær, en númerið á bíl þeirra sást á upp- tökum úr öryggismyndavél og taldi lögregla sig því vita hverja um ræddi. Öryggisvörðurinn leit- aði aðhlynningar á slysadeild en var ekki alvarlega meiddur. - sh Tveggja ungra manna leitað: Réðust á öryggis vörð 10-11 Í ENGIHJALLA Piltarnir höfðu stungið á sig vörum þegar öryggisvörð- urinn hafði afskipti af þeim. FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM STJÓRNMÁL Við upphaf hins sögu- lega þingfundar á fimmtudag þegar greidd voru atkvæði um aðildarumsókn að Evrópusam- bandinu upplýsti þingforseti að Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, hefði tilkynnt forföll og kall- að til varamann í sinn stað. „Ástæðan er sú að ég er að fara á sjó,“ sagði Björn Valur í samtali við Fréttablaðið sem fyrir vikið varð af atkvæðagreiðslunum og tekur ekki þátt í þingstörfunum næstu tvær vikurnar. „Það var löngu ákveðið að ég færi út á þess- um degi og þá reiknaði ég með að þetta ESB-mál yrði löngu búið og reyndar Icesave-málið líka.“ Bjarkey Gunnarsdóttir, vara- maður Björns Vals, kaus gegn breytingartillögum stjórnarand- stæðinga og með tillögu ríkis- stjórnarinnar. Björn Valur segir að engu hefði breytt þó hann hefði verið við atkvæðagreiðsl- una; hann hefði kosið eins og Bjarkey. Björn Valur hefur um árabil verið skipstjóri á Kleifarberginu frá Ólafsfirði en fékk tímabund- ið leyfi frá þeim störfum eftir að hann var kjörinn á þing í apríl. „Þetta verður síðasta sjóferðin í bili. Ég geri svo upp hug minn um hvort ég hætti endanlega þegar þar að kemur.“ Kleifarbergið var við úthafskarfaveiðar á Reykja- neshrygg í síðustu sjóferð en skipstjórinn átti allt eins von á að fara á bolfiskveiðar að þessu sinni. - bþs Björn Valur Gíslason tók sé leyfi frá þingstörfum á fimmtudag til að fara á sjóinn: Hefði kosið eins og varamaðurinn BJÖRN VALUR GÍSLASON Er kominn í frí frá þingstörfunum og heldur til veiða í dag. JAPAN, AP Lögreglan í Japan rann- sakar nú dauða tíu eldri borgara, sem fundust látnir í gær í fjalls- hlíðum í Hokkaido, norðan til í Japan. Átta þeirra voru saman í átján manna hópi sem hélt upp á fjallið Tomuraushi á vegum japanskrar ferðaskrifstofu, en einn var að klífa sama fjall einn síns liðs. Sá tíundi lést á öðru fjalli á sömu slóðum. Lögreglan er að kanna hvort skipuleggjendur ferðanna hafi gerst sekir um vanrækslu. Talið er að allt þetta fólk hafi látist úr ofkælingu. - gb Tíu eldri borgarar í Japan: Fundust látnir á fjöllum ÍRAN, AP Akbar Hashemi Rafsanj- ani, fyrrverandi forseti Írans, gagnrýndi stjórn landsins harð- lega í predikun á bænadegi mús- lima í Teheran í gær. Hann sagði það mistök að hlusta ekki á gagn- rýni almennings út af úrslitum forsetakosninga nýverið. Tugir þúsunda stjórnarand- stæðinga komu saman í tilefni af bænahaldinu og mótmæltu stjórn- inni af miklum krafti. Mahmoud Ahmadinejad forseti var hvattur til að segja af sér. Lögregla beitti táragasi á hluta mótmælendahópsins. Tugir manna voru handteknir. Rafsanjani sagði öllum ljóst að vafi léki á úrslitum kosning- anna: „Stór hópur af skynsömu fólki segist hafa efasemdir. Við verðum að grípa til aðgerða til að útrýma þessum efa.“ Ræðan var ótvíræð ábending til Ali Khameini, æðsta leiðtoga landsins, sem hefur lýst því yfir að sigur Ahmadinejads í kosning- unum sé hafinn yfir allan vafa. Rafsanjani segir að deilurn- ar hafi valdið klofningi í klerka- stéttinni, sem stjórnar landinu, og sagði hættu á stjórnarkreppu. Mir Hossein Mousavi, leið- togi stjórnarandstöðunnar, sem um tíma var talinn hafa sigrað í kosningunum, sat í fremstu röð í föstudagsbænahaldinu. Þetta er í fyrsta sinn síðan ólgan hófst sem hann tekur þátt í bænahaldinu. Rafsanjani hefur reglulega flutt predikanir á bænadegi múslima, en hefur ekki látið sjá sig í nokkr- ar vikur. Hann þótti hófsamur forseti sem vildi bæta samskipt- in við Vesturlönd. Hann er harður andstæðingur Ahmadinejads og talinn hliðhollur Mousaveni. Dótt- ir hans og fjórir aðrir ættingjar hans voru handtekin eftir að hafa lýst opinberlega yfir stuðningi við Mousaveni, en þau voru fljótlega látin laus á ný. Kosningar voru haldnar í júní og þótti Mousaveni nokkuð líkleg- ur til að vinna sigur fyrir kosn- ingarnar. Stuðningsmenn hans hafa ekki sætt sig við að opin- ber úrslit kosninganna, sem voru Ahmadinejad í vil, og segja brögð í tafli. Fyrstu dagana eftir kosning- arnar streymdu stuðningsmenn Mousaveni út á götur höfuðborg- arinnar, en þau mótmæli voru barin niður af lögreglu og her. Hundruð manna voru handtekin og að minnsta kosti tuttugu létu lífið. gudsteinn@frettabladid.is Forsetinn hvattur til að víkja úr embætti Tugir þúsunda stjórnarandstæðinga krefjast enn afsagnar Mahmouds Ahmad- inejad Íransforseta. Lögregla beitti táragasi og handtók tugi manna. Rafsanjani segir deilurnar hafa valdið klofningi klerkastéttarinnar, sem stjórnar Íran. MÓTMÆLI Í TEHERAN Stuðningsfólk Mousaveni hefur engan veginn sætt sig við hin opinberu úrslit kosninganna í síðasta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 27° 19° 16° 22° 23° 19° 18° 17° 24° 21° 27° 23° 29° 33° 21° 21° 27° 23° 15 14 13 14 14 10 10 10 14 12 11 3 1 1 2 3 3 6 4 2 2 2 Á MORGUN 8-13 m/s við SA-ströndina og sumstaðar NV-til MÁNUDAGUR 5-13 m/s stífastur SA-lands 19 14 14 14 20 20 20 20 16 10 12 12 20 GÓÐVIÐRASÖM HELGI Enda þótt einhverjir dropar kunni að falla í formi skúra sunnan- lands um tíma í dag verður veður á land- inu gott. Vindur verð- ur hægur, ágætlega milt á landinu og bjart verður með köfl um, hálfskýjað eða létt- skýjað en helst er að skýjað verði sunnan- lands. Það hlýnar nokkuð vestanlands á sunnudag. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur Stór hópur af skynsömu fólki segist hafa efa- semdir. Við verðum að grípa til aðgerða til að útrýma þessum efa. AKBAR HASHEMI RAFASANJANI FYRRVERANDI FORSETI ÍRANS STJÓRNMÁL Birta á fjárframlög til stjórnmálaflokka lengra aftur í tímann en lög gera ráð fyrir í dag. Þetta var samþykkt af öllum formönn- um stjórnmála- flokkanna. Sveitarstjórnar kosningarnar árið 2006 og alþingis- kosningarnar árið 2007 verða birtar. Einnig er þeim tilmælum beint til þeirra sem tóku þátt í prófkjörum á þessu tímabili að veita upplýsing- ar um fjárframlög til sín. „Við töldum að ekki væri hægt að neyða þau til þess að birta upp- lýsingarnar,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Hann ítrekar þó að þetta frum- varp hafi lítil áhrif á vinstri græn þar sem þau hafi verið með opin- bert bókhald um árabil. - vsp Fjárframlög birt lengra aftur: Ná til kosninga 2006 og 2007 STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON LÖGREGLA Tvær íslenskar stúlkur, 18 og 19 ára gamlar, voru hand- teknar í Northampton í Englandi á fimmtudag eftir fjögurra daga alþjóðaleit. Faðir annarrar þeirra hafði hringt í lögregluna á Eng- landi og sagt að þær væru líklega á þessu svæði. Stelpurnar eru grunaðar um stórfellda glæpi, til dæmis inn- brot, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Um er að ræða góðkunningja lögreglunnar á Íslandi, samkvæmt heimildum. Nú sem stendur eru þær í gæsluvarðhaldi, en tveir lög- reglumenn komu til Íslands til að safna upplýsingum um þær. - vsp Íslenskar stúlkur handteknar: Eru góðkunnar lögreglunni STJÓRNMÁL Steypa á saman héraðsdómstólunum átta og starf- rækja einn héraðsdóm fyrir allt landið, samkvæmt frumvarpi dómsmálaráðherra. Skal dómur- inn hafa starfsstöðvar á ýmsum stöðum á landinu þar sem dómar- ar hafi fastan vinnustað. Við sameiningu embættanna á að nást sparnaður í rekstri enda færist yfirstjórn og stjórnsýsla á einn stað. Ragna Árnadóttir dómsmála- ráðherra kynnti frumvarpið á ríkisstjórnarfundi í gærmorg- un. Fer það fyrir þingflokka stjórnarflokkanna eftir helgi og verður að líkindum lagt fram á þingi í haust. - bþs Breyta á lögum um dómstóla: Héraðsdómum fækkað í einn GENGIÐ 17.07.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 231,9364 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 127,21 127,81 207,28 208,28 179,26 180,26 24,074 24,214 19,888 20,006 16,251 16,347 1,3549 1,3629 197,46 198,64 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.