Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1955, Blaðsíða 28

Samvinnan - 01.02.1955, Blaðsíða 28
V T rygging fyrir sannvirði Samvinnutryggingar innleiddu fyrstar allra tryggingafélaga þá stefnu að reyna að bjóða tryggingar fyrir SANNVIRÐI hér á landi. Þetta hefur félagið gert með því að lækka trygg- ingaiðgjöld, — og hefur nú síðast stórlækkað brunatryggingar húsa, — og með því að end- urgreiða tekjuafgang sinn til hinna tryggðu. Félagið hefur þannig endurgreitt tekjuafgang frá byrjun til 31. des. 1953 samtals 5.6 milljónir króna. Endurgreiðsla tekjuafgangs byggist að sjálfsögðu á því, að einhver tekjuafgangur verði. Á síðasta ári var hagur brunatrygginga allgóður og er endurgreitt 10% af ið- gjöldum fyrir þær. Hagur sjó- og ferðatiygginga var einn- ig góður og er þar einnig endurgreitt 10%. En því mið- ur var hagur bifreiðatrygginga mjög slæmur og varð fé- lagið þar fyrir verulegum skakkaföllum. Sjóðir félagsins hafa staðið undir því tapi, og óhjákvæmilegt var að hækka iðgjöldin. — Bifreiðaeigendur geta aðeins gert eitt til að forðast frekari kostnað vegna trygginga á bif- reiðum sínum, og það er að draga verulega úr árekstrum og öðrum tjónum, sem verða í vaxandi mæli. Á þann hátt einan er hægt að halda niðri tryggingakostnaði bif- reiða. SAMVl MBJUJ'irnB.Y© © EUdM, t' 28

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.