Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1955, Page 32

Samvinnan - 01.02.1955, Page 32
mcinnmmmegsHi FBnW8tlff!Ír]?| SMÁSAGNA SAMKEPPNI SAMVINNAN efnir hérmeð til smásagnakeppni og mun veita þrenn verð- laun fyrir beztu sögurnar, sem ritinu berast fyrir 15. apríl næstkomandi. Mun þriggja manna dómnefnd velja verðlaunasögurnar, en í henni eiga sæti Andrés Björnsson, magister, Andrés Kristjánsson, blaðamaður og Bene- dikt Gröndal, ritstjóri. Verðlaunin verða sem hér segir: 1. Ferð með Dísarfelli til meginlandshafnar og heim aft- ur og 2000 krónur að auki. 2. 1000 krónur. 3. 500 krónur. Sá, sem fyrstu verðlaun hlýtur, skal fara verðlaunaferðina fyrir lok þessa árs og getur hagað báðum ferðunum eftir samkomulagi við Samvinnuna og skipadeild SÍS. Hann skal skrifa fyrir Samvinnuna a.m.k. eina grein úr ferð- inni án frekari ritlauna. Getur verðlaunahöfundurinn farið hvert, sem hann vill, frá hafnarborginni milli siglingar og heimferðar sinnar. í smásagnakeppni þessari mega taka þátt allir íslenzkir borgarar, ungir og gamlir, hvort sem þeir hafa áður birt eftir sig sögur eða ekki. Sögurnar verða að sjálfsögðu að vera frumsamdar. Handrit skal senda til Samvinnjunnar, Sambandshúsinu, Reykjavík. Skal fylgja því nafn og heimilisfang höfundar I lokuðu umslagi, en það og handritið skal auðkennt á sama hátt. Samvinn- an eignast birtingarrétt verðlaunasagnanna án frekari greiðslu, en skal hafa forkaupsrétt að öðrum sögum, sem sendar verða, fyrir venjuleg ritlaun. Freistið gæfunnar! Sendið Samvinnunni smásögu fyrír 15. apríl SAMVINNAN 32

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.