Fréttablaðið - 13.08.2009, Page 58

Fréttablaðið - 13.08.2009, Page 58
42 13. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR ÍSLAND (4-5-1) Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður. 8 Besti maður íslenska liðsins eins og oft áður. Varði nokkrum sinnum glæsilega og steig í raun vart feilspor í markinu. Gat ekkert gert við marki Slóvakanna. Grétar Rafn Steinsson, hægri bakvörður. 4 Óvenju daufur. Átti nokkra spretti í fyrri hálfleik en virtist vera að spara sig í þeim síðari þegar yfirferðin var nánast engin á honum. Sölvi Geir Ottesen, miðvörður. 6 Spilaði aðeins í 50 mínútur en skilaði góðu verki. Var traustur og hlýtur að hafa farið af velli vegna meiðsla. Kristján Örn Sigurðsson, miðvörður. 4 Óvenju slakur leikur hjá honum. Hélt línu illa og spilaði Slóvakanna nokkrum sinnum réttstæða, seldi sig og átti slakar sendingar. Bætti þó fyrir það með markinu. Indriði Sigurðsson, vinstri bakvörður. 7 Flottur leikur hjá Indriða. Stóð vaktina í vörninni vel og lét mikið til sín taka í sókninni í síðari hálfleik. Sívinnandi og með betri mönnum. Brynjar Björn Gunnarsson, tengiliður. 4 Virkaði þungur og ólíkur sjálfum sér. Barðist eins og venjulega en það skilaði óvenju litlu að þessu sinni. Fór svo í miðvörðinn þar sem hann gerði skelfileg mistök sem hefðu getað kostað Ísland sigurinn. Ólafur Ingi Skúlason, tengiliður. 4 Afar slakur framan af en óx ásmegin eftir því sem leið á leikinn. Ekki mjög áberandi og virðist í lítilli leikæfingu. Eiður Smári Guðjohnsen, tengiliður 5 Átti nokkra spretti en afar lítið kom út úr hans aðgerðum. Hvarf þess á milli sem voru vonbrigði þar sem hann var aldrei þessu vant að leika þá stöðu sem hentar honum og liðinu best. Emil Hallfreðsson, vinstri kantmaður. 5 Lifnaði við í síðari hálfleik. Sendingarnar samt ekkert til að hrópa húrra fyrir og oft of lengi að koma boltanum frá sér. Pálmi Rafn Pálmason, hægri kantmaður. 5 Slakur framan af en óx ásmegin eins og flestum leikmönnum liðsins. Barðist vel og gaf sitt. Átti horn- spyrnuna sem skilaði íslenska markinu. Heiðar Helguson, framherji. 6 Eini útileikmaður Íslands með meðvitund í fyrri hálfleik. Vann vel úr sínu og átti skalla og skot að marki. Dró af honum í síðari hálfleik og hefði mátt fara fyrr af velli. Varamenn: Aron Einar Gunnarsson kom inn á fyrir Sölva Geir á 50. mínútu. 7 Kom með mikið líf í íslenska liðið sem náði þess utan tökum á miðjunni með hans innkomu. Gekk þó oft illa að losa bolta en vann þá ófáa í staðinn. Stefán Gíslason kom inn á fyrir Eið Smára á 77. mínútu. - Garðar Jóhansson kom inn á fyrir Heiðar Helguson á 86. mínútu. - Atli Viðar Björnsson kom inn á fyrir Pálma Rafn á 89. mínútu. - FRAMMISTAÐA LEIKMANNA Laugardalsvöllur, áhorf. 5.099 Ísland Slóvakía TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 10–12 (4–6) Varin skot Gunnleifur 5 – Jan 3 Horn 6-7 Aukaspyrnur fengnar 9-10 Rangstöður 5-3 0-1 Robert Vittek (35.) 1-1 Kristján Örn Sigurðsson (59.) 1-1 Lars Christoffersen (7) Undankeppni HM 2010: 3. RIÐILL: Slóvenía-San Marínó 5-0 4. RIÐILL: Aserbaijan-Þýskaland 0-2 0-1 Bastian Schweinsteiger (12.), 0-2 Miroslav Klose (54.). 6. RIÐILL: Hvíta-Rússland - Króatía 1-3 0-1 Ivica Olic (27.), 0-2 Eduardo da Silva (69.), 1-2 Dmitry Verkhovtsov (81.), 1-3 Ivica Olic (83.). 7. RIÐILL: Færeyjar-Frakkland 0-1 0-1 Andre-Pierre Gignac (42.). 9. RIÐILL: Noregur-Skotland 4-0 1-0 John Arne Riise (35.), 2-0 Morten Gamst Pedersen (45.), 3-0 Erik Huseklepp (60.), 4-0 Pedersen (90.). STAÐAN: Holland 7 7 0 0 16-2 21 Makedónía 6 2 1 3 4-7 7 Skotland 6 2 1 3 4-10 7 Noregur 6 1 3 2 6-5 6 Ísland 7 1 1 5 6-12 4 Vináttulandsleikir: Rússland-Argentína 2-3 1-0 I. Semshov (18.), 1-1 S. Aguero (45.), 1-2 L. Lopez (46.), 1-3 J. Dátolo (59.), 2-3 R. Pavly- uchenko (79.). Tékkland-Belgía 3-1 0-1 J. Vertonghen (12.), 1-1 R. Hubnik (27.), 2-1 M. Baros (41.), 3-1 M. Kadlec (78.). Eistland-Brasilía 0-1 0-1 L. Fabiano (45.). Búlgaría-Lettland 1-0 Ungverjaland-Rúmenía 0-1 Svíþjóð-Finnland 1-0 1-0 J. Elmander (42.). Úkraína-Tyrkland 0-3 0-1 T. Sanli (58.), 0-2 S. Cetin (63.), 0-3 H. Altintop (66.). Túnis-Fílabeinsströndin 0-0 Danmörk-Chile 1-2 0-1 E. Paredes (61.), 1-1 L. Schöne (63.), 1-2 A. Sanchez (69.). Írland-Ástralía 0-3 0-1 T. Cahill (38.), 0-2 T. Cahill (44.), 0-3 D. Carney (90.). Liechtenstein-Portúgal 0-3 0-1 H. Almeida (16.), 0-2 R. Meireles (24.), 0-3 H. Almeida (28.). Svartfjallaland-Wales 2-1 1-0 Jovetic (32.), 2-0 R. Djalovic (45.), 2-1 S. Vokes (51.). Pólland-Grikkland 2-0 Holland-England 2-2 1-0 D. Kuyt (10.), 2-0 R. van der Vaart (38.), 2-1 J. Defoe (49.), 2-2 J. Defoe (77.). Makedónía-Spánn 2-3 1-0, 2-0 G. Pandev (8., 33.), 2-1 F. Torres (51.), 2-2 G. Pique (54.), 2-3 A. Riera (56.). ÚRSLIT FÓTBOLTI Norðmenn létu Skota finna illilega fyrir því á Ullevaal- leikvanginum í Ósló í gærkvöldi þegar þeir unnu 4-0 en gestirnir misstu Gary Caldwell út af með rautt spjald á 33. mínútu í stöð- unni 0-0. Sigur Norðmanna þýðir að Íslendingar eru nú komnir í botnsæti 9. riðils. Það var ekki langt að bíða þess að Norðmenn nýttu sér liðsmuninn eftir að Caldwell fór út af þar sem John Arne Riise skoraði strax með skoti úr aukaspyrnu. Morten Gamst Pedersen bætti svo við tveimur mörkum og Erik Huseklepp skoraði eitt mark áður en yfir lauk og úrslitin mikil von- brigði fyrir Skota sem voru að von- ast til þess að koma sér í ákjósan- lega stöðu til þess að komast upp úr riðlinum ásamt Hollendingum. Landsliðsþjálfar- inn George Burnley hjá Skotum er þó sannfærðum um að lið hans geti náð markmiðum sínum. „Þessi leikur var óneitanlega mikil vonbrigði fyrir okkur og það má segja að allt sem gat farið úrskeiðis hafi farið úrskeiðis hjá okkur. Þetta er samt enn í okkar höndum því við eigum tvo heima- leiki eftir og ef við vinnum þá munum við enda í öðru sætinu í riðlinum og komumst í umspilið,“ segir Burnley. Baráttan um annað sætið stend- ur á milli Skotlands og Makedóníu en liðin mætast einmitt á Hamp- den Park-leikvanginum í Glasgow í byrjun næsta mánaðar. - óþ Norðmenn unnu sinn fyrsta sigur í 9. riðli undankeppni HM 2010 í gærkvöldi: Íslendingar verma botnsætið FAGN John Arne Riise fagnar marki sínu gegn Skotlandi í gær. NORDIC PHOTOS/AFP LOKALEIKIR 9. RIÐILS Ísland-Noregur 5. sept. Skotland-Makedónía 5. sept. Noregur-Makedónía 9. sept. Skotland-Holland 9. sept. FÓTBOLTI Ísland og Slóvakía skildu jöfn, 1-1, í vináttulandsleik í Laugardalnum. Hálfleikirnir voru eins og svart og hvítt hjá íslenska liðinu. Fyrri hálfleikur í Laugardalnum í gær er með þeim leiðinlegri sem hafa verið spilaðir þar lengi. Bæði lið spiluðu hægan og hundleiðin- legan göngubolta. Áhugi beggja liða á verkefninu var ekki mikill og leikmönnum virtist leiðast að þurfa að vera á vellinum. Andleysið var algjört hjá íslenska liðinu. Uppspilið hægt, fáir leikmenn að taka þátt í sóknar- aðgerðum og íslenska liðið skapaði sér ekki eitt þokkalegt marktæki- færi allan hálfleikinn. Eina lífs- markið í liðinu var hjá Gunnleifi í markinu og svo hjá Heiðari í sókn- inni sem vann ágætlega úr því sem hann fékk. Mótspyrnan frá Slóvökum var ekkert sérstaklega mikil enda það lið ekki skipað neinum snilling- um. Þeirra sóknaraðgerðir voru þó beittari og Gunnleifur kom íslenska liðinu tvívegis til bjargar með góðri markvörslu. Hann réð þó ekki við þrumufleyg Robert Vit- tek á 35. mínútu. Íslenska liðið tapaði þá boltanum á eigin vallarhelmingi, hann end- aði hjá Vittek sem lét vaða utan teigs og boltinn söng niðri í horn- inu. Lítið sem Gunnleifur gat gert við því. 0-1 í hálfleik sem var sann- gjörn staða enda Slóvakar skárri þó svo þeir hafi líka verið slakir. Allt annað var að sjá íslenska liðið í síðari hálfleik. Liðið fór allt í einu að berjast og láta finna fyrir sér. Það skilaði sér í því að íslenska liðið náði tökum á leikn- um og jafnaði með skalla Kristj- áns eftir hornspyrnu Pálma. Liðið hefði mátt láta hné fylgja kviði en þrátt fyrir ágætar sóknarlot- ur gekk það ekki upp. Það vantaði slagkraftinn til þess að klára sókn- irnar og jafntefli því niðurstaðan. Íslenska liðið hefði einnig getað tapað leiknum en Gunnleifur kom til bjargar. Engu að síður jákvætt hversu vel liðið hélt bolta í síðari hálfleik og reyndi að sækja. Það var mikil framför frá síðustu leikjum. Það er aftur á móti algjörlega óafsak- anlegt að liðið skuli ekki mæta til leiks fyrr en í síðari hálfleik. And- og áhugaleysið í fyrri hálfleik var leikmönnum til skammar og þjálf- arar liðsins verða að spyrja sig að því af hverju menn mættu ekki til- búnari en raun bar vitni. Til hvers eru menn að mæta í vináttulandsleiki ef þeir nenna ekki að spila? Þá má allt eins sleppa því að spila. Ólafur þjálfari vildi mjög augljóslega fá sigur í leiknum enda skipti hann vart fyrr en undir lokin á meðan Slóvakar skiptu grimmt. Sigurinn fékk hann ekki og hann átti íslenska liðið í raun ekki skilið fyrir að nenna aðeins að spila í 45 mínútur. henry@frettabladid.is Hysjuðu upp um sig í síðari hálfleik Eftir arfaslakan fyrri hálfleik girti íslenska landsliðið sig í brók gegn Slóvökum og tryggði sér jafntefli í vináttulandsleik í gær. Það var varnarmaðurinn Kristján Örn Sigurðsson sem skoraði jöfnunarmarkið. KAFLASKIPT Allt annað var að sjá leik íslenska liðsins í síðari hálfleik eftir slaka frammistöðu í fyrri hálfleik. Hér er Eiður Smári Guðjohnsen á fleygiferð á Laugardalsvelli í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson þjálf- ari Íslands var nokkuð sáttur þegar Fréttablaðið náði tali af honum eftir leik og sagði að íslenska liðið hefði jafnvel getað staðið uppi sem sigurvegari. „Já, ég er sáttur við leik liðsins. Mér fannst við spila vel í dag, ná jafntefli gegn sterkri þjóð og vera jafnvel nær því að vinna en þeir. Við vorum reyndar mjög heppnir í restina þegar þeir sluppu í gegn en heilt yfir er ég mjög sáttur við leik liðsins,“ sagði Ólafur. Íslenska liðið byrjaði leikinn í gærkvöldi frekar rólega og virk- aði liðið hálf áhugalaust en allt annað var að sjá til liðsins í síðari hálfleik. „Það voru smá áherslubreyt- ingar í hálfleik. Ekki merkileg- ar en við þurftum að laga aðeins færsluna í vörninni, færslu á milli varnar og miðju, og það gekk mun betur í seinni hálfleik ásamt því að við lögðum áherslu á að halda boltanum aðeins lengur áður en við færum að reyna erfiðar send- ingar. Svo held ég að hungur leik- manna í að gera vel hafi verið sterkt í seinni hálfleik“ Íslenska liðið hafði ekki átt góðu gengi að fagna í undanförn- um leikjum og var Ólafur nokkuð ánægður með hvernig menn svör- uðu kallinu um betri leik. „Auðvitað hefur það áhrif að tapa leikjum. Það hefur áhrif á leikmennina og þá sem standa í kringum liðið. Maður finnur auð- vitað ótta og skjálfta og við töluð- um um það fyrir leikinn að eini möguleikinn til að breyta því væri inni á vellinum og ég var mjög ánægður með þá svörun. Þetta var góður leikur og fínn undirbúning- ur fyrir leikinn gegn Noregi.“ - sjj Landsliðsþjálfarinn Ólafur Jóhannesson var nokkuð brattur eftir 1-1 jafnteflið gegn Slóvakíu í gærkvöld: Fínn undirbúningur fyrir Noregsleikinn BARÁTTA Emil Hallfreðsson í baráttu við varnarmenn Slóvakíu í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.