Fréttablaðið - 13.08.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 13.08.2009, Blaðsíða 12
12 13. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ „Þegar maður les þessa skýrslu og hvernig íslenska krónan hefur þróast síðustu árin og áratugina þá er þetta eins og einhvers konar hræðilegur brandari,“ segir Þórir Hrafn Gunnarsson lögfræðingur um nýja skýrslu Seðlabanka Íslands um kosti þess og galla að breyta umgjörð peningastefnunn- ar. Í skýrslunni fær það sjónarmið byr undir báða vængi að krónan sé of veikburða til þess að vera nothæfur gjaldmiðill. Þar segir jafnframt að íslenska krónan hafi veikst um 99,95 prósent gagnvart þeirri dönsku frá því að þær voru aðskildar árið 1920. Þórir Hrafn telur þær upplýsingar sem þarna koma fram lýsa óviðun- andi ástandi en telur þó að bjartari tímar geti verið fram undan eftir að Ísland sótti um inngöngu í Evrópu- sambandið í lok júlí. „Vonandi nást góðir samningar svo við getum gengið í ESB við fyrsta tækifæri. Það er lykilatriði að Íslendingar geti tekið upp evruna sem allra fyrst svo við losnum við þessa matadorkrónu,“ segir Þórir Hrafn. SJÓNARHÓLL SKÝRSLA UM PENINGASTEFNUNA Eins og hræði- legur brandari ÞÓRIR HRAFN GUNNARSSON lögfræðingur ■ Litbolti nýtur vaxandi vinsælda í hinum vestræna heimi, meðal annars hér á landi. Leikmönnum er skipt í lið, og nota þeir loft- knúnar byssur til að skjóta litlum kúlum sem fylltar eru af matarlit í leikmenn í öðrum liðum. Rekja má litboltann til ungra Bandaríkjamanna sem höfðu brennandi áhuga á veiðum. Árið 1981 fundu þeir leið til að upplifa spennuna af því að veiða menn með litbyssum sem notaðar voru af líffræðingum til að merkja dýr og tré. Leikurinn hefur þróast síðan, og nú er talið að um 1,9 milljónir Bandaríkjamanna spili litbolta nokkrum sinnum á ári. LITBOLTI VILDU VEIÐA MENN Umferðarstofa hefur tekið saman helstu atriði varð- andi umferðaröryggi grunn- skólabarna. Fréttablaðið ræddi við Þóru Magneu Magnúsdóttur, fræðslufull- trúa hjá Umferðarstofu. UMFERÐ „Sem betur fer er nú ekki mikið um það að börn slasist á leið í og úr skóla. En þess vegna erum við standa í allri þessari vinnu, til að koma í veg fyrir að breyting verði þar á,“ segir Þóra Magnea Magnúsdóttir, fræðslufulltrúi hjá Umferðarstofu. Nú styttist í að skólastarf hefjist og á hverju ári stíga rúmlega fjögur þúsund börn sín fyrstu skref sem virkir þátt- takendur í umferðinni. Á hverju vori býður Umferðar- stofa upp á Umferðarskóla fyrir elstu árganga leikskóla, börn á aldrinum fimm til sex ára. „Þar er farið yfir allt það helsta sem máli skiptir, hvernig á að fara yfir götu, reiða hjólið og þar fram eftir göt- unum, og börn- in eru gjarnan með þetta allt á hreinu,“ segir Þóra og þakkar vitneskju grunn- skólabarnanna að hluta til bók- unum um krakk- ana í Kátugötu, sem börn landsins fá sendar heim til sín frá þriggja ára aldri. „Þegar þau svo byrja í grunnskóla eru þau að koma úr vernduðu umhverfi leikskólans, með sínum lokuðu leikvöllum og leiðbeinendum sem fara með í allar gönguferðir. Þau kynnast því jafn- vel í fyrsta sinn að þurfa að ganga í skólann, og því er eðlilegt að sumir foreldrar verði dálítið stressaðir.“ Umferðarstofa hefur tekið saman helstu atriði varðandi öryggi skólabarna í umferðinni. „Þessum ábendingum er ekki síður beint að fullorðnum. „Það er mik- ilvægt að vera vakandi þegar allt þetta unga fólk fer af stað á haust- in,“ segir Þóra Magnea Magnús- dóttir. kjartan@frettabladid.is Unga fólkið fer af stað TIL BEGGJA HLIÐA Umferðarstofa dreifir 40.000 endurskinsmerkjum til skólabarna í haust. MYND/TEITUR JÓNASSON ÞÓRA MAGNEA MAGNÚSDÓTTIR „Það er helst að frétta að 110 manna íslensku- námskeið sem við höldum hjá Háskólasetri Vestfjarða er um það bil hálfnað,“ segir Ingi Björn Guðnason, verkefnisstjóri hjá háskólasetr- inu. „Þetta er þriggja vikna námskeið og á því eru aðallega skiptinemar sem eru að hefja nám við ýmsa háskóla á Íslandi í haust.“ Námskeiðið er hugsað sem inngangur að tungumálinu og menningunni. „Við héldum þetta námskeið líka í fyrra og það sýnir sig að nemendurnir eru mjög ánægð- ir með að fara út á land fyrstu vikurnar á Íslandi. Ísfirðingar og nærsveitungar eru ótrúlega duglegir að aðstoða við kennsluna með því að tala bara íslensku við nemendurna. Svo eru farnir að tínast til okkar nemendur sem eru að hefja meistaranám í haf- og strandsvæðastjórnun sem við bjóðum upp á. Þeir koma víða að úr heiminum og munu dvelja hérna næsta árið. Þetta er annað árið sem við bjóðum upp á þetta nám í samstarfi við Háskólann á Akureyri, en nemendurnir sem byrjuðu í september í fyrra eru ein- mitt að klára síðustu valáfangana sína núna. Þeir byrja svo á lokaritgerðunum sínum strax í kjölfarið. Sumir ætla að vinna rannsóknirnar sínar á Íslandi en aðrir fara út í heim, til Kanada, Eng- lands og Suður-Afríku til dæmis. Nú, svo er maður farinn að hlakka til helgarinnar því á föstudag- inn hefst einleikjahátíð Act Alone hér á Ísafirði, sem er sannkölluð veisla fyrir leikhús- áhugafólk.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? INGI BJÖRN GUÐNASON, VERKEFNISSTJÓRI Erlendir nemar ánægðir úti á landi Í fótbolta og Eurovision „Þjóðremba á kannski heima á íþróttavöllum og í Eurovision, en ekki í sögu- skoðun og stjórnmálum.“ GUÐNI TH. JÓHANNESSON UM ICESAVE OG SÖGUNA. Fréttablaðið, 12. ágúst. Rólegur „Ég bíð þess tiltölulega ró- legur að málinu verði lokað, svo við getum snúið okkur að öðrum brýnum verkefnum.“ STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON UM ICESAVE-SAMNINGINN Fréttablaðið, 12. ágúst. FÓLK Magnús Scheving, í gervi sínu sem Íþrótta- álfurinn úr Latabæ, kom færandi hendi á barna- spítala í Manchester á Englandi á þriðjudag. Þar heimsótti hann hinn fjögurra ára gamla Har- ley Slack, sem þurfti að aflima fyrir þremur mánuðum eftir að drengurinn fékk heilahimnu- bólgu. Með í för var starfsmaður heilbrigðisfyrir- tækisins Össurar, en fyrirtækið hyggst framleiða gervifætur fyrir drenginn. Saga Harleys hefur vakið mikla athygli í Bret- landi. Hendur hans og fætur hafa verið fjarlægð og ekki er von á að hann komist heim frá sjúkra- húsinu fyrr en í nóvember. Enska götublaðið The Sun átti þátt í því að skipu- leggja heimsóknina. Blaðið hefur komið af stað söfnun fyrir Harley og hafa um 400 þúsund pund þegar safnast. Myndband af heimsókninni má sjá á heimasíðu The Sun. - kg Íþróttaálfurinn kom færandi hendi á Barnaspítala í Manchester: Heimsótti veikan dreng HEIMSÓKN Hinn fjögurra ári gamli Harley Slack fékk meðal annars Íþróttaálfsbúning og DVD-myndir að gjöf frá Íþrótta- álfinum. MYND/NMA Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við fótsvepp (tinea pedis). Ekki má nota Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar. Lyfið er eingöngu ætlað til húðmeðferðar á fótum. Lamisil Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Lamisil Once. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að bera á einu sinni. Best er að bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel þótt einkenni sjáist einungis á öðrum fæti. Þetta tryggir eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir sjaldnast húðina. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Drepur fótsveppinn - þarf aðeins að bera á einu sinni ½½ Notaðu alla Lamisil Once® túpuna á báða fæturna til að forðast að sýkingin taki sig upp á ný Berðu Lamisil Once® á: á milli tánna, bæði undir þær og ofan á bæði á iljar og jarka 24h Til að ná sem bestum árangri skal ekki þvo fæturna í sólarhring 1 32 Það getur skapað hættu að aka barninu Hafa skal í huga að öll umferð ökutækja við skóla skapar hættu. Af þeim sökum er mikilvægt að foreldrar séu ekki að aka börnum sínum að óþörfu til skóla og skapa með því hættu fyrir aðra gangandi vegfarendur, ekki síst börn. Nota skal sérstök svæði Þegar nauðsyn krefur að börn séu keyrð í skóla er mjög mikilvægt að þau fari út úr bílnum þar sem þau eru örugg. Ekki stofna lífi barnsins og annarra í hættu með því að sleppa þeim út við gangstéttarbrún. Nota skal sérstök stæði eða útskot sem eiga að vera við flesta skóla. ER BARNIÐ TIL- BÚIÐ AÐ GANGA TIL SKÓLA? Er stysta leiðin örugg? Ef mögulegt er að láta barnið ganga eitt til skólans skal finna og ganga leiðina með barninu nokkrum sinn- um áður en skólaganga hefst. Velja skal þá leið þar sem sjaldnast þarf að ganga yfir götu. Stysta leiðin er ekki alltaf sú öruggasta. Allir eiga að nota endurskin Ef engin gangstétt er á að ganga á móti umferðinni, eins fjarri henni og unnt er. Ef fleiri eru saman á að ganga í einfaldri röð. Allir eiga að nota endurskinsmerki eða vera í yfirhöfnum með endurskini. Er foreldrið góð fyrirmynd? Hafa skal í huga að foreldrar eru fyrirmyndir barnsins. Hvernig hegða þeir sér í umferðinni? Barnið lærir meira af því sem foreldrarnir gera en því sem þeir segja. Sjá nánar á vef umferðarstofu: us.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.