Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1957, Blaðsíða 45

Samvinnan - 01.12.1957, Blaðsíða 45
leiðtogar bændafélaganna höfðu mesta trú á útflutningi lifandi sauðfjár og salt- kjöts, þó að hreyft væri umræðum um útflutning á nýju, kældu kjöti, eins og gert var á Alþingi 1909. Starfsmenn Sambandsins unnu að þessum markaðsmálum. Ekki var hægt um vik að færa út kvíarnar á stríðsár- unum, en Sambandið hafði þó tvær skrifstofur erlendis, aðra í Kaupmanna- höfn, en hina í New York. Skrifstofan í New York var lögð niður eftir þrjú ár, 1920, en Guðmundur Vilhjálmsson hafði veitt henni forstöðu. Höfðu beinar sigl- ingar milli Islands og Ameríku þá lagzt niður að mestu. A miðju ári 1920 var opnuð skrifstofa í Leith og veitti Guð- mundur Vilhjálmsson henni forstöðu. Það féll mjög í hans hlut að athuga sölu- möguleika á landbúnaðarafurðum í Stóra-Bretlandi og var höfuðáherzlan lögð á sölu lifandi sauðfjár og á kældu dilkakjöti. — Var mönnum ljóst af fyrri reynslu, að engar líkur voru fyrir sölu á saltkjöti í Bretlandi. — Tilraunir, sem gerðar voru með sölu á sauðfé, báru lítinn árangur. Að vísu seld- ist einn skipsfarmur til Belgíu 1923, og tveir farmar til Bretlands 1924. Þessi sala færði mönnum heim sanninn um það, að engin von væri um hagkvæma sauða- sölu til þessara gömlu markaðslanda, enda var sáralítið til af sauðum í land- inu, svo meginhlutinn af því fé, sem boð- ið var til sölu, voru geldar ær á ýmsum aldri. Hefði átt að taka upp sauðaút- flutning að nýju í stórum st.il, hefði þurft að breyta búnaðarháttum stórlega. Skömmu eftir að Guðmundur Vil- hjálmsson settist að í Leith, vakti hann athygli á því, að Bretar flyttu inn fros- ið kjöt í stórum stíj. Var að vísu gamall fordómur á freðkjöti í Bretlandi, sem einnig hafði borizt til íslands. Hér var þó ekki um neina nýjung að ræða, því Bretar höfðu flutt inn freðkjöt árlega frá 1880, aðallega frá Astralíu og Nýja-Sjá- landi. Á stríðsárunum 1914—18 breytt- ist skoðun almennings í Bretlandi á freðkjötinu. Þá varð það almennings- fæða og líkaði ágætlega. Eftir að stríðinu lauk hélt almenningur þessum kjötkaup- um áfram, þó að verð freðkjötsins væri þá orðið miklu hærra, rniðað við verð á nýju kjöti, en verið hafði fyrir stríð. Jafnframt því að gefa svona upplýsingar hvatti Guðmundur eindregið til þess að hafinn yrði útflutningur á frosnu kjöti, en þar sem bersýnilegt var, að Iangur dráttur yrði á framkvæmdum, þar sem bæði vantaði frystihús og fullkomið flutningaskip, var að því ráði horfið að flytja til Bretlands smásendingar af nýju (kældu) og frystu kjöti með „GuIlfossi“ og „íslandi“ á árunum 1922—1925. Þótt þessar tilraunir væru í smáum stíl og sumar mistækjust, þá leiddu þær í ljós, að þegar kjötið komst óskemmt á brezkan markað, líkaði það vel, bæði frosið og ófrosið, en þá jafnframt það, að engar líkur voru til, að liægt yrði að flytja út kælt kjöt svo nokkru næmi, eins og margir höfðu haft trú á. Tilraunir þessar og aðrar athuganir á markaðsmöguleikum fyrir íslenzkt dilkakjöt í Bretlandi gáfu góðar vonir um að takast rnætti að vinna þar varan- legan markað fyrir frosið kjöt. Hinn ótryggi saltkjötsmarkaður í Noregi ýtti einnig á eftir að leita nýrra úrræða. Eru þessi markaðsmál allítarlega rakin í grein, sem ég skrifaði í Tímann 2. febr. 1924. Á fundum kaupfélaganna og Sam- bandsins voru þessi mál mikið rædd og einnig var skrifað mikið um málið i blöð landsins, einkum í sambandi við hinn síhækkandi toll á íslenzka kjötinu í Nor- egi. Emil Nielsen framkvæmdastjóri Eimskipafélagsins skrifaði grein í Morg- unblaðið, þar sem hann bendir á nauð- syn þess að landið eignist kæliskip. —■ Til að fyrirbyggja misskilning skal það fram tekið, að þó jafnan sé rætt um „kæliskip“, sem gæti gefið til kynna, að hér væri um að ræða kælingu aðeins, en ekki frystingu, þá er í áðurnefndum blaðagreinum gert ráð fyrir, að væntan- legt kæliskip geti haldið —8° C. í lest- unum. Reglur þær, sem enskir fræðimenn gáfu okkur, voru á þá leið, að frysta kjöt við —12° til —14° C„ en geyma það við —8° til —10° C. —oo— I 25 ára afmælsiriti Eimskipafélags Is- lands er þannig skýrt frá kaupunum á „Brúarfossi“: „Á Alþingi 1924 bar fjárveitinganefnd neðri deildar fram tillögu til þingsálvkt- unar um kæliskip, og var hún samþykkt og afgreidd til ríkisstjórnarinnar (Alþt. 1924 A, þskj. 453, bls. 831—32). Á sama þingi var og samþykkt áskorun til ríkis- stjórnarinnar um að skipa 5 manna nefnd til þess að rannsaka málið og beita sér fyrir undirbúningi og framkvæmd þess. Þann 26. júlí 1924 var nefnd þcssi skipuð, og áttu sæti í henni þessir menn: Emil Nielsen, framkvæmdastjóri, for- maður, Carl Proppé, framkvæmdastjóri, Iíalldór Kr. Þorsteinsson, skipstjóri, Jón Árnason, framkvæmdastjóri og Tryggvi Þórhallsson, síðar forsætisráðherra. Nefndin klofnaði í málinu, og skiluðu þessar mundir var verð á skipasmíðum óvenjulega lágt. Stafaði það sumpart af atvinnuleysi skipasmíðastöðvanna vegna báðir hlutar áliti. Meiri hlutinn, er skipaður var þremur hinum fyrst töldu nefndarmönnum, lagði það til. að mál- inu yrði frestað, þar til meiri reynsla væri fengin um þennan útflutning og frystihúsum hefði verið fjölgað á helztu kjötútflutningshöfnum landsins. Hins vegar lagði minni hlutinn, þeir Jón Árna- son og Tryggvi Þórhallsson, það til, að framkvæmd málsins yi'ði hraðað sem rnest. í því skyni báru þeir fram tvö lagafrumvörp, annað um lánveitingar úr ríkissjóði til þess að reisa íshús, en hitt um kaup á kæliskipi. Lögðu þeir til, að undirbúningur yrði þegar hafinn til þess að fullkomið kæliskip yrði keypt til landsins og að Ieitað yrði samninga við Eimskipafélag íslands um framlag ákveðins hluta þess fjár, sem þvrfti til skipakaupanna, enda tæki félagið að sér rekstur og stjórn skipsins að öllu leyti. Á þinginu 1925 var lítið aðhafzt í þessu máli, enda tók Eimskipafélagsstjórnin dauflega í slíka samvinnu á þeim grund- velli, sem fyrir lá. Seinni hluta árs 1925 og í ársbyrjun 1926 fóru fram bréfa- skipti milli ríkisstjórnarinnar og félags- stjórnarinnar um kæliskipsmálið (Alþtíð. A, þskj. 94, bls. 291—293). Féllst félags- stjórnin á að láta smíða kæliskip gegn því, að ríkissjóður legði fram 350.000 kr. til skipasmíðanna í eitt skipti fyrir öll, ásamt fleiri nánar tilgreindum skilvrð- um. Að fengnum þessum samvinnu- grundvelli við Eimskipafélagið var málið svo tekið upp á Alþingi 1926. Hafði það hinn bezta byr í gegnum þingið. Gekk Alþingi að skilyrðum þeim. er Eimskipa- félagsstjórnin hafði sett, og afgreiddi lög um framlag til kæliskipakaupanna (lög nr. 11, 15. júní 1926) Þegar er séð var fyrir um það, hvern- ig fara mundi um afgreiðslu málsins á Alþingi, ákvað félagsstjórnin i samráði við ríkisstjórnina að leita fyrir sér um tilboð í smíði skipsins og útvega nauð- synleg lán til verksins. Eftir að fengizt höfðu loforð um lán þessi í Hollandi og Danmörku, var gerður samningur um smíði á skipinu þann 7. maí 1926 við lægstbjóðanda, Köbenhavns Flydedok og Skibsværft, en alls höfðu komið 7 til- boð í smíðina. Kostaði skipið fullgert 1.396.000 íslenzkar krónur. Þær 350.000 kr„ sem ríkissjóður lagði fram, voru strax dregnar frá bókuðu eignarverði skipsins, þannig að skipið kostaði félag- ið sjálft 1.046.000 kr. og var bókfært með því verði. Ástæðan til þess, að undinn var svo bráður bugur að því að semja um smíði á skipinu, var bæði sú, að fé- laginu lá á því að eignast sem fyrst skip til viðbótar, og svo einnig hitt, að um SAMVINNAN 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.