Fréttablaðið - 13.08.2009, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 13.08.2009, Blaðsíða 46
30 13. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR menning@frettabladid.is „Ætli maður geri það ekki óvart, þegar maður heyrir eitthvað sem manni finnst spennandi. Er ekki eitt- hvað í öllum sem lætur eyrun stækka?“ segir Rósa Ómarsdóttir þegar hún er spurð út í eigin gægju- þörf. Ástæðan fyrir spurningunni er nýtt dansverk sem hún og fimm aðrir dansarar, fjórir fatahönnun- arnemar og einn tónsmíðanemi standa að og heitir Ég sé þig. Frumsýningin er í kvöld. „Við tókum fyrir forvitni og gægjuþörf og hvern- ig manneskjan er alltaf að fylgjast með öðrum og gægjast þó hún viðurkenni það ekki sjálf. Vinkona okkar var á kaffihúsi og heyrði skemmtilegar sam- ræður á milli pars sem var eiginlega að rífast. Gægjuþörfin í henni kom upp og hún skrifaði það niður. Við höfum notað þann texta mjög mikið.“ Um hvað var rifist? „Við erum ekki enn þá búnar að komast að því. Þetta er mjög óræður texti.“ Út frá samtalinu var farið að skoða þessa hneigð mannsins. „Við fórum líka inn á „peep- show“ og gægju-blæti og þaðan kom umgjörðin, fatahönnunarstelpurnar unnu mikið út frá því. Þetta er svolítið rokkuð sýning, tónlistin er mjög rokkuð og búningarnir.“ Þorbjörn Kolbrúnarson semur tón- listina. Verkefnið er ekki styrkt nema með húsnæði í Austurbæ. „Það er frábært tækifæri að fá að komast að þarna. Við erum bara að gera þetta sjálfar, eftir vinnu.“ Frumsýnt er í kvöld klukkan níu, en aðrar sýning- ar eru á sama tíma, 22. og 28. ágúst . Miðapantanir fara fram í gegnum artFart og kostar 1.000 krónur inn. - kbs Eyrun stækka á okkur öllum Á EIGIN VEGUM Rósa, Ásrún, Berglind, Kara, María og Þyri skoða gægjuþörf þína. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Allir helstu einleikir sem landinn hefur alið af sér seinasta árið safnast saman á Act Alone-einleikjahátíð- inni fyrir vestan um helg- ina. Hátíðin hefst á föstu- dagskvöld með tveimur einleikjum, brúðuleikhús- sýningunni Umbreytingu, ljóði á hreyfingu úr smiðju Bernds Ogrodnik og Here I Stand með Róbert Snorra- son í sviðsljósinu. Grímu- verðlaunasýning Grind- víska atvinnuleikhússins, 21 manns saknað, Ég heiti Rachel Corrie með Þóru Karítas Árnadóttur og Ódó á gjaldbuxunum með Þóreyju Sigþórsdóttur eru svo á boð- stólum á laugardagskvöld. Á sunnudag er svo boðið upp á sýningu á Gíslastöð- um í Haukadal í Dýrafirði um sögu einleikja á Íslandi. Þar heldur einnig Jón Jóns- son fyrirlestur um form- ið og Hörður Torfa heldur tónleika um kvöldið. Verður þetta í sjötta sinn sem hátíð- in er haldin á Vestfjörðum, en hátíðin er runnin undan rifjum Elfars Loga Hannes- sonar sem sér um Kómedíu- leikhúsið. Ókeypis er inn á alla viðburði. Leika einsamir á ný STILLIR STRENGINA Brúðumeist- arinn Bernd Ogrodnik sýnir á Act Alone. > Ekki missa af … Reykjavík Jazzhátíð sem hefst í dag með pompi og prakt í Norræna húsinu klukkan átta. Hátíðin er haldin í tuttugasta sinn og er vegleg með eindæmum. Þá er boðið upp á teiti fyrir djassgeggjara á Rósenberg upp úr tíu. 15.00 Hið árlega sumargrill Krafts verður haldið í dag. Kraftur er stuðnings- félag ungs fólks með krabbamein og aðstandenda þeirra og er grillið liður í starfi félagsins. Boðið verður upp á grillmat og skemmtiatriði í Nauthóls- víkinni en Villi Naglbítur skemmtir ásamt Sveppa. Dagskráin hefst klukkan þrjú og stendur til átta, en von er á skemmti- kröftunum um fjögur. Dagskrá Menningarnætur var kynnt í gær með til- heyrandi húllumhæi í gamla Zimsen-húsinu í Grófinni. Þrennir útitónleikar, nýr banki og húsin í bænum koma við sögu. Utanríkis-, sjávarútvegs-, landbún- aðar- og forsætisráðuneytið ætla að opna dyr sínar á Menningarnótt, en þema Menningarnætur í ár er húsin í bænum. Þá bjóða MR, indverska sendiráðið og Höfðatorg heim gest- um. Hægt verður að fara upp á nítj- ándu hæð turnsins og ferðast svo niður með bandi. Meðal atriða sem styrkt voru af Landsbankanum í ár má nefna endursköpun Fjallkonunnar í Hljómalind, en Fjallkonan var fyrsta kaffihúsið í Reykjavík sem rekið var af konu. Þá vekur athygli stofnun nýs banka, ValhallaBank. „Þetta er sem sagt erlendur banki sem stefnir að því að hjálpa Íslend- ingum upp úr aðstæðunum í dag og er með nýjar áherslur,“ segir Eva Rún Snorradóttir „útibússtjóri“, en fyrsta útibú bankans reis á Akur- eyri. Staðsetning bankans er dulin. „Hann er í lítilli verslunarmiðstöð, ég get ekki sagt meira,“ segir Aðal- heiður Árnadóttir, hinn umsjónar- maður bankans. Áhorfendur verða sóttir á Bæjarins bestu. Þá kynnir Menningarnótt Íslenska slagverktaka. „Þessir verktakar eru ekki að byggja hús. Þeir leika á húsin, húsin sjálf eru hljóðfærin og fer Karl Ágúst Úlfs- son fyrir þeim vaska hópi,“ segir Sif Gunnarsdóttir, formaður Höfuð- borgarstofu. Þá verður djassinn áberandi um borg og bæ. Tónleikar næturinnar verða ekki á Miklatúni þetta árið en boðið verð- ur upp á þrenna í þeirra stað. Eina í Hljómskálagarðinum, en þar troða upp Þursaflokkurinn, Páll Óskar, Papar og Ingó og Veðurguðirnir meðal annarra. Aðrir verða á Ing- ólfstorgi, en þar ber helst að nefna Hjálma og Baggalút. Tónleikarnir á Skólavörðustíg verða öllu rólegri, með Árstíðum og poppmessu. Þá verður menningardagskrá á Óðins- torgi til styrktar Grensásdeild, Á rás fyrir Grensás, en Edda Heið- rún Backman stendur fyrir henni. Alla dagskrána má finna á menn- ingarnott.is og hægt að fá hana beint í símann en dagskráin verður ekki prentuð í ár. kbs@frettabladid.is Nýr banki í boði ÚTI UM ALLT Djassgeggjarar þjóðarinnar láta sig ekki vanta á Menningarnótt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI THE OF THE VISION APOCALYPSE ÓRATORÍA EFTIR VIRGINIU -GENE RITTENHOUSE Miðasala: www.midi.is / í síma 552 7366 / við innganginn FRUMFLUTNINGUR Í EVRÓPU! í Langholtskirkju fimmtudag 13.ágúst kl. 20.00 Óperukórinn í Reykjavík The New England Youth Ensemble Stjórnandi Garðar Cortes Garðar Thór Cortes Fjóla Kristín Bragadóttir - Ingibjörg Ólafsdóttir Hallveig Guðmundsdóttir - Aron Axel Cortes Bragi Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.