Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1948, Qupperneq 28

Samvinnan - 01.10.1948, Qupperneq 28
Kislur Aðalsleins konungs Bókarkafli eftir KRISTJÁN ELDJÁRN Um þessar mundir er að koma á markaðinn á vegum Norðra, stóríróðleg og skemmtileg bók: Gengið á reka, eftir Kristján Eldjárn þjóðminjavörð. — í bókinni lýsir þjóðminjavörður ýmsum merkum fomleifum, sem fundizt hafa hér á landi, og setur þær jafnframt í samband við sögulegar persónur og at- burði á mjög skemmtilegan hátt. Hér er um bók að ræða, sem hverjum góðum íslendingi mun þykja fengur að. — Hér fer á eftir hluti af kafla úr bókinni. — EGAR Aðalsteinn Játvarðsson Englakonungur Iiáði stórorustu sína við Ólaf kvaran Sigtryggsson og bandamenn hans við Brunanburg eða á Vínheiði, eins og sá staður er kallað- ur í Egils sögu, voru með honum tveir íslenzkir bóndasynir, þeir Þórólfur Skallagrímsson frá Borg og Egill bróð- ir hans, þá um það bil 27 ára að aldri. Höfðu þeir bræður um hríð verið í ví-king, en síðan gerzt landvarnarmenn Aðalsteins konungs. í orustunni á Vín- heiði gengu þeir vel fram og áttu drjúgan þátt í frægum sigri Aðalsteins, en svo sorglega tókst til, að eldri bróð- irinn, glæsimennið Þórólfur, féll í or- ustunni og bar bein sín á Englandi. Þetta gerðist árið 937. , Aðalsteinn konungur efndi til mik- illar veizlu eftir sigurinn á Vínheiði. Þeir, sem lifað hafa fagnaðarlæti sig- urvegaranna eftir síðustu heimsstyrj- öld, munu varla rengja söguna um, að Jrar hafi verið „glaumur mikill“. Þeg- ar Egill hafði heygt Þórólf bróður sinn, gekk hann til veizlunnar, og þá er Jrað, sem sagan bregður upp hinni ógleymanlegu, tröllauknu mynd af Agli Skallagrímssyni, forföður okkar allra: „Egill settist þar niður og skaut skildinum fyrir fætur sér. Hann hafði hjálm á höfði og lagði sverðið um kné sér og dró annað skeið til hálfs, en þá skelldi hann aftur í slíðrin; hann sat uppréttur og var gneypur mjög. Egill var mikilleitur, ennibreiður, brúnamikill, nefið ekki langt, en á- kaflega digurt, granstæðið vítt og langt, hakan 'breið furðulega og svo allt um kjálkana, hálsdigur og herði- mikill, svo að það bar frá því, sem aðr- ir menn voru, harðleitur og grimm- legur, þá er hann var reiður; hann var vel í vexti og hverjum manni hærri, úlfgrátt hárið og þykkt og varð snemma sköllóttur. En er hann sat sem fyrr var ritað, þá hleypti hann annarri brúninni ofan á kinnina, en annarri upp í hársrætur; Egill var svarteygur og skolbrúnn. Ekki vildi liann drekka, þó að honum væri borið, en ýmsum hleypti hann brúnunum of- an eða upp. Aðalsteinn konungur sat í hásæti, hann lagði og sverð um kné sér, og er þeir sátu svo um hríð, þá dró konungur sverðið úr slíðrum og tók gullhring af hendi sér, mikinn og góðan og dró á blóðrefilinn, stóð upp og gekk á gólfið og rétti yfir eldinn til Egils. Egill stóð upp og brá sverðinu og gekk á gól-fið; hann stakk sverðinu í bug hringinum og dró að sér, gekk aftur til rúms síns; konungur settist í liásæti. En er Egill settist niður, dró hann hringinn á hönd sér, og fóru þá brýnn hans í lag. . . . Þaðan af drakk Egill að sínum hlut.“ Þessi óviðjafanlega smámynd úr Eg- ilssögu ber snilld höfundarins fagurt vitni. Hann nær hinum sterkustu á- lirifum með algerðu þagnarspili milli tveggja 1-eikenda. Lýsing Egils er frá- bær, Jrótt tröllsleg sé, og ég minnist Jress, að sú var trú fyrir norðan, að þeir Íslendingar, sem ekki hefðu jafnstór bæði augu eða væru á annan hátt mis- eygðir, væru afkomendur Egils Skalla- grímssonar. En hitt er þó eflaust rétt- ara, að við séum öll af honum komin, hvernig sem við erum til augnanna. Og nú heldur frásögn Egilssögu á- frarn: „Eftir það lét konungur bera inn kistur tvær; báru tveir rnenn hvora; voru báðar fullar af silfri. Konungur mælti: „Kistur þessar, Egill, skaltu hafa, og ef þú kemur til íslands, skaltu færa þetta fé föður þínum; í sonar- gjöld sendi ég honum; en sumu fé skaltu skipta með frændum ykkrum Þórólfs, þeim er þér þykja ágætastir." Á Jrennan liátt komust silfurkistur Aðalsteins konungs til íslands. En Jrað var Egill, sem tók silfrið undir sig einan og sýndi aldrei neinn lit á að skipta því, hvorki við föður sinn né aðra menn. Ekki kallaði Skalla- grímur heldur eftir fénu, fyrr en hann fann leigð á sér og fór að hugsa til að grafa fémuni sína í jörðu, en þann sið virðast Mýramenn hafa haft, rétt eins og menn gera erfðaskrá sína nú á dög- um. Ekki vildi Egill lausar láta kist- urnar, enda var Skallagrímur ekki blankari en svo, að kvöldið fyrir dauða sinn gat liann lagt inn í Krumskeldu kistu vel mikla og eirketil, hvort tveggja fullt af silfri. EMLL SKALLAGRÍMSSON var í engu meðalmaður, ekki heldur í ágirndinni. Hann mun vera fégjarn- asta skáld, sem uppi hefur verið á ís- landi, og mundi hafa orðið illt verk að deila við hann um skáldastyrk, ef sú hefði verið öldin á hans dögum. í sögu hans eru raktar fjáröflunarferðir hans víða um lönd, enda varð hann stórauðugur. Ekki fórst honum alltaf stórmannlega, og ámæli hefur hann hlotið af ýmsum, ekki sízt af því, að svo kann að virðast í fljótu bragði, senr hann rneti sorg sína eftir Þórólf til fjár og verði henni afhuga, jafn- skjótt og gjaldið er af höndum reitt. En það er þó varla svo að skilja, að það hafi verið Mammons grátur, sem gekk að Agli í höll Aðalsteins. Ekki veit eg, hvað konungi hefur búið í hug, er hann horfðist í augu við Egil um hall- argólf þvert, en mig grunar, að hon- um hafi þá skilizt, að það var sómi 28

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.