Fréttablaðið - 18.07.2009, Page 48
24 18. júlí 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
> Lið 11. umferðar Pepsi-deildar karla
Eftirtaldir leikmenn eru í liði umferðarinnar hjá Frétta-
blaðinu fyrir 11. umferð Pepsi-deildar karla.
Markvörður: Hrafn Davíðsson (Fjölni),
Varnarmenn: Atli Sveinn Þórarinsson (Val),
Kári Ársælsson (Breiðabliki), Sverrir
Garðarsson (FH), Miðjumenn: Finn-
ur Orri Margeirsson (Breiðabliki),
Ajay Smith (ÍBV), Baldur Sigurðs-
son (KR), Matthías Vilhjálmsson
(FH), Framherjar: Atli Viðar
Björnsson (FH), Haukur Ingi
Guðnason (Keflavík), Hjálm-
ar Þórarinsson (Fram).
Framherjinn Atli Viðar Björnsson hjá Íslandsmeisturum FH hefur
verið sjóðandi heitur í allt sumar og er markahæsti leikmaður Pepsi-
deildarinnar með 9 mörk í 12 leikjum. Atli Viðar átti frábæran leik í
3-2 sigri FH gegn Fylki á Kaplakrikavelli á dögunum
og skoraði tvö fyrstu mörk FH í leiknum
en Hafnfirðingar þurftu að hafa mikið
fyrir sigrinum enda spiluðu þeir manni
færri síðasta hálftímann eftir að fjórir leik-
menn liðsins voru farnir meiddir af velli.
„Þetta var verulega góður sigur hjá okkur og mikill
karakter sem við sýndum með því að landa sigri úr því
sem komið var. Við vorum þarna manni færri stóran hluta
af seinni hálfleik og á móti jafn spræku liði og Fylki sem
mætti í Krikann og spilaði góðan leik. Við þurfum
bara að halda okkar striki og halda áfram að vinna
leikina. En ég er náttúrulega viss um að hin liðin
í deildinni ætla að gera okkur eins erfitt fyrir og
mögulegt er,“ segir Dalvíkingurinn Atli Viðar.
Þrátt fyrir mikla yfirburði í Pepsi-deildinni í
sumar fengu FH-ingar 0-4 skell gegn Aktobe frá Kasakstan
í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn og til
að bæta gráu ofan á svart meiddist Atli Viðar í leiknum. Atli
Viðar segir þó meiðslin ekki jafn alvarleg og haldið var í
fyrstu og stefnir á að vera klár í leikinn gegn Breiðabliki í
lok mánaðarins.
„Við vorum náttúrulega bara sorglega lélegir á móti
Aktobe og óneitanlega súrt að það hafi hitt þannig á
að við tókum út lélegan leik á móti þessu liði og í
þessari keppni. Við erum búnir að setjast niður
og ræða saman um leikinn og framhaldið og
það voru allir sammála um að láta tapið gegn
Aktobe ekki slá sig út af laginu. Þessi Evrópu-
keppni er í raun og vera frá í bili og við gerum okkur
grein fyrir því að möguleikar okkar á að komast áfram
eru ekki miklir. Næsti leikur hér heima er gegn Keflavík og við
þurfum að snúa bökum saman og klára þetta eins og menn
í Pepsi-deildinni og vinna titilinn aftur. Þá fáum við líka aftur
möguleika í forkeppni Meistaradeildarinnar að ári.“
ATLI VIÐAR BJÖRNSSON HJÁ FH: ER LEIKMAÐUR 11. UMFERÐAR PEPSI-DEILDAR KARLA HJÁ FRÉTTABLAÐINU
Látum tapið gegn Aktobe ekki slá okkur út af laginu
FÓTBOLTI Nokkuð hefur verið um
hræringar á leikmannamark-
aðnum hér á landi síðan félaga-
skiptaglugginn var opnaður
á miðvikudag en hann verður
opinn til mánaðamóta. Stærstu
tíðindin eru klárlega koma Arn-
ars og Bjarka Gunnlaugssonar til
Valsmanna eftir að þeir bræður
hættu sem spilandi þjálfarar ÍA
í 1. deildinni.
Arnar var formlega kynntur
sem nýr leikmaður Vals í gær
en líklega verður gengið frá
komu Bjarka eftir helgi. „Ég bað
um aðeins lengri frest því ég vill
fullvissa mig um að ég sé í fínu
standi. Ég ætla í skoðun og
ef hún gengur vel þá verð-
ur þetta orðið klárt á þriðju-
dag eða miðvikudag,” sagði
Bjarki í gær.
KR hefur lánað sókn-
armanninn Guðmund
Pétursson út tímabilið
í Breiðablik en botn-
lið Þróttar hafði
áhuga á honum.
Þróttur hefur
hinsvegar tryggt
sér þjónustu Sam
Malsom út sum-
arið en Mal-
som er enskur
sóknarmað-
ur. Hann er á 21. aldursári og
kemur frá B36 í Færeyjum þar
sem hann hefur leikið lykilhlut-
verk. Þróttarar hafa misst Hjört
Hjartarson sem er kominn í Sel-
foss, topplið 1. deildarinnar.
Óli Stefán Flóventsson leikur
sinn fyrsta leik fyrir Grindavík
annað kvöld. Norskur sóknar-
maður, Tor Erik Moen, kom til
landsins á vegum Óla og hefur
æft með liðinu undanfarna
daga. Ingvar Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Grindavíkur, segir
að leikmaðurinn hafi staðið sig
vel og reynt verði að ná samn-
ingum við hann.
Þá eru Fjölnismenn einn-
ig að leita að styrkingu
fyrir sitt lið. Þeir hafa
þegar fengið Andra Stein
Birgisson sem er kominn
heim frá norska neðri
deildarliðinu Asker
en láta þar ekki
staðar numið og
hyggjast styrkja
sig frekar. - egm
Félagaskiptaglugginn opnaður á miðvikudag:
Arnar mættur og
Bjarki á leiðinni
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið hefur endurskrifað íslenska
knattspyrnusögu með því að kom-
ast fyrst A-landsliða inn á stórmót
en liðið hefur einnig tekið önnur
minni söguleg skref undir stjórn
Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar
og eitt slíkt skref til viðbótar var
tekið í Englandi í gær.
„Við munum halda áfram að
reyna að bæta okkur pínulítið með
hverjum leik og vonandi toppum
við síðan í lokakeppninni,“ sagði
Sigurður Ragnar Eyjólfsson lands-
liðsþjálfari.
Síðan Sigurður Ragnar tók við
árið 2007 hafa stelpurnar okkar
unnið Kína, Frakkland, Noreg og
England í fyrsta sinn eftir að hafa
verið án sigurs í 18 leikjum þar á
undan á móti þessum þjóðum.
„Það ætti að hjálpa sjálfstrausti
leikmanna að vinna þessar þjóðir í
fyrsta sinn því ef manni hefur tek-
ist eitthvað áður þá ætti manni að
geta tekist það aftur. Það er allt-
af erfiðast að gera hlutina í fyrsta
skiptið. Þegar maður hefur stig-
ið skrefið og náð árangri þá ætti
maður að hafa meiri trú á því að
ná árangri aftur,“ segir Sigurður
Ragnar.
„Hver sigur á móti stórþjóð
hefur hjálpað liðinu að bæta sig
enn frekar. Ég minni þær oft á það
að við höfum náð góðum árangi og
af hverju ættum við ekki að geta
það í lokakeppni sem dæmi?“
Það fækkar því óðum þeim
knattspyrnuþjóðum í heiminum
sem hafa ekki þurft að sætta sig
við tap á móti stelpunum okkar.
Meðal þeirra þjóða sem eru enn
taplausar á móti íslenska kvenna-
landsliðinu eru Bandaríkin (1 jafn-
tefli, 9 töp), Þýskaland (10 töp) og
Svíþjóð (1 jafntefli, 7 töp).
Íslensku stelpurnar hafa heldur
aldrei unnið Danmörku en fá tæki-
færi til þess að breyta því um helg-
ina. Danska kvennalandsliðið vann
íslensku stelpurnar 2-0 í Algarve-
bikarnum í mars. Danmörk hefur
unnið alla þrjá leiki þjóðanna til
þessa með markatölunni 9-1.
„Við spiluðum ekki okkar besta
leik á móti Dönum síðast og og vilj-
um bæta fyrir það. Leikurinn var
mjög erfiður leikur fyrir okkur.
Danir voru með boltann nánast
allan leikinn og við vorum í elting-
arleik,“ segir Sigurður Ragnar.
„Þær eru í sjötta sæti á heims-
listanum þannig að þetta er ein
allra besta þjóð í heimi. Það verður
mikil áskorun fyrir okkur að mæta
þeim,“ segir landsliðsþjálfarinn.
Frábært gengi stelpnanna að
undanförnu ætti að hafa gefið lið-
inu mikið sjálfstraust og fyrsti
sigurinn í sögunni á Dönum er því
kannski ekki fjarlægur draumur.
ooj@frettabladid.is
Fjórði sigurinn á topp tíu þjóð
Fyrstu sigrar íslenska kvennalandsliðsins á Kína, Frakklandi, Noregi og Englandi hafa allir komið síðan
Sigurður Ragnar Eyjólfsson tók við liðinu. Stelpurnar geta bætt Dönum í hópinn á sunnudaginn.
2-0 SIGUR Á ENGLANDI Dóra María Lárusdóttir sér hér á ferðinni í sigri á níundu
bestu þjóð heims í fyrrakvöld. NORDICPHOTOS/GETTY
SÖGULEGIR SIGRAR
14. mars 2007
4-1 sigur á Kína í Algarve-bikarnum.
Kína var í 9. sæti á heimslistanum.
16. júní 2007
1-0 sigur á Frakklandi á Laugardals-
velli. Frakkkland var í 7. sæti á heims-
listanum og Íslandi hafði ekki tekist
að vinna Frakka í 4 leikjum.
4. mars 2009
3-1 sigur á Noregi í Algarve-bikarnum.
Noregur var í 6. sæti á heimslistanum
og Íslandi hafði ekki tekist að vinna
Noreg í 5 leikjum.
16. júlí 2009
2-0 sigur á Englandi í Colchester.
England var í 9. sæti á heimslistanum
og Íslandi hafði ekki tekist að vinna
England í 9 leikjum.
Í RAUTT Arnar
Gunnlaugsson er
orðinn leikmaður
Vals.
FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
HANDBOLTI Friðrik Þór Sigmars-
son markvörður hefur gengið til
liðs við Val frá ÍBV. Friðrik er
tvítugur en hann er sonur Sig-
mars Þrastar Óskarssonar sem
var í hópi bestu markvarða lands-
ins á sínum tíma.
Eftir síðasta tímabil misstu
Valsmenn Pálmar Pétursson í
raðir FH og nú er útlit fyrir að
Ólafur Haukur Gíslason sé á
förum en Hlíðarendaliðið á í við-
ræðum við norska félagið Hauga-
land. - egm
Friðrik Þór Sigmarsson:
Frá Eyjum til
Hlíðarenda