Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1957, Blaðsíða 37

Samvinnan - 01.12.1957, Blaðsíða 37
Stóri Jón (Framh. af bls. 21). inn. Urðarfjölskyldan mun ekki lenda á sveitina; — því heiti ég yður. Ekki á meðan við drögum andann! Hins vegar skiptir það mig litlu, á hvers kostnað okkur kann að verða holað niður .... Við tveir erum ekki skildir að skiptum; við munum sjást aftur — á vissum stað! Á ég að trúa yður fyrir því, hvar það muni verða? lækkaði hann róminn og laut að lágkúrunni, sem engdist sundur og saman af handtaki hans — hvæsti framan í hann! Sjáumst heilir í Helvíti! — og hrinti honum frá sér um leið, óð fram að dyrunum, en tókst svo óhönd- uglega að opna, að hann hélt á hand- fanginu, — fleygði því frá sér, spyrnti hurðinni brotinni frá stöfum, strauk af sér hópinn af hlustendum innan við búð- arborðið, vatt sér yfir það og hvarf út í skammdegisnóttina. Forstöðumaður verzlunarinnar var stundarkorn að ná sér eftir síðustu dembuna, arkaði síðan út á hæla málóða manninum, er haft hafði í heitingum við hann: — í draugaglætu hrannaðra himna sá hann kotkarlinn kjaftfora greiða göngu sína inn á milli hraunhól- anna. Með tóma pokann sinn milli handleggs og rifja. Fari hann bölvaður! Hvað átti hann vantalað við þann dóna? Ekki gat hann farið að hrópa og kalla hann heim aftur. Enda varð ekki úr nema óverulegt gaul; — sem vonandi enginn hafði heyrt; og hætti hann þá við það. Þegar kaupmaður gekk um búðina á leið til skrifstofu sinnar aftur, var hann eitthvað utangátta; annað hvort heyrði hann ekki eða anzaði því ekki, þótt á hann væri yrt. Skrúfstóllinn brakaði undir honum, og bágt átti hann með að átta sig á blöðum þeim, sem hann gluggaði í — svona til málamynda. — Hann ætlaði þá reyndar inn háls! Hvers vegna fór hann ekki dalaleiðina? Var það til að forðast, að nokkur skvldi verða á vegi hans? — Bandóður gat hann varla verið! . . . Varla svo, að hann sæist ekki fyrir. Hvað orðhákur sá sagði eða gerði skipti annars ekki miklu máli. — þetta hjal hans hafði ekki verið annað en ómarksorð. Hitt var óneitanlegt, að væri satt frá sagt, voru ástæður hans heirna fyrir hinar aumlegustu. Og því ekki fyr- ir það að taka, að hann kynni að hegða sér eitthvað í þá átt, sem hann gaf í skyn. Ekki fyrir það að taka — ónei. Meira skapið í mannskrattanum! . . . Hvað það snerti var Urðarbóndinn ekki stórum betri en sjálfur hann. Og átti þó minna undir sér! Raumur eins og Stóri-Jón — tveggja manna maki — ætti að vera til einhvers nýtur. Ætti ekki að þurfa að betla um brauð. Líklega var hann fnll stórgeðja til að sjá sér skynsamlega farborða? — og koma sér vel! Kaupmaður sá eftir því, að hann skyldi ekki hafa stillt skap sitt. Mér ætti að vera innan handar að koma manni eins og Stóra-Jóni á réttan kjöl, tautaði hann fyrir munni sér. Að sitja í svelti á öræfum upp, — hvaða vit er í því? Bústofn er engum bráðsóttur, sízt með tvær hendur tómar. Og skulda- bagga í ofanálag! Annars ætti hann held- ur að heita Jón sterki; — hún verður ekki gefin viðgerðin á hurðargreyinu. Hann skal fá að borga hana, bannsettur! Annars yrði Stóri-Jón varla hlaupinn uppi héðan af; en hugsanlegt að ná hon- um á hesti með sleða aftan í á gaddfæri. En hver ætti svo sem að fara að elta hann? Kaupmaður gat ekki með nokkru móti fengið sig til að kalla á Grím og skipa honum að beita þeim brúna fvrir léttagrindina, — sem mundi hentugast. . . . Stórgeðja var liann svo um munaði, Urðarbóndinn! Samt sem áður; — kaup- maður gat ómögulega farið að gera sig að viðundri. Hurðinni, sem að íbúðinni vissi, var lyft hægt frá stöfum; kona kaupmanns kom í gættina og sagði, að hann væri eitthvað lasinn, hann Bjössi litli. Hvað er að barninu? spurði faktorinn felmtraður og rauk upp af skrúfstóln- um, sem riðaði við svo óvæntan viðskiln- að. Hvað er að sjálfum þér, góði minn? anzaði kona hans og gat ekki gert að sér að brosa: Nei, hann Bjössi — ég held það sé ekki annað en iðrakveisa. Hann er all- an daginn í eldhúsinu og hámar í sig kökur og annað gott; er á einlægu rápi út og inn. En mér þætti vænt um, ef ein- hver búðarmannanna mætti vera að því að skreppa til læknisins; liann á meðal, sem hefur reynzt mér svo vel, og stúlk- urnar hafa svo mikið að gera. — Hvað er að þér, góði minn? — heyrirðu ekki hvað ég er að segja við þig? Eg heyri, góða mín, að strákaulinn er að minnsta kosti ekki að sálast úr sulti — eins og sumir aðrir! anzaði kaupmaður og bar ótt á: Búðarmennirnir hafa öðru að sinna en að vera í hleypiförum eftir meðalagutli við innantökum, — hann Grímur ekki síður en hinir. Það er ann- að, sem verður að ganga fyrir, elskan mín! Eg held þú getir sent einhverja kvensniftina, — ætli við verðum þar fyrir uppiski-oppa með sætabrauð? Það væri ný bóla, og mætti þó vel verða til að spara okkur meðalakaup. Annars ætla ég að biðja þig að tína saman af bakkelsinu og öðru góðu í sykurkassa og láta það ganga liðugt; — ég kem á stundinni og sæki hann. Kona kaupmanns dró auga í pung og varð ekki að gjalti; kannaðist svo sem við karl sinn, þegar þessi var gállinn á hon- um; — spurði, hvað hann eiginlega ætti við? Hverjum hann ætlaði að gefa köku- kassann? . . . Þá var henni einnig í mun að fá að vita, hvað komið hefði fvrir hurðina milli búðar og skrifstofu? — hvers vegna í ósköpunum leit hún þann veg út? Maður hennar bað hana þess lengstra orða, að vera ekki með neinar refjar; kvenfólk væri jafnan samt við sig, sagði hann: Annars er það hurðarböðullinn, sem brauðkassinn er ætlaður — ef þú endi- lega vilt vita það! Að svo mæltu þaut hann fram í búð, — sagðist hafa annað starf fyrir af- greiðslumennina en að stjana undir kaup- staðarbúa, sem ekkert lægi á. Grími skip- aði hann án málalenginga að beita þeim brúna fyrir sleðann, — léttasleðann! Álíka stuttorður var hann við búðarlok- urnar. Rauk svo inn í skrifstofu aftur og lét á vasapela; — því fyrr sem hann drægi dónann uppi, þess styttri yrði leið- in heim aftur. Þá leið yrði hann að kjaga fótgangandi; sá sér ekki annað fært en að lána mannhundinum hestinn og sleð- ann, að draga heim á birgðirnar. Ja, þvílíkt og annað eins! . . . Því segi ég það! . . . Nei, ekki dugir að ofklæða sig. Þegar búið hafði verið um föngin á grindinni og þau traustlega reyrð við rirnar, skorðaði þrýstni maðurinn skap- bráði sig í ökusæti, greip illvígur taum- ana, sveiflaði svipunni yfir þeim brúna sínum, og hafði ekki með öllu lokið ein- tali sínu: Hann Iét sig hafa það að segja „í Hel- víti"; það skal hann fá borgað, bannsett- ur! . . . En hvað er að tarna? — launarðu ofeldið með því að nenna ekki að hreyfa þig, húðarjálkur! SAMVINNAN 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.