Fréttablaðið - 13.08.2009, Síða 11
FIMMTUDAGUR 13. ágúst 2009 11
vík, þar sem erlendir sérfræðing-
ar munu starfa við hlið íslenskra
samstarfsmanna. En ég legg mikla
áherslu á að rannsóknin verði
alþjóðleg og að Íslendingar fái
hjálp frá hinum Norðurlöndunum,
Bretlandi og öðrum löndum sem
geta veitt aðstoð,“ segir Joly.
„Íslenska bankahrunið er ein-
stakt í heimssögunni og þess
vegna er mikilvægt að okkur tak-
ist að setja upp alþjóðlegan hóp til
að rannsaka það, en undir stjórn
Íslendinga,“ segir Joly.
Valtýr segi af sér
Joly gagnrýndi harkalega að Valtýr
Sigurðsson sæti enn sem ríkis-sak-
sóknari eftir bankahrunið, þrátt
fyrir að sonur hans væri annar
tveggja forstjóra Exista, sem var
stærsti eigandi Kaupþings. Til að
bregðast við gagnrýni Joly, sem
hótaði að hætta störfum fyrir emb-
ætti sérstaks saksóknara vegna
málsins, skipaði Ragna Árnadóttir
dómsmálaráðherra Björn L. Bergs-
son í embætti setts ríkissaksókn-
ara í öllum málum sem tengjast
bankahruninu.
Joly segir að vel megi una við
þessa lausn, enda hafi stjórnvöld
að því er virðist ekki haft aðra leið
til að ganga framhjá Valtý. „Það
sem mér fannst mikilvægt var
að við hefðum aðgengi að ríkis-
saksóknara sem gæti veitt góð
ráð varðandi rannsóknina, færan
mann sem þekkti íslenska kerfið
vel,“ segir Joly.
„Ég er ánægð með val á manni
í stöðuna, en mér finnst ennþá
að Valtýr eigi að segja starfi
sínu lausu. Embætti hans kostar
íslensk stjórnvöld háar upphæðir,
en vegna hans getur það ekki sinnt
stærsta verkefninu sem upp hefur
komið hér á landi frá upphafi,“
segir Joly.
„Allt tal um að reglur um van-
hæfi eigi ekki við skiptir ekki máli.
Til að setja þær reglur í samhengi
má segja að þær hafi verið hugs-
aðar til að taka á því þegar sonur
ríkissaksóknara stelur litlu mót-
orhjóli, ekki þegar hann er þátt-
takandi í atburðarás sem fellir
íslenska bankakerfið,“ segir Joly.
Hættulegir stjórnmálamenn
Joly var kjörin á Evrópuþingið
sem fulltrúi Frakklands í byrjun
júní síðastliðins. Hún segir það vel
geta farið saman að vera stjórn-
málamaður og ráðgjafi sérstaks
saksóknara. Sé einhver á annarri
skoðun sé sjálfsagt að ræða það, en
þetta sé hennar skoðun í dag.
„Ég sé ekki að störf mín fyrir
Evrópuþingið hafi nein áhrif á hlut-
verk mitt við rannsókn á banka-
hruninu á Íslandi. Ísland er ekki
einu sinni aðildarríki Evrópusam-
bandsins. Það versta í heiminum
eru atvinnustjórnmálamenn, til
dæmis fólk sem hefur bara sinnt
stjórnmálum í þrjá eða fjóra ára-
tugi. Slíkt fólk er hættulegt. Það
er mikilvægt fyrir mig að vera á
vettvangi, að sjá hvaða áhrif skort-
ur á reglum um fjármálafyrirtæki
hefur haft. Það hvetur mig áfram
í mínu starfi við að breyta reglun-
um,“ segir Joly.
FRÉTTAVIÐTAL
BRJÁNN JÓNASSON
brjann@frettabladid.is
FASTEIGNIR Búið er að leigja út þrjá-
tíu prósent af tuttugu þúsund fer-
metrum turnsins við Höfðatorg.
Pétur Guðmundsson, eigandi Höfða-
torgs, sem á og leigir út turninn, er
bjartsýnn á að það náist að leigja út
allt húsið, hvort sem það taki hálft,
eitt eða tvö ár.
„Við erum að vinna að samning-
um með nokkrum aðilum og ef þeir
ganga eftir verða sextíu til sjötíu
prósent af húsinu í útleigu,“ segir
Pétur.
Starfsemi á að hefjast í húsinu
um mánaðamótin september-októ-
ber. Ekki er erfitt að fá fyrirtæki
til að leigja, því mörg fyrirtæki eru
að leita sér að húsnæði í hagræð-
ingarskyni, að sögn Péturs. „Það
kom okkur nokkuð á óvart hvað við
fengum margar fyrirspurnir. Mikið
rennirí er af fólki sem er að skoða,“
segir Pétur.
Áður en hafist var handa við að
byggja húsið hafði Eykt leigt út
um helming húsnæðisins en mörg
fyrirtækjanna urðu gjaldþrota í
kjölfar kreppunnar, að sögn Pét-
urs. Meðal þeirra fyrirtækja sem
höfðu ætlað að leigja í turninum
var Icebank, sem féll í mars.
„Þetta hús er tær snilld þó ég
segi sjálfur frá og gaman fyrir
menn að fara upp í það,“ segir
Pétur en Höfðatorg býður í opið
hús í turninum á Menningarnótt.
„Menn geta farið upp á nítjándu
hæð og það verður væntanlega
keppni í klifri upp einn vegginn á
húsinu.“ - vsp
Búið er að leigja út þrjátíu prósent af turninum við Höfðatorg:
Bjartsýnn á að fylla turninn
TAÍVAN, AP Nærri þúsund manns
hafa fundist á lífi á hamfarasvæð-
inu í Taívan þar sem fellibylur reið
yfir um helgina. Enn er hundraða
manna saknað og óttast um líf
þeirra.
Í gær hafði opinberlega þó
aðeins verið staðfest að 63 væru
látnir og 61 saknað að auki.
Verstu hamfarirnar urðu í Kaos-
hing-sýslu, þar sem þrjú afskekkt
þorp urðu fyrir gríðarlegu tjóni.
Aðrir hlutar landsins urðu einn-
ig illa úti, en björgunaraðgerðir
beindust einkum að Kaoshing, þar
sem talið var að flestir sem saknað
var gætu reynst á lífi.
Mikið úrhelli í kjölfar fellibylsins
torveldaði þó allt björgunarstarf.
Meðan mest var mældist úrkoman
í Taívan heilir tveir metrar.
Fellibylurinn bar nafnið Mora-
kot og fór einnig yfir Filippseyjar
og suðausturhluta Kína, þar sem
hálf önnur milljón manns flúði að
heiman meðan ósköpin gengu yfir.
Um tíu þúsund heimili í Kína eyði-
lögðust.
Luo Shun-chi, 36 ára maður sem
bjó í þorpinu Shiao Lin í Taívan,
segir þorpið gjörónýtt, sama hver
endanleg tala látinna verður.
„Það er ekki nokkur leið að ég
snúi aftur þangað,“ sagði hann.
„Staðurinn er eyðilagður.“ - gb
Úrhelli torveldar björgunaraðgerðir eftir fellibylinn Morakot á Taívan:
Þúsund manns fundust á lífi
HÖFÐATORG Í turninum eru tuttugu
þúsund fermetrar af skrifstofurými
í boði. Starfsemi hefst í húsinu um
mánaðamótin september-október.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ERFIÐAR AÐSTÆÐUR Björgunarfólk
þurfti að nota kaðla og klifurbúnað til
að komast yfir á þar sem áður var brú.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP