Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.07.2009, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 18.07.2009, Qupperneq 35
Ferðamannastrætó ekur nú í fyrsta sinn um götur höfuðborgar Norðurlands. Þetta er búið að vera á teikniborðinu mjög lengi,“ segir Hulda Sif Hermannsdóttir, verkefnisstjóri viðburða- og menningarmála Akureyrarstofu, um verkefnið City Bus Sightseeing. Í júlí og ágúst býðst ferðalöngum á Akureyri sá val- kostur að kynnast bænum með því að stíga um borð í City Bus Sightseeing. Það er strætisvagn sem keyrir hring um bæinn frá klukkan 9 til 13 með viðkomu á alls tólf stöðum og tekur hver hringur 45 mínútur. „Fyrsta ferðin var farin á miðvikudaginn og vonir standa til að þessar strætóferðir verði í boði næstu sumur,“ segir Hulda Sif en markhópurinn er fyrst og fremst farþegar skemmtiferðaskipa. „Við vildum bjóða þeim sem ekki fara í rútuferð í Mývatnssveitina upp á þennan kost enda eru ferðalangar farþegaskipanna oft á þeim aldri að þeir eiga ekki auðvelt með að ganga langt,“ útskýrir hún. Ástæðuna fyrir því að ekki hefur verið farið af stað með slíkt verkefni fyrr segir Hulda Sif vera kostnaðinn sem er nokkur. „Við náðum hins vegar samningum við Vinnumálastofnun sem er með sérstakt átaksverkefni svo hún borgar hluta launakostnaðar,“ segir Hulda. Ferðin með City Bus Sightseeing kostar 500 krónur eða 3 evrur og geta ferðalangar stigið út á einum við- komustað og gengið um borð annars staðar og gildir miðinn í einn dag. - sg ● LITSKRÚÐUGAR HEYRÚLLUR Í HAGA Hátíðin Kátt í Kjós verður haldin um helgina. Þar verð- ur meðal annars staðið fyrir fyrsta Íslandsmótinu í hey- rúlluskreytingum. Mótið verður haldið á Laxárnes- túninu neðan við Félagsgarð í Kjós, milli klukkan 12 og 16.30 í dag. Þar gefst áhugasömum tækifæri til að skreyta plastaðar heyrúllur með frjálsri aðferð. Hver þátttakandi skreytir eina rúllu eftir eigin höfði. Máln- ingarsprey stendur til boða en einnig getur fólk komið með sína eigin liti eða annað efni til skreytingar. Skrán- ing í keppnina er á staðnum. Keppnin er haldin í tengslum við há- tíðina Kátt í Kjós en þar verður einnig margt annað á boðstólum. Sveitamarkaður verður í Fé- lagsgarði. Að Neðra-Hálsi verður boðið upp á fræðslu um lífrænan landbúnað og gestir fá að bragða á fullunnum lífrænum mjólkur- afurðum. Skólahúsið í Ásgarði verður opið frá 15 til 19 og hægt verður að gæða sér á kræsingum í Kaffi Kjós. Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni www.kjos.is. - sg V eitingastaðurinn Saffran hefur getið sér gott orð fyrir hollan og framandi mat. Færri vita að þar er líka boðið upp á fjölda hollra drykkja, ávaxta- og grænmetissafa og boost, sem til stendur að fjölga vegna auk- innar eftirspurnar. „Upphaflega voru drykkirnir hugsað- ir sem viðbót við hollan bita, en einir og sér eru þeir auðvitað góð máltíð, uppfull af vít- amínum, sem fólki finnst gott að kippa með sér,“ segir Dóra Eyland, starfsmaður hjá Saf- fran, og bætir við að aðeins ferskt hráefni sé notað í drykkina: gulrætur, epli, engifer, ban- anar, mynta, lime, ber og fleira. Í boostið fer að auki skyr, aðeins hreint þar sem engin aukaefni eru sett út í. Heitin Sunnanvindur og Sólsskinssafi gefa sannarlega fyrirheit um eitthvað ljúft og gott og kalla fram í hugan- um myndir af suðrænum slóðum, sem er við- eigandi í veðurblíðunni sem ríkt hefur undan- farna daga. Beðin um að mæla með einum bragðgóð- um og svalandi í hitanum, leggur Dóra til að menn búi sér til ávaxtaboost, sem vel gæti endað á nýja matseðlinum. „Hann er mjög einfaldur og góður, algjör vítamínbomba,“ segir hún um drykkinn, sem starfsmennirnir kalla Sumarhamingjuboost. „Hann saman- stendur einfaldlega af jarðarberjum, ananas, appelsínu, hreinu skyri, ananassafa og svo lime, sem gerir hann extra góðan. Nú og svo þarf auðvitað að setja slatta af klaka út í til að hafa hann vel kældan.“ - rve Góð viðbót við hollan bita ● Starfsmenn veitingastaðarins Saffran luma á nokkrum uppskriftum að góðum og nær- ingarríkum drykkjum. Þeir mæla sérstaklega með Sumarhamingjuboosti í mesta hitanum. Ferðamaður stígur um borð í City Bus á Akureyri. Heyrúllur sem bíða þess að verða skreyttar í öllum regnbogans litum. MYND/ÚR EINKASAFNI Ferðamannastrætó ekur um Akureyri Sumarhamingjuboost Fyrir einn 1 msk. hreint skyr 1 msk. jarðarber 1 msk. ananas 1/2 lime 1/2 appelsína Skvetta af ananassafa Botnfylli af klökum Setjið í blandara og blandið vel saman. Dóra Eyland og Arnþór Hupfeldt hjá Saffran með drykkinn góða. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2009 heimili&hönnun ● 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.