Fréttablaðið - 13.08.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
NEYTENDAMÁL Ólöglegar verðmerkingar á
matvöru virðast viðgangast í stórum stíl í
íslenskum matvöruverslunum, þrátt fyrir
að samkeppnisyfirvöld hafi ítrekað hvatt til
þess að látið verði af þeim. Samkeppniseftir-
litið hefur hafið stjórnsýslumál sem beinast
að smásöluverslunum, framleiðendum mat-
vöru og birgjum.
Hér er um að ræða forverðmerkingar á
matvöru fyrir matvöruverslanir; sem einnig
er kallað leiðbeinandi smásöluverð. Slíkar
verðmerkingar ná til tíu til fimmtán pró-
senta þeirrar matvöru sem seld er í matvöru-
verslunum hérlendis með veltu á bilinu sjö til
tíu milljarðar króna. Helstu vöruflokkarnir
eru unnin kjötvara og ostar.
Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytenda-
stofu, telur að forverðmerkingar brjóti gegn
samkeppnislögum. Spurður um hvers vegna
Neytendastofa hafi ekki brugðist við, en það
er hennar hlutverk, segir Tryggvi að það
hafi staðið til um það leyti sem Samkeppn-
iseftirlitið tók málið upp. „Það gekk ekki
lengra þar sem þetta var í athugun. Við vild-
um sjá hvernig Samkeppniseftirlitið tæki á
þessu.“
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppn-
iseftirlitsins, segir að ekki sé hægt að full-
yrða neitt um að forverðmerkingar séu brot
á samkeppnislögum. „En Samkeppniseftir-
litið hefur hafið stjórnsýslumál sem beinast
að smásöluverslunum og meðal annars hópi
framleiðenda og birgja á sviði kjötfram-
leiðslu. Sú rannsókn miðar að því að leiða í
ljós hvort brotið hafi verið gegn samkeppnis-
lögum með aðgerðum sem tengjast forverð-
merkingum.“
Páll segir að niðurstöður rannsóknar
Samkeppniseftirlitsins frá því í fyrra hafi
leitt í ljós að forverðmerkingar og þau sam-
skipti sem tengjast þeim, kunni að fela í sér
aðgerðir sem ganga gegn banni við samráði
fyrirtækja eða misnotkun á markaðsráðandi
stöðu. „Því var hins vegar ekki slegið föstu
án frekari rannsóknar. Könnunin gaf til
kynna að þessar forverðmerkingar takmarki
samkeppni því verðmunur á þessum vörum
milli verslana er margfalt minni en eðlis-
líkra vara, sem ekki eru forverðmerktar.
Nýlegar athuganir ASÍ benda í sömu átt.“
Athugun Samkeppniseftirlitsins leiddi í
ljós að verðmunur á milli verslana á þeim
vörum sem eru forverðmerktar af birgjum
er oft enginn og aldrei meiri en sex pró-
sentum hærri í stórmörkuðum og klukku-
búðum en í lágvöruverðsverslunum. Þegar
matvöruverslanir verðmerkja sjálfar er
ekki óalgengt að verð í stórmörkuðum og
klukkubúðum sé 30-60 prósent hærra en í
lágvöruverðsverslunum. svavar@frettabladid.is
FIMMTUDAGUR
13. ágúst 2009 — 190. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Mér finnst þetta góð blanda. Ég fer oft í þessi föt þegar ég klæði mig upp á,“ segir Rúna Sigurðar-dóttir viðskiptafræðinemi. „Mér finnst kjóllinn sérstaklega sýna strauminn í tískunni í dag. Gagn-sæ efni eru í tísku.“Rúna segi t
Innt eftir því hvort Rúna eigi fleiri föt með mömmu sinni segir hún: „Við deilum helst skóm. Mik-ill aldursmunur er á okkur þannig að við höfum ólíkan smekk en ætliég fái ekki tískuáh
segir Rúna og heldur áfram: „Ég skoða mikið tískublogg þar sem stelpur á Íslandi og erlendis tala um tísku,“ upplýsir Rúna o bvið ð
Eignaðist buxur tólf ára
Rúna Sigurðardóttir deilir áhuga sínum á tísku með foreldrum sínum. Hún gengur í fötum af mömmu
sinni, finnst skemmtilegt að pabbi hennar hugsi um tískumerki og hefur sjálf áhuga á götutísku.
Rúna segist eiga mikið af sokkabuxum með mismunandi munstrum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ANTÍKLOKKAR Eyrnalokkarnir Magnetic Memories eftir fatahönn-
uðinn Bryndísi Sveinbjörnsdóttur eru búnir til úr segulbandi og antík-
perlum og fást í fjölmörgum litum. Útsölustaði er hægt að finna með
því að slá inn leitarorðin Magnetic Memories á Facebook.
VEÐRIÐ Í DAG
Er Ísland of lítið?
„Heimurinn er nú safn smáríkja,
því að smálöndin eru mörg og
stórveldin fá. ESB er smáríkja-
samband“, skrifar Þorvaldur
Gylfason.
Í DAG 18
11-21
FÓLK „Hún er orðin rosalega vin-
sæl í Svíþjóð.
Þetta gengur
rosalega vel,“
segir María
Björk Sverris-
dóttir, umboðs-
maður Jóhönnu
Guðrúnar.
Söngkonan
kemur fram
á tónleikum í
Malmö í Svíþjóð á laugardaginn
ásamt hinum heimsfræga Mika.
„Það er stærsta útvarpsstöðin
í Svíþjóð (RIX FM) sem heldur
þessa tónleika. Þarna verða stóru
nöfnin í Svíþjóð plús alþjóðleg-
ir tónlistarmenn, sem eru Mika
og Jóhanna,“ segir María Björk.
Um frábæra kynningu er að ræða
fyrir Jóhönnu, enda sló Mika
rækilega í gegn fyrir tveimur
árum með laginu Grace Kelly.
Jóhanna fetar jafnframt í fót-
spor söngkonunnar Lady Gaga
sem söng á sama sviði um síðustu
helgi. - fb/ sjá síðu 46
Jóhanna Guðrún í Svíþjóð:
Syngur með
Mika í Malmö
JÓHANNA GUÐRÚN
EFNAHAGSMÁL „Það er ekki hægt
að byrja á því að frysta eignir
fólks, fyrst verður að sanna glæp-
samlega hegðun þess,“ segir Eva
Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara
vegna bankahrunsins.
Hún segir almenning verða
að sýna biðlund meðan málin
séu rannsökuð. Afar flókið sé að
ákveða hvort og hvenær eigi að
frysta eignir grunaðra.
Þegar þrír nýir saksóknarar
koma til starfa hjá embætti sér-
staks saksóknara í haust munu þeir
meðal annars hafa uppi á brott-
fluttu fé, með aðstoð erlendra sér-
fræðinga, segir Joly, í viðtali við
Fréttablaðið í dag.
Joly mun funda með forstjóra
bresku efnahagsbrotadeildarinn-
ar, Serious Fraud Office, snemma
í september. Hún segir Ísland og
Bretland hafa sameiginlega hags-
muni af því að setja saman púslu-
spilið sem eftir sitji eftir banka-
hrunið.
Best væri ef samstarfið yrði
mun víðtækara, þannig að emb-
ætti sérstaks saksóknara gæti
notið reynslu og þekkingar sem
til staðar er hjá bresku efnahags-
brotadeildinni, segir Joly.
- bj / sjá síðu 10
Eðlilegt að eignir grunaðra auðmanna hafi enn ekki verið frystar segir Eva Joly:
Almenningur sýni biðlund
Gömul gildi
Lára Stefánsdóttir
hefur fyrsta
skólaár sitt sem
skólastjóri Listdans-
skóla Íslands
TÍMAMÓT 24
FARTÖLVUR
Minni, léttari, hraðari
og fallegri en áður
Sérblað um fartölvur
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Henson aftur
í tísku
Linda Borg Arnar-
dóttir heldur á lofti
klassískri ís-
lenskri hönnun.
FÓLK 36
RÚNA SIGURÐARDÓTTIR
Deilir áhuga á tísku
með foreldrunum
• tíska
Í MIÐJU BLAÐSINS
SKÝJAÐ MEÐ KÖFLUM Í dag
verður hæg vestlæg eða breyti-
leg átt, víðast 2-8 m/s. Rigning
eða súld N- og NV-lands en víða
skýjað með köflum og skúrir
síðdegis. Hiti 10-16 stig, hlýjast
sunnanlands.
VEÐUR 4
13
11
12
12
1316
Rannsaka verðmerkingar
Verðmerkingar, sem Neytendastofa og ASÍ telja ólöglegar, viðgangast í matvöruverslunum í stórum stíl.
Samkeppniseftirlitið hefur hafið stjórnsýslumál sem beinast að verslunum og hópi framleiðenda og birgja.
FLÜGGER HERMUNDARDÓTTIR Þegar Stuðmenn sungu um Hörpu Sjöfn Hermundardóttur árið 1982 hefur þá vart órað fyrir að
málningarfyrirtækin Harpa og Sjöfn myndu sameinast árið 2001. Enn síðar festi danska fyrirtækið Flügger kaup á Hörpu-Sjöfn hf.,
svo þær stöllur hafa mögulega leikið eitthvert hlutverk í lagfæringum þessa unga manns á Hverfisgötunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Jafntefli við Slóvakíu
Karlalandslið Íslands
í fótbolta gerði 1-1
jafntefli við Slóvakíu
í vináttulandsleik á
Laugardalsvelli
í gærkvöldi.
ÍÞRÓTTIR 42