Fréttablaðið - 13.08.2009, Síða 27

Fréttablaðið - 13.08.2009, Síða 27
FIMMTUDAGUR 13. ágúst 2009 1 Listilega vel gerðir rússneskir pappírskjólar. Pappír er kannski ekki efni sem hefð er fyrir að nota í kjóla. Í júlí/ ágúst-útgáfu franska tímaritsins L’Officiel mátti hins vegar líta ótrúleg sköpunarverk tveggja rússneskra hönnuða. Þar voru á ferðinni Alexandra Zaharova og Ilja Plotnikov undir merkjum Doberman. Þau bjuggu til kjóla og fylgihluti úr pappír þannig að úr urðu hreinustu lista- verk. Hér eru nokkur dæmi um kjólana sem birtust á síðum tíma- ritsins í sumar. Í dag leggja tískuhönnuðir mikið upp úr ímynd sinni og í glamúrheimi er nauð-synlegt að vera í slúður- blöðunum, ekki síður en í tísku- blöðunum og ekki er verra að láta sjá sig með þotuliðinu á réttum stöðum. Í dag er varla talað um tískuhús Diors nema að minnast á John Galliano í sömu setningunni og markaðssetning- in gengur óneitanlega mikið út á sviðsetningu hans sjálfs. En sú var tíðin að varla nokkur maður þekkti hönnuð Diors og það um nærri þrjátíu ára skeið. Árið 1961 tók Marc nokkur Bohan við af Yves Saint Laurent sem list- rænn stjórnandi Dior en Saint Laurent tók við stjórnar- taumum eftir sviplegt fráfall meistara Diors 1957 en var svo kvadd- ur í herinn. Líkur má reyndar að því leiða að þetta hafi orðið til þess að Saint Laur- ent opnaði sitt tísku- hús þar sem að eig- endur Diors vildu ekki fá hann til baka en það er önnur saga. Þrátt fyrir að varla nokkur maður þekki í dag Marc Bohan má þó rekja til hans ýmsar nýj- ungar í tískuheiminum. Á þessum tíma blómstr- aði tískan eftir mögur ár eftir seinna stríð. Þetta var tími endurkomu Coco Chanel, Hubert de Givenchy var vinsæll og fjöldaframleiddur fatnaður frá tísku- húsunum var nýjung sem opnaði mörg- um sem ekki höfðu efni á hátísku möguleika á hönnun frá þeim frægustu. Bohan var fyrstur í hópi fræg- ustu hönnuða að hanna barna- línu árið 1967 með Baby-Dior fyrir 0-3 ára, sama ár og Miss Dior kom á markað sem var tískulína ætluð yngri konum og þótti merk nýjung. Þremur árum seinna var það herralín- an Monsieur Dior sem kom á markað og sömuleiðis fyrsta herrailmvatnið frá Dior, Eau Sauvage, ásamt raksápu og talk- úmi en það styrkti markaðs- stöðu tískuhússins um heim allan. Forveri metrósexual- mannsins var orðinn til. Bæði 1983 og 1988 fékk Marc Bohan fræg tískuverðlaun en að vanda hlédrægur tók hann við verðlaununum klæddur hvítum vinnusloppi, ásamt samstarfs- fólki sínu, hinn algjöri Anti- Galliano. Hann sagði sjálfur nýlega, nú rétt fyrir 83 ára afmælið, að markmið hans hefði alltaf verið að vera verðugur arftaki Christians Dior. Í hátískunni klæddi Bohan kynslóðir af stjörnum og prinsessum eins og Grace af Mónakó sem tískuáhuga- menn muna eftir í stór- kostlegum útsaumuðum kvöldkjól eða dóttur henn- ar, Caroline á áttunda ára- tugnum í frægri dökkblárri buxnadragt með hvítum röndum og stórum axlapúðum, Elisabeth Taylor var mynduð í eggaldinlitri dragt frá Dior og fleiri mætti nefna eins og Mariu Callas. Dior-safnið í Granville í Norm- andí-héraði helgar sumarsýningu sína Marc Bohan og starfi hans. www.musee-dior- granville.com. Í skugga meistara Diors ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR Bergþór Bjarnason skrifar frá París Bandarísku forsetahjónin Barack og Michelle Obama slá Hollywood- stjörnur á borð við Angelinu Jolie út af nýjasta lista Vanity Fair yfir best klæddu konur og karla heims. For- setinn kemst í fyrsta skipti á blað en Michelle hefur verið þar tvíveg- is áður. Þótt Angelina Jolie sé ekki leng- ur á lista þá virðist sambýlismað- ur hennar, Brad Pitt, enn þá tolla í tískunni. Aðrar stjörnur á listan- um eru Penélope Cruz, Anne Hatha- way og James Bond-stjarnan Dani- el Craig. Obama-hjónin eru þó ekki eina fólkið úr röðum ráðamanna sem þykir flott í tauinu því að Michael Bloomberg, borgarstjóri New York- borgar, og franska forsetafrúin Carla Bruni-Sarkozy þykja einnig smart. - ve Smekkleg hjón Obama-hjónin eru með tískuna á tæru ef marka má nýjasta lista Vanity Fair yfir best klæddu konur og karla heims. Michelle Obama hefur löngum þótt smart en þetta mun vera í fyrsta skipti sem forsetinn kemst á blað. NORDICPHOTOS/GETTY Dressuð upp í pappír Sköpunar- verk Zaharova og Plotnikov. Ótrúlegustu form má móta úr pappír. Fyrirsætan Prunelia í kjól eftir Marc Bohan í París árið 1968. í sama hús og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind. Síðustu dagar útsölunnar. Enn meiri verðlækkun!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.