Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1957, Blaðsíða 11

Samvinnan - 01.12.1957, Blaðsíða 11
Þetta er einn af mörgum tillöguuppdráttum GuSjóns af Landsspítalanum. Htett var við turninn, en annars hefur teikningin ekki breytzt til muna. flP &e^^pOF^U(2lOTU. Sundhöllin í Reykjavík er reist undir merki hinnar beinu línu og þar nefur Guðjóni tekizt vel að skapa lisbrœna heild. Ibúðarhús skólastjóra Samvinnuskólans við Hávallagötu hefur lengi þótt með svipfegurstu íbúðarhús- um í Reykjavík. Það er byggt í frönskum stíl og einkum er eftirtektarvert, hversu öll hlutföll eru fullkomin. byggingunum sérstakan og rammís- lenzkan svip. Ekki verður sagt, að hamrastíllinn sé byggingarstíll, er hæfir öllum bygg- ingum eða hægt er að nota mjög mikið. Hann er öllu heldur viðhafnar- búningur, sem nota má með mjög góðum árangri á sérstökum tegund- um stórra bygginga, eins og Guðjón gerði. Og það er ekki sízt á slíkum byggingum, sem ánægjulegt er að eiga til eitthvað annað en bygginga- tízku umheimsins á hverjum tíma eða eftirmyndir af byggingastíl, sem til er orðinn fyrir allt annað umhverfi úti í löndum. Það er ekki sízt fyrir þessa viðleitni sína, sem Guðjón Samúels- son sker sig úr hópi annarra íslenzkra húsameistara, en þá mátti telja á fingrum, þegar Guðjón byrjaði að byggja, en þeir voru allfjölmenn stétt, þegar hann lézt. HÚÐUN STEINHÚSA. Guðjón Samúelsson vann allmikið brautryðjendastarf á einni hlið bygg- ingalistarinnar, en það er húðun steinhúsa. Fram á starfsævi Guðjóns voru steinhúsin öll með hinum gráa lit steinsteypunnar, og varð all drungalegt yfirlitum í bæjum, þar sem slíkum húsum fjölgaði. Ekki var um annað að ræða til tilbreytingar en að olíumála húsin, en það var dýrt og vafasöm ending litarins. Guðjón gerði fyrstur manna til- raunir með að nota íslenzkar berg- tegundir til að húða húsin utan. Not- aði hann hrafntinnu, silfurberg og margt fleira, og sýndi þessa tækni á leikhúsinu, háskólanum og fleiri byggingum. Var þetta mikil útlitsbót og að auki rammíslenzk lausn á vandamáli. Guðjón byggði margt á seinustu árum sínum með þeim svip, sem Jón- as Jónsson kallar „lýðveldisstíl“. Var hann þá kominn inn á þá braut að hafa hús sín sem allra einföldust og skrautlaus. Byggðist þá útlitið ein- göngu á hlutföllum og gluggaskipan og tókst oft vel. Má benda á bvgg- ingar eins og Gagnfræðaskóla Aust- urbæjar, Skógaskóla og fæðingar- deild Landsspítalans sem dæmi um þennan lokasvip hans. Guðjón Samúelsson var, eins og flestir miklir listamenn, umdeildur, meðan hann var á lífi, og eru bygg- ingar hans það raunar enn. En því betra heildaryfirlit, sem þjóðin fær af ævistarfi hans, því lengur sem hún hefur fyrir augunum stórbyggingar hans, því meira mun hún meta þenn- an höfuðmeistara húsagerðarlistar hér á landi. Á þessu hausti kemur út hjá Norðra bók um Guðjón Samúelsson, þar sem myndir og teikningar af bygg- ingum hans eru yfir 200. Mun þá landsfólkinu í fyrsta sinn gefast kost- ur á að kynnast í nokkurri heild verkum Guðjóns og er það spá þeirra, sem bezt þekkja til, að fáir muni geta látið þá bók frá sér án þess að hafa öðlazt nýja innsýn og nýja aðdáun á byggingum Guðjóns Samúelssonar. Guðjón Samúelsson teiknaði margar kirkjur víðs- vegar um land. Ein þeirra er kirkjan á Akureyri, sem er með fegurstu kirkjum þessa lands. SAMVINNAN 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.