Fréttablaðið - 08.08.2009, Síða 10
10 8. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
NÁTTÚRUVERND SUNN, samtök um
náttúruvernd á Norðurlandi, vilja
að Gjástykki í Þingeyjarsýslu verði
verndað fyrir hvers konar raski.
Þetta kemur fram í ályktun sam-
takanna frá því í gær.
Gjástykki, sem er rétt norðan við
Kröflu, er það svæði í heiminum á
þurru landi sem best sýnir hvernig
landreksflekarnir færast í sundur,
að mati Ingólfs Ásgeirs Jóhannes-
sonar, formanns SUNN. Vilja sam-
tökin því að stjórnvöld berjist fyrir
uppbyggingu eldfjallafræðagarðs í
Gjástykki og við Leirhnjúk, sem er
vestan Kröflu.
Þegar hafa rannsóknarboran-
ir hafist við Gjástykki í hrauninu
norðanverðu en iðnaðarráðherra
setti það skilyrði á síðasta ári að
frekari boranir þyrftu að fara í
umhverfismat. SUNN lýsir yfir
andstöðu við þessar rannsóknar-
boranir. Segja samtökin að boran-
ir sem þessar kosti sitt og það sé
alltaf ljóst að þegar þær fari fram
hyggist framkvæmdaraðili virkja.
„Við sem viljum vernda Gjá-
stykki viljum ekkert rask þar og
teljum að kostnaður við rannsókn-
arboranir sé óásættanlegur ef þar
verður svo aldrei virkjað,“ segir í
ályktuninni. Skora þau jafnframt
á umhverfisráðherra að hefjast
handa við undirbúning friðlýsing-
ar svæðisins svo tryggja megi eftir
föngum að svæðið verði lyftistöng
fyrir Íslands. - vsp
Náttúruverndarsamtök á Norðurlandi:
Vilja setja upp eldfjalla-
fræðagarð við Gjástykki
GJÁSTYKKI Stefnt er að því að virkja á nokkrum svæðum á Norðurlandi. Þar á meðal
í Gjástykki og á Þeistareykjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
SJÁVARÚTVEGUR Afli íslenskra
fiskiskipa árið 2008 var rúmlega
1.283 þúsund tonn, 113 þúsund
tonnum minni en árið áður. Mestu
munar um samdrátt á loðnuveið-
um um 156 þúsund tonn.
Þrátt fyrir minni afla jókst
aflaverðmætið um fjórðung, og
var rúmlega 99 milljarðar króna
á síðasta ári, að því er fram
kemur í samantekt Hagstofu
Íslands.
Stærstur hluti afla íslensku
skipanna var unninn á Austur-
landi, aðallega uppsjávarafli.
Obbinn af botnfiskaflanum var
hins vegar unninn á höfuðborgar-
svæðinu og á Suðurnesjum, rúm-
lega 40 prósent aflans. - bj
Minna veitt af fiski í fyrra:
Aflaverðmætið
99 milljarðar
FISKAÐ Samdráttur í loðnuafla hafði
mikil áhrif á heildarafla íslenskra skipa
árið 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR FRIÐRIKSSON
Getum enn bætt við
nemendum í 5 ára
og 8 ára bekk
Skóli Ísaks Jónssonar er persónulegur skóli
sem hefur í rúm 80 ár sérhæft sig í kennslu
yngstu grunnskólabarnanna. Við leggjum
metnað okkar í kennslu í íslensku, stærð-
fræði og tónlist og tökum glöð á móti nýjum
börnum í 5 ára og 8 ára bekk.
Hægt er að sækja um skólavist á heimasíðu
skólans www.isaksskoli.is eða hjá skrifstofu
skólans í síma 553 2590.
ÍSAKSSKÓLI