Fréttablaðið - 13.08.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 13.08.2009, Blaðsíða 48
32 13. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Tónlistarheimurinn er að ganga í gegnum skrýtna, en að mörgu leyti spennandi, tíma þessi misserin. Þó að enn seljist mest af tón- list á geisladiskum í heiminum þá fer sú sala ört minnkandi og róm- aðar stórverslanir vestan hafs og austan leggja upp laupana hver á fætur annarri, nú síðast Virgin Megastore í New York. Á móti er sala á stafrænni tónlist að aukast og ýmis önnur form tónlistar fá nú meiri athygli en áður. Áhuginn á vínylplötum hefur stóraukist og meira að segja gamla góða kassettan virðist vera að fá smá uppreisn æru. Nýlega hitti ég þýskan útgefanda og safnara sem hafði keypt ein- tak af íslensku safnspólunni Rúllustiganum í Grikklandi og var mjög spenntur fyrir öllum gömlu íslensku neðanjarðarsnældunum. Á níunda áratugnum og fram á þann tíunda var kassettan aðalútgáfuformið í grasrótinni hér á landi og safnsnældur á borð við SNARL, Skúringar og Strump voru eiturferskar. Og nokkrar frábærar plötur komu ein- göngu út á þessu formi. Mosi frændi, sem kemur fram í fyrsta sinn í tuttugu ár á Grand rokk í kvöld, gaf til dæmis árið 1987 út hina stórskemmtilegu Suzy Creamcheese for President og sveitir eins og Oxzmá, Fan Houtens Kókó, Muzzolini og Texas Jesús gerðu sömuleiðis fínar spólur. En það er ekki bara aukinn áhugi fyrir gömlu snældunum. Það er líka verið að búa til nýjar. Hinn geðþekki hávaðaseggur AMFJ (Aðal- steinn Mother Fucker Jörundsson) var til að mynda að senda frá sér spóluna Ítemhljóð og Veinan. Á hlið A eru sex verk tekin upp í hljóð- veri, en á hlið B eru meðal annars tónleikar frá Café Amsterdam 30. desember 2008. Þeir sem hafa séð AMFJ spila vita að þar er ekkert gefið eftir. Upplýsingar um útgáfuna má finna á www.falkworld.net. Guð blessi kassettuna NOSTALGÍA Framhliðin á snældu Mosa frænda, Suzy Creamcheese for President, er eftirminnileg, en endurkomu- tónleikar sveitarinnar eru á Grand rokk í kvöld. > Í SPILARANUM Brendan Benson – My Old Familiar Friend Eiki Einars - Ég er með hugmynd Grizzly Bear - Veckatimest Andrés Þór - Blik Egill Sæbjörnsson - Egill S Feðgarnir Óskar og Pan Thorarensen sem skipa rafdúett- inn Stereo Hypnosis eru á leiðinni í tónleikaferð um Eystra- saltslöndin 1. september. Þar munu þeir spila á tónlistarhá- tíðum í Eistlandi, Lettlandi og Litháen. „Þetta er hrikalega spennandi og það fyndna við þetta er að við erum að fara í fyrsta skipti saman til útlanda,“ segir Pan. „Þetta verður bara lúxusferð. Það er búið að redda öllu fyrir okkur, bæði gistingu og ferðum á milli þannig að þetta verður skemmti- legt.“ Ein hátíðin sem þeir fara á nefnist Eclectica/Avant Garde og er alþjóðleg raftónlistarhátíð sem er haldin árlega í Eist- landi. Á meðal þeirra sem hafa komið þar fram eru Trent- emöller, Röyksopp og The Knife. Í fyrra var tónlistar- maðurinn Brian Eno, sem hefur unnið mikið með U2, heiðursgestur hátíðarinnar. Áður en feðgarnir fara út halda þeir útgáfutónleika á laugardaginn í félagsheimilinu Röst á Hellissandi og eru gestir hvattir til að hafa tjaldið og lopapeysuna með í för. Tilefnið er útgáfa plötunnar Hypnogia sem er væntanleg í lok ágúst. Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og frítt er inn. - fb Feðgar í tónleikaferð við Eystrasalt STEREO HYPNOSIS Feðgarnir halda útgáfutónleika á Hellissandi á laugar- daginn. Laugardaginn 8. ágúst var eitt ár liðið síðan síðustu stórtónleikar með erlendum flytjanda voru haldnir hér á landi. Þá steig gítargoðið Eric Clapton á svið Egils- hallar fyrir framan þrettán þúsund áhorfendur. Tónleikarnir eru þeir næst- stærstu sem hafa verið haldnir hér á landi með erlendum flytj- anda. Aðeins rokksveitin Metall- ica hefur laðað að sér fleiri áhorf- endur, eða átján þúsund talsins í Egilshöllinni árið 2004. Grímur Atlason skipulagði Clapton-tónleikana og þrátt fyrir að miðarnir hafi nánast selst upp fór hann afar illa út úr þeim fjár- hagslega. Ástæðan var sífellt lækkandi gengi krónunnar, enda voru þeir haldnir aðeins tveim- ur mánuðum fyrir bankahrunið. Síðan þá hafa engir erlendir stór- tónleikar verið haldnir hérlendis og algjörlega óvíst hvenær af því verður næst, enda kreppan ennþá í algleymingi. „Ísland er náttúrulega rugl umhverfi fyrir svona vettvang. Ég gerði „díl“ við Eric Clap- ton í október 2007. Þá var geng- ið þannig að einn dollari var 58 krónur. Ég borgaði fyrsta helm- ing greiðslunnar og þá var geng- ið einn dollari á 73 krónur. Þegar ég borgaði síðari helminginn var hann á 83 krónur. Það var sama hversu marga miða ég seldi. Þetta fór til andskotans og ég kom út í stórtapi,“ segir Grímur. „Ég gerði „díl“ um flugvél sem ég þurfti að leigja og gerði það í febrúar. Þá kostaði hún mig rétt rúmar fimm milljónir. Þegar ég greiddi hana borgaði ég tæpar tíu. Fimm vikum eftir að ég byrjaði að selja miða féll gengið um þrjátíu eða fjörutíu prósent og það var alveg hrikalegt fall.“ Þrátt fyrir að hafa farið illa út úr tónleikunum er Grímur stolt- ur af þeim, enda heppnuðust þeir mjög vel. „Þetta var ofboðslega flott gigg. Þetta var alvöruband, trommuleikarinn hans McCartn- eys og rosalegur mannskap- ur. En þetta var eiginlega „kata- Enginn í spor Erics Clapton SÍÐUSTU STÓRTÓNLEIKARNIR? Breska goðsögnin Eric Clapton spilaði í Egilshöll fyrir framan rúmlega þrettán þúsund manns. Sveitarstjór- inn Grímur Atlason tapaði stórfé á Clapton- tónleikunum. Fyrirtækið Concert skipulagði tón- leika Bobs Dylan og James Blunt í fyrra. „Við sömdum um þetta áður en gengið hrundi og þegar kom að því að borga var upphæðin búin að hækka alveg svakalega,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson. „Við kom- umst þokkalega heilir frá þessu en í raun og veru töpuðum við á báðum tónleikunum, það var ekk- ert annað hægt.“ Ísleifur segir að útkoman hafi verið svekkjandi enda var búið að leggja mikla vinnu í að fá lista- mennina til landsins. „Ég var búinn að eltast við Dylan í tvö til þrjú ár og loksins þegar það nást samningar þá hrynur gengið svona svakalega,“ segir hann. „Við höfum ekki hreyft okkur síðan og ástand- ið hefur bara hríðversnað eftir þetta. Óvissan er algjör.“ Björgvin Rúnarsson hjá 2B Company flutti White- snake til landsins. „Frá því að við skrifuðum undir samning við þá hækkuðu tónleikarn- ir um 60 til 70 prósent. Maður var kominn í svitakast áður en tón- leikarnir byrjuðu,“ segir Björgvin, sem heldur ekki fleiri erlenda tónleika á næstunni. „Maður þorir ekki að flytja inn Kókópöffs- pakka núna.“ Guðbjartur Finnbjörnsson seg- ist ekki hafa tapað mikið á Paul Simon-tónleikunum því hann náði að endursemja við hann mánuði áður en hann kom til landsins. „Hann lækkaði sig en þetta var alveg á mörk- unum. Það var ekki hagnaður en miðað við upphaflegu töluna þegar ég var að semja hefði verið mikið tap.“ - fb Flytja ekki inn Kókópöffs-pakka ÍSLEIFUR ÞÓRHALLSSON Eins og aðrir tónleikahaldar- ar tapaði Concert á tónleikum Dylans og Blunts í fyrra. HVAÐ ER FRAMUNDAN? Jethro Tull í Háskólabíói 11. og 12. september. Raggi Bjarna í Höllinni 26. septemb Iceland Airwaves 14.-18. október. Kristján Jóhannsson í Höllinni 17. október stróf“. Ég get ekki alveg skilið það þegar menn eru í einhverri þjóðerniskennd að tala um íslenska krónu. Það er alveg hræðilegur gjaldmiðill. Stöðugleikinn er eng- inn og maður veit ekkert. Öll plön eru bara út í bláinn.“ Fimm aðrir stórtónleikar voru haldnir í fyrra, allir í Laugardals- höllinni, og var tap á þeim öllum. Fyrst steig á svið John Fogerty 21. maí, tónleikar sem Grímur skipu- lagði einnig, síðan Bob Dylan 26. maí, því næst Whitesnake 10. júní og tveimur dögum síðar tróð James Blunt upp. Loks mætti hingað Paul Simon 1. júlí áður en Clapton lokaði hringnum í ágúst. Ljóst er að miðað við ástandið hérlendis gætu íslenskir tónlistar- áhugamenn þurft að bíða í það minnsta í ár í viðbót eftir því að berja erlendar stjörnur augum í Egils- eða Laugardalshöll. Eftir offramboð síðustu ára þar sem hverjir tónleikarnir ráku aðra á okkar litla markaði er hvíldin kannski bara af hinu góða. „Stað- an er gasaleg,“ segir Grímur. „Við súpum seyðið af því að það voru haldin endalaus gigg sem voru í boði einhverra banka. Það var allt- af talað um að það væri uppselt en þá var helmingurinn af miðun- um borgaður af einhverjum bönk- um. Þessi tónleikabransi er orð- inn verulega skaddaður af þessu rugli.“ freyr@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Starfsmöguleikar: Innkaupastjóri Útlitsráðgjafi Stílisti Verslunarstjóri 1. Önn 2. Önn Fatastíll Fatasamsetning Textill UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533-5101 Erna, stílisti Ég hef unnið við förðun á Stöð 2 í 6 ár, þar á meðal við förðun keppenda í Idol og annarra sjónvarpsþátta hjá 365. Einnig vinn ég við auglýsingar, mynbönd og myndatökur. Það er óhætt að segja að námið hefur hjálpað mér mikið í starfi mínu í förðun og stíliseringu. Skjöldur Mio, tískuráðgjafi Ég taldi mig vita flest allt um tísku og útlit áður en ég fór í skólann. En annað kom á daginn. Ég hef lært heilmikið um fatasamsetningu, textil, litafræði, líkamsbyggingu og flest allt um útlit. Námið nýtist mér frábærlega í því sem ég er að gera. Ú T L I S T - O G F Ö R Ð U N A R S K Ó L I w w w . u t l i t . i s VILTU VERÐA STÍLISTI? The Academy of Colour and Style er skóli sem kennir útlitsráðgjöf. Námið byggir á helstu atriðum útlitshönnunar og er meðal annars tekið fyrir litgreining, fatastíll og textill. Eftir nám fá nemendur diplóma í útlitsráðgjöf (fashion consultant). Starfsmöguleikar eftir nám eru margir og spennandi og geta nýst á ýmsum sviðum og atvinnugreinum. Hver önn tekur þrjá mánuði og fylgja öll kennslugögn með náminu. Kennsla fer fram í Tækniskólanum einu sinni í viku frá 18-22. Litgreining Förðun út frá litgreiningu Litasamsetning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.