Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1955, Blaðsíða 18

Samvinnan - 01.02.1955, Blaðsíða 18
ENGINN EINN MAÐUR hafði svo mikil áhrif á stjórnmál Evrópu á síð- astliðnu ári sem Pierre Méndes- France, forsætisráðherra Frakka. Þegar horfur voru orðnar verri í frönskum stjórnmálum en nokkru sinni, kom hann skyndilega fram á sjónarsviðið og gerbreytti öllu and- rúmslofti franskra stjórnmála. í stað þess, að fyrirrennarar hans höfðu einbeitt kröftum sínum að því að verja stjórn sína falli, kvaðst Méndes ætla að semja frið í Indó-Kína eða segja af sér innan 20 daga. Þetta tókst, svo og fleira, sem hann hefur lagt fyrir sig. Um skeið leit út fyrir, að stjarna hans ætlaði að lækka verulega vegna Evr- ópuhersins og síðar Parísarsamning- anna, en hann kom því máli einnig í höfn. En nú, er hann helzt vildi snúa sér að innanlandsmálum, hefur and- stæðingum hans loks tekizt að fella hann. PIERRE MENDÉS-FRANCE er fædd- ur í París fyrir 47 árum. Faðir hans var Gyðingaættar og rak fataverksmiðju. Mendés hlaut menntun sína í París. Hann varð fljótlega bókhneigður og alvörugefinn. Meðan hinir léttlyndu í latneska hverfinu sátu að drykkju, sat Mendés að viðræðum við vini sína um verðfall frankans og þess háttar hluti. Hann skrifaði ritgerðir, hélt fyr- irlestra og stofnaði málfundafélag. Hann lenti eitt sinn í hörðu við and- stæðinga sína, svo að þeir reyndu að kasta honum út um glugga á annari hæð. Brotnaði nef hans í þeim átök- um. Edouard Herriot heyrði hann tala blaðalaust á fundi hjá róttækum sósíalistum, og varð hrifinn af mælsku hans. „Hann er sá alsnjallasti, sem ég hef heyrt á þessum aldri,“ sagði Her- riot. Mendés varð lögfræðingur næsta ár, þá tuttugu og eins árs að aldri og þar með yngsti lögfræðingur í Frakk- landi. AÐ BEIÐNI flokks síns fór Mendés til Louviers í Normandy, setti þar upp -St'Lpir óamtíL annanna: Pierre Mendes-France Hann hleypti hreinu lofti inn í sali franskra stjórnmála og vill jafnvel fá landa sína til að drekka mjólk í stað víns! lögfræðiskrifstofu og bauð sig fram til þings. Hann marði sigur yfir íhalds- frambjóðanda og var þá aðeins fjóra mánuði yfir lægsta löglegan aldur þingfulltrúa og langyngsti þingmað- urinn í neðri málstofunni frönsku. Síð- an hefur frægð hans stöðugt farið vax- andi. Árið 1932 giftist hann hinni fögru Lily Cicurel. Hún er egypzkrar ættar, og eiga ættingjar hennar fræg- asta vöruhús Cairo-borgar. MENDÉS gaf sig nú að stjórnmálum af auknum krafti. Hann skrifaði mik- ið um alþjóða-fjármál og byrjaði að skrifa sögu Þýzkalands. Hann lauk aldrei við það og handritið týndist í stríðinu. Hann var kosinn borgarstjóri í Louviers 1935. Er hann það ennþá og kann vel við sig þar. Vinur hans sagði eitt sinn, að hann hafi alltaf kvalizt af aðgerðaleysi þeirra í París, en í Louviers hafi hugsjónir hans fæðst. FJÁRMÁLASKRIF hins unga borg- arstjóra vöktu athygli Léon Blum, sem þá var að reyna að mynda stjórn í Frakklandi. Kom þar, að Mendés var gerður aðstoðar-f j ármálaráðherra, þrjátíu og eins árs að aldri. STRÍÐIÐ SKALL á og Mendés gerð- ist sjálfboðaliði í flughernum. Hann var staddur í París í leyfi, þegar Þjóð- verjar brutust gegn um Maginot-lín- una. Bitur yfir svikum þeim, sem þá áttu sér stað við Frakkland, fylgdi hann stjórninni og þeim, sem eftir voru af þingmönnum neðri málstof- unnar, til Bordeaux. Var hann þar ásamt þeim, konu sinni og tveim son- um, settur um borð í beitiskip, sem flutti þau til Marokko. Hann taldi skyldu sína að komast undan, en fékk þó brátt að vita, að hann mundi hand- tekinn fyrir athæfi sitt. Mendés hugð- ist með lagakunnáttu sinni geta varið sig og leitaði ekki undankomu. En það var ekki hlustað á hann. Eftir nokkra dvöl í fangelsi, varð hann að fara á sjúkrahús, og þaðan tókst honum að sleppa út um glugga og framhj á verði. í átta mánuði var hann við alls lags neðanjarðarstarfsemi og lét sér þá vaxa yfirskegg, setti upp gleraugu og reykti pípu til að þekkjast síður. Mendés sneri nú til London og gekk í frelsishreyfingu De Gaulle. Hann stýrði einni af sprengjuflugvélum frelsishreyfingarinnar. Var honum þó illa við að gera árásir á Frakkland, en féllst þó á, að ekki væri víst, að aðrir gerðu það á réttari hátt. EFTIR STRÍÐIÐ varð svo Mendés- France efnahagsmálaráðherra í stjórn De Gaulle og gerði þá mjög stranga endurreisnaráætlun. Hörð mótmæli gegn henni komu fram á stjórnar- fundi í janúar 1945. Meirihluti hélt því fram, að ekki væri hægt að leggja þetta á þjóðina eftir fimm ára hernám. „Þú hlýtur að sjá það, minn kæri Mendés,“ sagði De Gaulle, „að fjármálaráðherrann og allir sérfræð- ingarnir eru á móti þér“. „Ég man“, sagði Mendés, „þegar allir hernaðar- sérfræðingar voru á móti ofursta ein- um að nafni De Gaulle“. Mendés- France lét af embætti þrem mánuð- um seinna. Hann var nú fulltrúi fyrir Frakkland á ýmsum ráðstefnum um efnahagsmál og formaður fjármála- nefnda. í hverri ræðunni á fætur ann- ari varaði hann Frakkland við degi reikningsskilanna. Hann benti á þörf fyrir meira fjármagn í arðvænleg atvinnufyrirtæki, minni útgjöld til hernaðarþarfa og varaði við verð- bólgu. Hann benti einnig á, að ef Frakkar létu ekki nýlenduþjóðum auk- ið sjálfstæði í té, tækju þær það sjálf- ar. „Með því að veita Indó-Kína auk- ið sjálfsforræði var hægt að komast hjá styrjöldinni þar og þessu er ekki gefinn gaumur í Túnis og Marokkó. Nýlendustefna nítjándu aldarinnar er liðin undir lok“, sagði Mendés-France. ALLT SITT LÍF hefur Mendés- France verið að flýta sér. Hann þykir (Framh. d bls. 27) 18

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.