Samvinnan - 01.02.1955, Blaðsíða 11
Samvinnan er samtök frjálsra einstaklinga
þar sem maðurirm situr í öndvegi,
en fjármagnið er gert að þjóni
Kæru heiðursgestir.
Heiðraða samkoma.
Við minnumst þess hér í kvöld, að
Vilhjálmur Þór hefur nú látið af störf-
um hjá Sambandinu. Það hefur orð-
ið að ráði, að ég segði við þetta tæki-
færi nokkur orð af hendi Sambands-
stjórnarinnar.
Hvað er samvinna? Hvað er sam-
vinnuhreyfingin? Samvinnan er þjóð-
félagsstefna, þjóðfélagshugsjón, hug-
sjón samhyggju og samhjálpar og því
andstæð skefjalausri sérhyggju. Sam-
vinnan er leitin að sannvirði. Sam-
vinnan er frjáls samtök um sameigin-
leg verkefni. Samvinnan er samtök
frjálsra einstaklinga, þar sem maður-
Eftir
EYSTEIN JÓNSSON
Ræðu þessa flutti Eysteinn Jóns-
son fjármálaráðherra í hófinu að
Hótel Borg, er stjórn SIS og sam-
starfsmenn Vilhjálms Þór héldu
honum.
inn situr æfinlega í öndvegi, en fjár-
magnið er gert að þjóni. Samvinnan
er því andstæða ofríkis, einræðis, kúg-
unar og yfirgangs.
Samvinnuhreyfingunni er ekkert
það verkefni óviðkomandi, sem með
almennum samtökum er hægt að
leysa, án þess að ganga á annara rétt.
Eg ætla ekki, að þetta geti talist
fullkomin skilgreining samvinnu-
stefnunnar. Aðeins nokkur höfuð at-
riði.
Ef til vill hugsar nú einhver: Ætlar
ræðumaður að halda hér erindi um
samvinnustefnuna. Sagðist hann ekki
ætla að minnast þess, að Vilhjálmur
Þór hefur nú látið af störfum hjá Sam-
bandinu? Jú, það er einmitt ætlun-
in. En að yfirlögðu ráði byrja
ég á nokkrum orðum um sam-
vinnustefnuna. Það geri ég sökum
þess, að enginn maður hefur að míru-
um dómi sýnt það jafn glöggt í verki
[ ^ H: w V. Mí
'' -'‘ÆM i 3 A hÍBéí | Ítí áí ;l O / -j MBlw . 1
Frá Kveðjuhófinu að Hótel Borg, þar sem
rn SÍS og samstarfsmenn Vilhjálms Þórs kvöddu hann og þökkuðu störf hans fyrir SÍS.
11