Fréttablaðið - 13.08.2009, Page 33

Fréttablaðið - 13.08.2009, Page 33
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2009 KYNNING ● AFGANSKIR FRAMBJÓÐENDUR Í KOSNINGABARÁTTU Á NETINU Þrátt fyrir fátækt, menntunarskort og rafmagnsleysi í Afganistan hika forsetaframbjóðendur landsins ekki við að heyja kosningabaráttu sína á netsíðum eins og Facebook, Twitter og YouTube. Þeir reyna hvað þeir geta að feta í fótspor Baracks Obama, forseta Bandaríkjanna, sem nýtti sér tæknina hvað mest þegar hann bauð sig fram til forseta, með góðum árangri. Forsetaframbjóðendurnir í Afgan- istan eru 41 talsins. Sumir birta stefnumál á Facebook, halda úti vef- síðum og blogga og enn aðrir setja inn kynningarmyndbönd á YouTube. Þar sem einungis tíu prósent afgönsku þjóðarinnar hafa aðgang að internetinu mætti leiða að því líkur að frambjóðendurnir hefðu ekki erindi sem erfiði en Luke Cholerton-Bozier hjá Red Narrative segir að jafn- vel þótt einungis fimm prósent þjóðarinnar hefðu aðgang að internetinu væru það engu að síður 1,5 milljónir mögulegra kjósenda í landi með þrjátíu milljón íbúa. - ve Afganskir forsetaframbjóðendur heyja kosningabaráttu sína á netsíðum eins og Facebook, Twitter og YouTube. NORDICPHOTOS/GETTY Í Tölvutek Borgartúni er að finna landsins mesta úrval af fartölvum, að sögn fram- kvæmdastjórans, Hafþórs Helgasonar. Tölvutek býður upp á vélar frá Packard Bell, Acer, Toshiba, HP, Sony, MSI, Asus og Lenovo. „Packard Bell, sem hafa verið mest seldu tölvurnar okkar alveg frá opnun, virðast samt vera skrefi á undan öðrum framleiðendum,“ segir Hafþór. „Öll nýja tæknin í far- tölvum í dag fer yfirleitt bara í dýrustu vélarnar, en hjá Pack- ard Bell er hún líka í minnstu og ódýrustu vélunum.“ Þar má nefna LED-baklýsingu í skjái sem gefur skýrari mynd, þynnri skjá og lengri rafhlöðuendingu og Draft-N-þráðlaust net, sem hefur þrefalt meiri drægni og sex sinnum meiri hraða en önnur. Svokallaðar fistölvur, á bil- inu eitt til 1,3 kíló að þyngd, hafa einnig notið vinsælda, en Hafþór segir að þar sé í raun nýr kaupendahópur á ferðinni. „Fólk er mikið að kaupa í viðbót við aðra fartölvu, ekki í staðinn fyrir hana. Þetta verður þá vél til að hafa í töskunni, í hanska- hólfinu eða taka með í flugvél- ina,“ útskýrir Hafþór og segir Asus bjóða upp á sérlega gott úrval af ýmsum gerðum slíkra fistölva. Rafhlöðuend- ing skiptir kaup- endur ei n n ig miklu máli, enda um hálfgerða bylt- ingu í þeim efnum að ræða. „Tölvurn- ar eru farnar úr há- mark fjögurra tíma endingu upp í átta til níu tíma í smávél- unum, sem eru hannað- ar með góða rafhlöðuend- ingu fyrir augum. Þær end- ast allan skóladaginn og eru þar að auki litlu þyngri en góð skólabók,“ segir hann og kímir. Nýju fartölvurnar frá Tos- hiba eru svo með skemmtilega öðruvísi vefmyndavél. „Hún er í raun aðgangsstýring,“ útskýr- ir Hafþór. „Vélin ber kennsl á mismunandi andlit. Notandinn brosir í vélina og hún hleypir honum þá að þeim svæðum sem hann hefur aðgang að í tölvunni. Börnin á heimilinu þurfa þannig ekki að muna nein lykilorð – bara brosa,“ segir hann. Fistölvur oft keyptar til viðbótar við fartölvur Hafþór Helgason, framkvæmdastjóri Tölvutek, segir töluvert um að fólk kaupi sér fistölvu til að eiga samhliða annarri fartölvu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Nýju Toshiba-tölvurnar þekkja brosin á eigendum sínum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.