Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1955, Blaðsíða 21

Samvinnan - 01.02.1955, Blaðsíða 21
arsaga Þjóðleikhússins Skömmu fyrir jól kom út hjá Isa- foldarprentsmiðju bókin „Þjóðleik- húsið“ eftir Jónas Jónsson, myndar- legt rit í alla staði, en þó yfirlætis- minna en margt annað, sem keppti um athygli bókakaupenda fyrir hátíðina. Bókin seldist upp hjá forlaginu á skömmum tíma, og getur það verið út- gefendum nokkur bending þess efnis, að bókum um íslenzk mannvirki kynni að vera betur tekið en margur ætlar, ekki sízt ef vel er á efninu hald- ið. íslendingar lifa nú þá tíma, að þjóð- inni þykir það sjálfsagt og varla orð á gerandi, þótt ráðizt sé í fleiri eða færri stórbyggingar fyrir tugi milljóna króna á ári hverju. Að vísu eru til byggingar, sem þurfa að telja með- göngutíma'sinn í árum eða áratugum, en þær eru samt undantekningar nú á dögum og sitja á hakanum vegna þess, hve margt annað er ráðizt í, en ekki vegna fátæktar þjóðarinnar eða almenns skilningsskorts. Sú var þó tíðin, og það fyrir aðeins 2—3 áratugum, að það þurfti stór- hug hér á landi til að láta sig dreyma um byggingar, sem nokkur reisn eða myndarbragur var að, hvað þá að ætla sér að koma slíkum mannvirkj- um upp. Merkasta dæmið um þróun þessara mála er einmitt saga Þjóðleik- hússins, og fyrir það er hún þess virði, að henni sé á Ioft haldið. Getur raun- ar farið svo, að aftur þrengist í búi hjá þjóðinni og aftur þurfi raunverulegt andlegt þrek til að berjast fyrir bygg- ingum, er aukið geti menningarlega reisn þjóðarinnar. Bók Jónasar er ekki aðeins fróðleg, heldur og bráðskemmtileg aflestrar og næstum spennandi á köflum. Sagan af því, hvernig leikhúsinu var fyrst tryggð tekjulind og hvernig þeir þjóðleikhúsmenn settust á peningana eins og ormur á gull og hindruðu það, að þeim væri varið til annars, kemur þarna fram í heild. Það er auðvelt að sjá nú, að leikhúsið væri sennilega ekki komið upp enn, ef orminum hefði ekki tekizt vörnin. Þá er rakin barátt- an um staðsetningu leikhússins — það atriðið varðandi bygginguna, sem enn er harmað af mörgum. Jónas vildi fá betri stað, en leikhúsið fékk, og það vildu margir aðrir liðsmenn leikhús- vina. En raunsæin var enn látin ráða og sá staður valinn, sem fáanlegur var og viðunandi þótti. Ef þessi leið hefði ekki verið valin, má ætla að örlög leik- hússins hefðu orðið hin sömu og hins langþráða ráðhúss Reykjavíkur. Ef enginn tekur af skarið í staðarvali, getur slíkt mál tafizt í áratugi. Enn er ónefndur þáttur húsameist- arans, Guðjóns Samúelssonar. Hann varð fyrir miklu aðkasti í lifanda lífi, en því er enginn efi, að vegur hans sem listamanns mun fara vaxandi með árunum. Nú hafa tugir annara húsa- meistara, flestir sprenglærðir úr ýms- um áttum, fengið að reisa myndarleg hús á Islandi. Þeir hafa sumir hverjir vel gert, margir illa. En í samanburði við verk þeirra hlýtur ævistarf Guð- jóns að vaxa hröðum skrefum, jafnvel þótt ekki sé tekið tillit til þess, að hann var alger brautiyðjandi, sem var að reyna að skapa íslenzka byggingar- list, þegar nálega engar varanlegar byggingar voru til í landinu. Vonandi tekst Jónasi að gera Guðjóni verðug skil í þeirri bók, sem Norðri hefur boð- að, að út komi síðar á þessu ári. Það þarf að skrifa sögu þeirra bygginga, sem þjóðin er að reisa á þessari miklu byggingaöld. Ekki þurra sögu af tölum og tekniskum upplýs- ingum, heldur sögu hugmyndanna, sem skópu húsin, sögu er lýsir sam- bandi húsanna við þá kynslóð, sem kom þeim upp og viðhorf hennar. Jón- as Jónsson hefur með bók sinni um Þjóðleikhúsið skapað gott fordæmi fyrir slíkar bókmenntir. 21

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.