Samvinnan - 01.02.1955, Blaðsíða 32
mcinnmmmegsHi
FBnW8tlff!Ír]?|
SMÁSAGNA
SAMKEPPNI
SAMVINNAN efnir hérmeð til smásagnakeppni og mun veita þrenn verð-
laun fyrir beztu sögurnar, sem ritinu berast fyrir 15. apríl næstkomandi.
Mun þriggja manna dómnefnd velja verðlaunasögurnar, en í henni eiga
sæti Andrés Björnsson, magister, Andrés Kristjánsson, blaðamaður og Bene-
dikt Gröndal, ritstjóri. Verðlaunin verða sem hér segir:
1. Ferð með Dísarfelli til meginlandshafnar og heim aft-
ur og 2000 krónur að auki.
2. 1000 krónur.
3. 500 krónur.
Sá, sem fyrstu verðlaun hlýtur, skal fara verðlaunaferðina fyrir lok þessa
árs og getur hagað báðum ferðunum eftir samkomulagi við Samvinnuna og
skipadeild SÍS. Hann skal skrifa fyrir Samvinnuna a.m.k. eina grein úr ferð-
inni án frekari ritlauna. Getur verðlaunahöfundurinn farið hvert, sem
hann vill, frá hafnarborginni milli siglingar og heimferðar sinnar.
í smásagnakeppni þessari mega taka þátt allir íslenzkir borgarar, ungir og
gamlir, hvort sem þeir hafa áður birt eftir sig sögur eða ekki. Sögurnar verða
að sjálfsögðu að vera frumsamdar. Handrit skal senda til Samvinnjunnar,
Sambandshúsinu, Reykjavík. Skal fylgja því nafn og heimilisfang höfundar
I lokuðu umslagi, en það og handritið skal auðkennt á sama hátt. Samvinn-
an eignast birtingarrétt verðlaunasagnanna án frekari greiðslu, en skal hafa
forkaupsrétt að öðrum sögum, sem sendar verða, fyrir venjuleg ritlaun.
Freistið gæfunnar!
Sendið Samvinnunni smásögu fyrír 15. apríl
SAMVINNAN
32