Samvinnan - 01.12.1957, Blaðsíða 29
Skagafjörður og
Skagfirðingar
Annir við landbúnaðarverkjœrin á verkstceði Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki.
(Framh. af bls. 17).
hlutafélagi, en að því standa Sauðár-
króksbær og kaupfélagið. Hlutafélag-
ið heitir Fiskiðja Sauðárkróks h.f.
Við fiskvinnuna vinna um 50 manns,
en 100 í sláturtíðinni. Kaupfélagið
hefur á tveim undanförnum árum
byggt 300 mála fiskimjöls- og lýsis-
verksmiðju og Fiskiðjan h.f. hefur
einnig afnot af henni.
A Sauðárkróki munu vera til 10
opnir vélbátar, sem stunda sjó, aðal-
lega yfir vorið. Fiskiðjan h.f. kaupir
af þeim aflann. Fiskurinn er flakað-
ur, en bein og úrgangur fara í fiski-
mjölsverksmiðjuna. Uppistaðan í hrá-
efnisöflun fiystihússins er þó togara-
fiskur. Akureyrartogarar leggja þar
upp afla sínum og Sauðkræklingar
eiga þriðjung í togaranum Norðlend-
ingi og sama hlufall af afla sínum
leggur hann þar upp. Kaupfélagið
annast afgreiðslu fyrir Sambands-
skipin og auk þess fyrir Eimskip,
Ríkisskip og flóabátinn Drang.
ANNAR REKSTUR
FÉLAGSINS.
Kaupfélag Skagfirðinga rekur bif-
reiða- og vélaverkstæði. Þar vinna að
staðaldri 12—15 menn. Forstöðu-
maður er Hreinn Sigurðsson. Kristján
Skarphéðinsson er verkstjóri í bif-
reiðadeild, en Sigurður Antonsson í
járnsmíðadeild. Verkstæðisbyggingin
er 950 fermetrar að flatarmáli og var
byggð á árunum 1955—56.
Mjólkursamlagið er til húsa í hrein-
legri og fallegri byggingu, rétt utan
við kauptúnið. Byrjað var á bygg-
ingu þess 1948 og fjórum árum síðar
var það tekið í notkun að fullu. Gólf-
flötur byggingarinnar er 1700 fermetr-
ar. Mjólkursamlagið er undir sömu
stjórn og kaupfélagið. Samlagsstjóri
er Sólberg Þorsteinsson og hann hefur
með sér 8—10 fastráðna starfsmenn.
Mjólkurflutningarnir eru á vegum
bændanna. Innvegið mjólkurmagn á
síðasta ári var rúmlega 2.550.000 lítr-
ar og varð aukning um 300 þúsund
lítra á árinu. Eins og áður er sagt,
reyndist meðalfita í Mjólkursamlag-
inu 3.58% og 8 lítrar af hverjum tíu
fara í vinnslu. Tveir lítrar af hverj-
um tíu fara til neyzlu á Sauðárkróki
og á Siglufirði.
A s.l. ári voru unnin 62 tonn af
smjöri, 75 tonn af ostum, 63 tonn af
skyri og 20 tonn af kassein.
Kaupfélag Skagfirðinga rekur tré-
smiðju. Þar fer fram allskonar tré-
smíði, svo sem hurðir, gluggar og inn-
réttingar. Forstöðumaður er Magnús
Sigurðsson og með honum vinna þar
6 menn.
Fastráðið starfsfólk hjá Kaupfé-
lagi Skagfirðinga er alls 56 manns, en
í vinnulaun og fyrir akstur greiddi
kaupfélagið 6.2 milljónir króna á s.l.
ári.
STJÓRN OG TRÚNAÐAR-
MENN KAUPFÉLAGSINS.
Formaður Kaupfélags Skagfirðinga
er Tobías Sigurjónsson, bóndi í Geld-
ingaholti. Aðrir í stjórn eru: Gísli
Magnússon, bóndi í Eyhildarholti,
varaformaður, Magnús Bjarnason,
kennari á Sauðárkróki, ritari. Með-
stjórnendur eru Bessi Gíslason, bóndi
í Kýrholti og Páll Sigurðsson, bóndi á
Hvíteyrum.
Kaupfélagsstjóri er Sveinn Guð-
mundsson. Hann tók við stjórn fé-
lagsins 1946. Sveinn er Skagfirðingur
að ætt, fæddur 1912 að Litladalskoti
í Skagafirði, en þar bjuggu foreldrar
hans. Sveinn lauk prófi frá Samvinnu-
skólanum 1939 og vann eftir það við
verzlunarstörf í Reykjavík og á
Siglufirði. Hann var kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Hallgeirseyjar frá 1941 og
þar til er hann tók við Kaupfélagi
Skagfirðinga.
Formaður og framkvæmdastjóri
fyrir Fiskiðju Sauðárkróks h.f. er
Marteinn Friðriksson. Guðmundur
Sveinsson er skrifstofustjóri á skrif-
stofum félagsins. Deildarstjórar í
verzlunum félagsins eru: Jón Bjöms-
son í nýlenduvörubúð, Jón Sigfússon
í vefnaðarvömbúð og Magnús Sigur-
jónsson í byggingavömbúð.
Endurskoðendur kaupfélagsins eru
Magnús Gíslason, bóndi á Frosta-
stöðum og Arngrímur Sigurðsson,
bóndi í Litlu-Gröf. Byggingameistari
yfir byggingum félagsins hefur verið
Guðmundur Sigurðsson á Sauðár-
króki.
FRAMTÍÐARHORFUR.
Kaupfélag Skagfirðinga stendur á
traustum grunni. Framtíðarmöguleik-
ar kaupfélags og félagssvæðið haldast
venjulega í hendur, svo eftir því virð-
ist, sem ekki þurfi að kvíða neinu um
framtíð Kaupfélags Skagfirðinga.
Eitt er ófullnægjandi nú í bili, en það
er húsnæði félagsins fyrir verzlunar-
reksturinn. í náinni framtíð liggur
fyrir að byggja stórbyggingu, nálægt
þeim stað, sem aðalstöðvar félagsins
em. íbúatalan á Sauðárkróki er nú
1060. Bærinn færist til suðurs eftir því
sem hann stækkar. Mikið er byggt af
nýjum íbúðarhúsum á sléttlendinu
fyrir sunnan gamla bæinn. Fyrir þetta
megin íbúðahverfi bæjarins verður
kaupfélagið að byggja útibú. Þetta er
mikið verkefni og verður að leysast
á næstu árum.
gísli.
SAMVINNAN 29