Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1957, Síða 4

Samvinnan - 01.12.1957, Síða 4
KIRKJUGLUGGARNIR Á BESSASTOÐUM Sá listsögulegi atburður gerðist á hvítasunnudag nú í vor, að vígðir voru nýir gluggar í Bessastaðakirkju. Þar var ekki um að ræða neinar venjulegar glerrúður, settar í vegna þess að aðrar höfðu brotnað. Raunar eru rúðurnar allar í smástykkjum, en brotin eru tengd saman með blýi. I glerinu eru innbrenndir litir og þar gefur að líta dáindis fagrar myndir af stórmennum íslenzkrar kristnisögu, auk Krists og hinnar heilögu móður, Maríu, sín hvorum megin við kórinn. Bessastaðir á Álftanesi er forn- frægt höfuðból. Jörðin hefur byggst skömmu eftir landnám Ingólfs, en sennilega verið nefnd öðru nafni. Fræðimenn telja líklegt, að jörðin Skúlastaðir, sem getið er um í forn- um bókum, sé sama jörðin. Á Sturl- ungaöld lentu Bessastaðir í eigu Snorra Sturlusonar og fara úr því að koma verulega við sögu landsins. Eftir fall Snorra sló konungur eign sinni á staðinn upp í vígsbætur og þannig urðu Bessastaðir miðstöð konungsvaldsins um langan aldur. Kirkja hefur verið byggð á Bessa- stöðum skömmu eftir kristnitökuna. Þar var í upphafi bændakirkja og ]árnmyndir i grátunum í Bessastaðakirkju. Mynd- irnar eru tákn guðspjallamannanna og ej betur er að gáð, sést, að þeim svipar mjög til íslenzku landvœttanna, nema hvað hér er engill í stað jötunsins. eftir að Bessastaðir voru orðnir ver- aldlegt höfuðból, var kirkjan samt ekki höfuðkirkja. Reynt var að hefja hana til vegs og virðingar, en oft á annara kostnað og hlutust af óvin- sældir. Ýmist var á Bessastöðum torf- kirkja eða timburkirkja og gekk illa að halda þeim við. Árið 1773 er ákveðið að reisa stein- kirkju á Bessastöðum. Hófust þá framkvæmdir, en verkinu miðaði seint og kirkjusmíðinni var ekki lok- ið fyrr en 1829. Var það Ólafur Step- hensen, sem mest beitti sér fyrri því, að verkinu lauk. Kirkjan var samt talin mjög léleg og kom til tals að leggja hana niður um miðja öldina. En síðan hefur vegur kirkjunnar far- ið vaxandi. Skúli Thoroddsen lét gera við hana á ýmsan hátt. Þegar Jón H. Þorbergsson bjó á Bessastöðum, var í ráði, að ríkið tæki við kirkjunni, en varð ekki af. Hinsvegar gekkst Matthías Þórðarson, þjóðminjavörð- ur, fyrir samskotum til viðhalds og fegrunar kirkjunni. Einnig lét Sigurð- ur Jónasson gera við kirkjuna á Bessastaðaárum sínum. Eftir að hann gaf ríkinu jörðina og Bessastaðir voru gerðir að forsetasetri, hafa gagngerð- ar breytingar og endurbætur farið fram á kirkjunni. Stærsti áfanginn í fegrun kirkjunnar eru þó gluggarnir, sem fyrr eru nefndir og skal nú nánar vikið að því máli. Ásgeir Ásgeirsson, forseti, hafði lengi haft hug á að fegra kirkjuna á Bessastöðum. Sérstaklega hafði hon- um komið í hug að gera eitthvað við gluggana í þessu sambandi, því það er kunnugt að fátt gerir guðshús stemmningsríkara en fögur glermál- verk í gluggum. Málið komst á dagskrá fyrir alvöru í sambandi við sextugsafmæli Ásgeirs forseta. Ríkisstjórninni var kunnugt um, að forsetanum var fegrun kirkj- unnar mikið áhugamál og ánafnaði honum á afmælinu, nokkurri fjárupp- 4 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.