Fréttablaðið - 18.07.2009, Page 6

Fréttablaðið - 18.07.2009, Page 6
6 18. júlí 2009 LAUGARDAGUR fyrir alla sem www.gottimatinn.is toppa allt! – Þessi ostur er rifinn á tæknilegan hátt, í vél. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 9 -1 0 9 7 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is EFNAHAGSMÁL „Það er verið að tak- ast á um ákveðna liði og þetta mun dragast um einhverja daga alla- vega,“ segir Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans. Hann segir óljóst hvenær endurfjármögnunarferli Landsbankans muni ljúka og það muni væntanlega dragast eitt- hvað. Í yfirlýsingu frá fjármálaráðu- neytinu í gær kom fram að ráð- gert væri að gera grein fyrir nið- urstöðum samningaviðræðna á mánudag. Páll segir að gert verði ákveð- ið stöðumat á mánudag en hann gerir ekki ráð fyrir því að ferlinu muni ljúka fyrr en seinni part næstu viku. Páll segir að þetta sé gríðarlega stórt og mikið mál og það hafi tekið aðeins meiri tíma en menn hafi upphaflega gefið sér. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins stendur það einnig tæpt að samningaviðræðum ljúki á mánudag á milli kröfuhafa og skilanefnda Kaupþings og Glitnis líkt og stefnt var að. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra segir það enn áætl- að að ljúka viðræðunum á mánu- dag og ekki hafi verið ákveðið að fresta þeim að svo stöddu. Hann segir að stefnt sé að því að kynna málið fyrir nefndum og öðrum aðilum fyrir hádegi á mánudag. - bþa Ólíklegt að endurskipulagningu Landsbankans ljúki á mánudag: Endurskipulagning tefst UPPLÝSINGAFULLTRÚI LANDSBANKANS Páll Benediktsson segir endurskipulagn- ingu Landsbankans viðamikið verkefni og það hafi tekið lengri tíma en upphaf- lega var gert ráð fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT DÓMSMÁL Þrír Litháar, tveir karl- menn og ein kona, hafa verið ákærðir fyrir hrottalega líkams- árás gegn samlanda sínum í húsi við Grettisgötu í byrjun júní. Einn maður, 43 ára að aldri, er ákærður fyrir að eiga stærstan þátt í árásinni. Honum er gefið að sök að hafa stofnað lífi fórnar- lambsins í háska með því að berja það linnulítið frá kvöldi 3. júní og alla aðfaranótt 4. júní. Þoland- inn missti meðvitund, hlaut stór glóðaraugu með miklum bólgum, áverka á tannholdi og tönnum, heilablæðingu, heilabjúg og að öllum líkindum höfuðkúpubrot. Hin tvö, 25 maður og 26 ára kona, eru ákærð fyrir ann- ars vegar að sparka einu sinni í fórnar-lambið og hins vegar að slá það einu sinni. Þá eru þau ákærð fyrir brot gegn lífi og líkama með því að láta fyrir farast að koma manninum til hjálpar alla nótt- ina. Þau hringdu ekki á sjúkrabíl fyrr en utanaðkomandi aðili sem sá fórnarlambið bað um það eftir hádegi á fimmtudeginum. Þolandinn krefst tveggja millj- óna króna í miskabætur frá þeim ákærðu. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Sá sem harðast gekk fram í árásinni er jafnframt ákærður fyrir að hafa stolið áfengisflösku á Eiðistorgi í desember. - sh Tveir karlar og kona frá Litháen ákærð fyrir að stofna lífi samlanda síns í hættu: Ákærð fyrir hrottalega árás GRETTISGATA 43 Ofbeldið átti sér stað í þessu húsi við Grettisgötu. FRÉTTABLAÐIÐ / ARNÞÓR STJÓRNSÝSLA Skynsamlegt er að sameina Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og embætti fjögurra sérstakra saksókn- ara, að mati Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra. „Efnahags- brotadeildin yrði við það færð frá ríkislögreglustjóra þar sem embætti sérstaks saksóknara er sjálfstætt og ekki hægt að hafa það undir ríkislögreglustjóra.“ Gert er ráð fyrir því í lögum að ráðherra geti lagt til að sérstak- ur saksóknari verði sameinaður öðrum lögregluembættum. „Ég held að það komi til umfjöll- unar núna hvort það sé ekki ein- mitt hentugt að sameina þessi embætti, eða að minnsta kosti að þau starfi mjög nálægt hvort öðru, til þess að nýta þá sérþekk- ingu sem er fyrir hendi,“ segir Ragna en önnur hugmynd er uppi um að embættin starfi hlið við hlið í sama húsnæði. Ólafur Þór Hauksson, sérstak- ur saksóknari, segir mörg rök hníga að því að þetta verði gert. „Ég held að það sé æskilegt að það séu lagðir saman kraftar á þessu sviði.“ Skipa á þrjá sérstaka sak- sóknara við hlið þess sem nú er og setja á ríkissaksóknara yfir málaflokknum um bankahrun- ið, svipað og tíðkast þegar ríkis- saksóknari lýsir sig vanhæfan í einstökum málum. Þetta kemur fram í nefndaráliti allsherjar- nefndar síðan á fimmtudag. Til- laga dómsmálaráðherra var að setja sérstakan ríkissaksóknara yfir málaflokknum og stofna þar með nýtt embætti. „Það var einfaldara að gera þetta svona en þetta er auðvitað bara útfærsluatriði,“ segir Stein- unn Valdís Óskarsdóttir, formað- ur allsherjarnefndar. Hún segir að með þessu sé gengið að þeim tillögum sem Eva Joly lagði fram. Gerir hún ráð fyrir að mæla fyrir álitinu eftir helgi og þetta verði að lögum þá en allir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálitið. „Því ber að fagna að fjölg- að verður um þrjá saksóknara hjá embætti sérstaks saksókn- ara. Með því er verið að styrkja ákæruvaldið í landinu,“ segir Val- týr Sigurðsson ríkissaksóknari. Ekki liggja enn fyrir áætlanir um fjárframlög til sérstaks sak- sóknara. „Áætlanir frá sérstökum saksóknara og samkvæmt tillög- um Evu Joly eru nálægt 500 millj- ónum á ári,“ segir Ragna sem telur að auka þurfi fjárveitinguna frá því sem nú er. Til samanburð- ar má geta þess að embætti ríkis- saksóknara er með um 126 millj- ónir. vidirp@frettabladid.is stigur@frettabladid.is Efnahagsbrotadeild verði færð frá RLS Dómsmálaráðherra telur skynsamlegt að sameina Efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra og embætti fjögurra sérstakra saksóknara í eitt embætti. Sérstakir saksóknarar fá um 75 prósentum hærri fjárveitingu en embætti ríkissaksóknara. Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gærmorgun að veita 100 milljóna króna aukaframlag til embættis sérstaks saksóknara. Það var Eva Joly sem fór fram á það að viðbótarfjármagnið fengist. Fjármununum verður varið til að greiða fyrir aðstoð erlendra sérfræðinga sem ætla að rannsaka bókhaldsfærslur bankanna og gögn á bak við þær. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra lýsir rannsókninni sem kortlagningu og viðamikilli bakgrunnsrannsókn. „Þarna er verið að sýna í verki viljann til þess að styrkja embættið og standa fast að baki þessari rannsókn,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. - sh 100 MILLJÓNIR Í AÐ SKOÐA BÓKHALD EVA JOLY OG RAGNA Ef farið verður að kröfum Evu mun fjárveiting til sérstaks saksóknara verða um 500 milljónir, 75 prósent meira en til ríkissaksóknara. STJÓRNSÝSLA Nefnd um hælisleit- endur sem dómsmálaráðherra skipaði síðasta vor hefur athuga- semdir og tillögur í 22 liðum um hvað betur megi fara í afgreiðslu umsókna um hæli. Nefndin telur til dæmis að umsóknir um hæli taki alltof langan tíma. Einnig telur hún að, þrátt fyrir ákvæði Dyflinarsamningsins um endur- sendingu hælisleitenda, skuli skoða hvert tilvik fyrir sig. Legg- ur hún til sérkafla í útlendinga- lögum og að lögum verði breytt þannig að hælisleitendum verði ekki vísað úr landi fyrr en að liðnum 15 daga kærufresti, nema ríkar ástæður réttlæti það. - vsp 22 tillögur um hælisleitendur: Umsóknirnar dragast úr hófi KJÖRKASSINN Ertu ánægð(ur) með að ganga til aðildarviðræðna við ESB? Já 49,3% Nei 50,7% SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefði átt að setja fyrirvara um yfirráð yfir auðlindunum í þingsályktun um ESB? Segðu skoðun þína á visir.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.