Fréttablaðið - 13.08.2009, Side 56
40 13. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabla-
FÓTBOLTI Enska dagblaðið The
Guardian heldur því fram að
Eiður Smári Guðjohnsen, leik-
maður íslenska landsliðsins, hafi
undanfarnar vikur átt í viðræð-
um við forráðamenn West Ham.
Blaðið segir að ákvörðun-
in hvíli að stærstum hluta hjá
Eiði Smára sjálfum en að ýmis
persónu bundin mál kunni að
hafa áhrif á hans ákvörðun.
Eiður Smári á eitt ár eftir af
samningi sínum við Barcelona
á Spáni en The Guardian segir
að til greina komi að lána Eið til
West Ham á næstkomandi tíma-
bili.
Félagið er einnig sagt hafa
áhuga á Ítalanum Luca Toni sem
leikur með FC Bayern. - esá
Enskir fjölmiðlar um Eið Smára Guðjohnsen:
West Ham á eftir Eiði
FÓTBOLTI Góðar líkur eru á því að
David Beckham snúi aftur til AC
Milan á Ítalíu þegar félagaskipta-
glugginn verður opnaður um ára-
mótin. Enskir fjölmiðlar greindu
frá því í gær að Silvio Berlusconi,
forseti AC Milan, væri reiðu búinn
í viðræður við forráðamenn LA
Galaxy um að endurnýja láns-
samninginn við Beckham.
Hann lék með AC Milan frá og
með síðustu áramótum. Upphaf-
lega átti lánssamningurinn að
renna út í upphafi mars en hann
fékk að klára tímabilið á Ítalíu
áður en hann sneri aftur til Banda-
ríkjanna.
Þar hefur honum verið misjafn-
lega vel tekið þar sem Beckham
hefur lýst því yfir að hann vilji
fara frá LA Galaxy.
„Það er enginn samningur á
borðinu en forráðamenn Milan
hafa gert okkur ljóst að þeir vilja
fá David aftur,“ sagði tals maður
Beckhams í enskum fjölmiðlum í
gær. „Enn sem komið er eru við-
ræður enn á frumstigi á
milli Milan og Galaxy.“
Það gæti vegið þungt
í þeirri ákvörðun Beck-
ham að leika í Evrópu að
Fabio Capello, landsliðs-
þjálfari Englands, sagði
að Beckham yrði að spila
í Evrópu yfir vetrartím-
ann til að eiga möguleika
á að komast í HM-lands-
liðshóp Englands.
Úrslita-
keppni HM
fer fram
í Suður-
Afríku á
næsta ári.
„Ég hef
áður sagt
að ef David
spilar í Evr-
ó p u mu n
ha nn fa ra
með okkur til
Suður-Afríku.
Ef hann spilar
ekkert á vetrarmánuðunum er
það hins vegar ómögulegt,“
sagði Capello.
Deildarkeppnin í Banda-
ríkjunum hófst í apríl
síðastliðnum og lýkur í
október. LA Galaxy er sem
stendur í öðru sæti Vestur-
deildarinnar og á góðri leið
með að tryggja sér sæti í
úrslitakeppninni. - esá
David Beckham mun líklega spila í Evrópu eftir áramót:
AC Milan vill Beckham aftur
MEÐ AC MILAN
Ekki er ólíklegt
að David
Beckham
snúi aftur til
Ítalíu.
NORDIC PHOTOS/
GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Fyrirliði Chelsea, John
Terry, segist hafa verið upp með
sér yfir því að Manchester City
hafi viljað kaupa sig. Aftur á
móti hafði hann engan áhuga á að
ganga í raðir félagsins.
„Ef City hefði freistað mín
hefði ég farið til félagsins,“ sagði
Terry.
„Ég var upp með mér yfir
áhuganum en þeir buðu hátt í
mig; 28 milljónir punda. Ég veit
samt ekki hvað þeir hefðu boðið
mér í laun. Peter Kenyon (yfir-
maður knattspyrnumála hjá Chel-
sea) hringdi þá í mig og spurði
hvort ég hefði áhuga á að fara en
ég sagði nei.“
Þrátt fyrir þessi orð lét Terry
ekkert hafa eftir sér meðan
orð rómurinn stóð sem hæst.
Tóku því margir sem svo að
hann væri alvarlega að íhuga
breytingu. Svo virðist ekki vera
samkvæmt þessum orðum varnar-
mannsins. - hbg
John Terry:
Hafði aldrei
áhuga á City
JOHN TERRY Er sáttur hjá Chelsea.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
> Mættur aftur til æfinga hjá KR
Prince Rajcomar er mættur aftur til æfinga hjá KR eftir
að hafa verið til reynslu hjá enska C-deildarliðinu Milton
Keynes Dons. Þar fékk hann ekki samning
og er því aftur kominn hingað til lands. Logi
Ólafsson, þjálfari KR, sagði að vel gæti verið
að Prince færi aftur utan til að æfa með
öðru félagi en það væri enn óljóst. Hann
hefur skorað tvö mörk í fjórtán deildar-
leikjum með KR til þessa.
Knattspyrnudeild Álftaness
auglýsir eftir þjálfurum fyrir
komandi tímabil.
Um er ræða þjálfun yngri fl okka félagsins,
bæði karla og kvenna.
Áhugasamir geta haft samband við Stefán,
formann knattspyrnudeildar í gegnum
netfangið knd@umfa.is
Umsóknarfrestur er til 21.ágúst.
Landsliðsþjálfarinn Eyjólfur Sverrisson stýrði U-21 árs landsliði
Íslands í sínum fyrsta „alvöru“ leik eftir að hafa tekið við liðinu
að nýju í gærdag þegar Ísland tapaði 0-2 gegn Tékklandi í
fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2011. Eyjólfur kveðst
vera bjartsýnn á framhaldið þrátt fyrir tap og hafa séð margt
jákvætt í leik íslenska liðsins.
„Ég er frekar súr með að fá ekkert út úr þessum leik því við
áttum frábæran fyrri hálfleik þar sem menn voru að halda
boltanum vel innan liðsins og náðu að byggja upp
nokkrar góðar sóknir. Við fengum í raun tvö dauðafæri
sem við hefðum átt að nýta og það kom svo í bakið
á okkur í seinni hálfleik,“ segir Eyjólfur, sem var
ósáttur við hvernig strákarnir hans spiluðu í síðari
hálfleik.
„Við áttum allt of margar feilsendingar í seinni
hálfleik og vorum ekki með einbeitinguna í
lagi. Við áttum smá kafla sem var í lagi en þess
fyrir utan vorum við í miklum vandræðum. Við
vorum ekki nógu nálægt leikmönnunum og
vorum bara í eintómum eltingarleik og það var mjög erfitt. Við
þurfum að bæta þetta og ég er sannfærður um að við eigum
eftir að draga mikinn lærdóm af þessum leik. Það er mikill
efniviður í þessu liði og þarna eru margir leikmenn sem eiga
eftir að spila fyrir A-landsliðið á næstu árum. Þessir strákar
eru óhræddir við að halda boltanum innan liðsins og það er
jákvætt,“ segir Eyjólfur.
Eyjólfur tekur þó ekkert frá Tékkunum, sem sýndu á
köflum í leiknum hversu þeir eru megnugir en ljóst er
að þeir eru ásamt Þjóðverjum með sterkustu lið
riðilsins á pappírunum.
„Tékkar eru með mjög sterkt lið og misstu
bara tvo leikmenn úr síðustu keppni U-21 árs
landsliða þannig að þeir eru með stráka sem
eru búnir að spila lengi saman og eru öflugir.
Þjóðverjar eru vitanlega sterkir líka en hin liðin
[Norður-Írland og San Marínó] eru smá spurn-
ingarmerki og ég á eftir að sjá spólu með þeim,“
segir Eyjólfur að lokum.
EYJÓLFUR SVERRISSON: BJARTSÝNN ÞRÁTT FYRIR TAP Í FYRSTA LEIK U-21 ÁRS LANDSLIÐSINS Í UNDANKEPPNI EM 2011
Er nú frekar súr að fá ekkert úr þessum leik
FÓTBOLTI Ísland tapaði 0-2 fyrir
Tékklandi í undankeppni U-21 árs
landsliða fyrir Evrópumótið 2011
á KR-vellinum í gærdag. Leikur
íslenska liðsins var kaflaskipt-
ur þar sem liðið spilaði vel í fyrri
hálfleik en náði sér ekki á strik
í síðari hálfleik gegn sterku liði
Tékka.
Eftir erfiða byrjun og þunga
pressu frá Tékkum náðu íslensku
strákarnir að vinna sig vel inn í
leikinn og voru síst lakari aðilinn
í fyrri hálfleik. Ánægjulegt var að
sjá hversu öruggir og yfirvegaðir
íslensku strákarnir voru á boltan-
um og hversu óhræddir þeir voru
að halda honum innan liðs síns.
það vantaði aðeins að reka smiðs-
höggið á sóknirnar; Birkir Bjarna-
son og Bjarni Þór Viðarsson kom-
ust báðir í góð marktækifæri en
inn vildi boltinn ekki. Tékkarnir
áttu vissulega sín færi líka en þau
skot sem hittu rammann átti Óskar
Péturs son ekki í teljandi erfiðleik-
um með í markinu. Staðan var
markalaus þegar flautað var til
hálfleiks.
Íslensku strákarnir gáfu eftir
Tékkar byrjuðu seinni hálfleikinn
af miklum krafti, varnarmenn
íslenska liðsins áttu í vök að verj-
ast og miðverðirnir Hólmar Örn
Eyjólfsson og Skúli Jón Friðgeirs-
son höfðu í nógu að snúast.
Varnarmenn Íslands náðu þó
ekki að koma í veg fyrir að Tékk-
ar skoruðu á 58. mínútu en þar var
Michael Rabusic að verki.
Óskar náði þá ekki að halda
fyrir gjöf utan af kanti og Rabusic
átti skot í slána og inn eftir klafs í
vítateignum. Tékkar héldu áfram
að ógna eftir markið og voru lík-
legri til þess að bæta við en Íslend-
ingar að jafna leikinn.
Annað mark Tékka kom svo á
79. mínútu þegar Andres Celustka
skoraði með föstu skoti eftir vel
útfærða aukaspyrnu.
Íslendingar reyndu hvað þeir
gátu til þess að minnka muninn en
sóknaraðgerðir þeirra voru ekki
nægilega beittar og fínar send-
ingar liðsins í fyrri hálfleik voru
því miður ekki sjáanlegar í þeim
síðari. Sigur Tékka var því í raun
aldrei í hættu eftir seinna markið
en þrátt fyrir tap í fyrsta leik geta
íslensku strákarnir tekið margt
jákvætt út úr leiknum. Það býr
margt í þessu liði og ekki spurn-
ing hvort heldur hvenær liðið nær
að halda haus í níutíu mínútur til
þess að fara að hala inn stig í riðl-
inum.
Ásamt Íslandi og Tékklandi í 5.
riðli undankeppninnar eru Þýska-
land, Norður-Írland og San Mar-
ínó. Tékkar eru nú búnir með tvo
leiki í riðlinum en þeir unnu 0-8
stórsigur á San Marínó í fyrsta leik
sínum. Íslendingar mæta Norður-
Írum í öðrum leik sínum í riðlinum
eftir tæpan mánuð en leikið verður
ytra. omar@frettabladid.is
Jákvæðir punktar þrátt fyrir tap
U-21 árs landslið karla í fótbolta tapaði 0-2 fyrir Tékkum í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2011 í gær.
Íslensku strákarnir léku á köflum vel í fyrri hálfleik en misstu dampinn í síðari hálfleik og því fór sem fór.
EFNILEGUR Birkir Bjarnason er hér í harðri baráttu við varnarmenn Tékka en hann átti nokkra góða spretti, sérstaklega í fyrri
hálfleik, í leik liðanna í undankeppni EM 2011 á KR-vellinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR