Samvinnan - 01.10.1948, Side 14
Austur—vestur bros í Genf. Fulltrúi Breta, Hector McNeil, og rússneski fulltrúinn,
Arutiunian (t. h.), rœðast við.
Þeir hafa sannaÖ, að þjóðir
geta unnið saman
Sagt frá ECA — Efnahagsnefnd Evrópu —, sem afsannar kenn-
inguna um, að alþjóðlegar stofnanir geri aldrei neitt
Eftir MICHAEL L. HOFFMAN
ALÞJÓÐLEGAR stofnanir hafa
ekki orð fyrir að vera úrræðagóð-
ar né starf þeirra árangursríkt fyrir
bætta, alþjóðlega samvinnu. Þrjátíu
ára saga þeirra sýnir í ríkum mæli af-
brýðisemi í milli þjóða, deilur og karp
í milli fulltrúa og vonbrigði og mis-
heppnun í starfi .Allt of oft hafa þess-
ar stofnanir helzt skapað aðstöðu til
þess að gera heyrinkunnan skoðana-
mismun þjóðanna á hinum pólitíska
vettvangi. Og því meira, sem talað er,
því meiri er misskilningurinn. Þetta
á, því miður, eins við stofnanir Sam-
einuðu þjóðanna og Þjóðabandalagið
sáluga.
En þrátt fyrir þetta allt, er hægt að
benda á skemmtilega undantekningu
frá þessari leiðinlegu reglu. Þessi und-
antekning er Efnahagsnefnd Evrópu,
fECA), sem situr í Genf, og er undir-
nefnd Efnahags- og félagsmálastofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna.
ECA stendur báðum fótum á jörðu.
en svífur ekki í lausu lofti eins og sum-
ar aðrar alþjóðlegar stofnanir. Þessi
stofnun hefur nú um meira en eins árs
skeið, unnið að því á raunhæfan og
árangursríkan hátt, að leysa sum tor-
veldustu og umdeildustu efnahags-
vandamál Evrópu. Að stofnuninni
standa sérfræðingar frá löndum báð-
um megin við landamerkjalínu aust-
urs og vesturs, þeir eru fulltrúar mis-
munandi pólitískra skoðana og við-
horf þeirra til efnahags- og fjárhags-
mála ná yfir stórt svið. En þeim hefur
tekiz að vinna saman, sem ein heild, að
því marki, að fundur í Efnahags- og
félagsmálastofnun S. Þ., sem haldinn
var í sumar er leið, samþykkti einum
rómi viðurkenningu á þessu starfi og
lýsti jafnframt stuðningi við starfsfyr-
irætlanir nefndarinnar. Þetta er
merkilegt, {jegar þess er jafnframt
minnzt, að þessi virðulega stofnun, þ.
e. Efnahags- og félagsmálastofnunin,
hefur næsta sjaldan komizt að öðru
samkomulagi en því, að fresta fundum
og umræðum. ECA fæst ekki við hug-
sjónir, heldur áþreifanlega hluti. Það
hefur tekið til meðferðar hluti eins og
kol, stál, járnbrautir og þjóðvegi. Og
þessir hfutir eru teknir til með-
ferðar á raunhæfan hátt.—Ákveðið er,
hversu mikið af kolum, stáli, flutn-
ingatækjum og öðrum slíkum nauð-
synjum, skuli koma í hlut hverrar
hinna sárþjáðu meginiandsþjóða.Ætla
mætti, að þetta vald yfir hinni efna-
hagslegu lífæð þjóðanna, mundi fæða
af sér harðvítugar deilur og lítinn
starfsárangur, en reynslan hefur af-
sannað það.
KALLA MÁ, að ECA hafi fæðst í
þennan heim hinn 29 marz árið
1947. Faðernið má rekja til einnar af
hinum nær óteljandi ályktunum, sem
gerðar hafa verið í Efnahags- og félags-
málastofnuninni. Frá fyrstu tíð hefur
14