Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1957, Blaðsíða 22

Samvinnan - 01.12.1957, Blaðsíða 22
Björn Th. Björnsson, listfræðingur: HÁTT DUNAR DANSINN o Dansæði á miðöldum o Dansinn á Bakkastað o Tízkudansar og ballklæðnaður o Fyrsta ballið í Reykjavík o Rock and roll Dansœði miðalda. Ekki alls fyrir löngu kom ég þar sem reykvíkskir unglingar liorfðu á eina svo- nefnda rock’n-roll kvikmynd. Það lá við sjálft að húsið umturnaðist. Og að því er blöðin segja okkur, hefur þetta dans- æði víða gerzt svo hamslaust erlendis í borgum, að það hafi jafnvel kostað líf og limu sumra dansendanna. Hér ætla ég ekki að ræða dansinn sjálfan, né þær menningarlegu orsakir, sem valda því, að dansfýsnin brýzt nú fram í svo hams- lausri mynd. Það er ævagamalt orðtak að heimur fari versnandi, og hver kyn- slóð fullorðinna er jafn sannfærð um það, að nú sé æskulýðurinn raunveru- lega — og endanlega — að ganga af göfl- unum. Og þar sem rock’n-roll dansæðið er nú, þykjast menn heyra Fenrisúlf geyja. Skyggnist menn hinsvegar aftur í menningarsögu Evrópu, verða þeir þess vísari, að dansæðið er langt frá því ný bóla hér í álfu. A miðöldum gengu trvll- ingslegir dansfaraldrar hvað eftir annað eins og brim yfir meginlandið. Framan af miðöldum er þess oft getið, að fólk verði gripið dansæði við messugerðir, en þó er það ekki fyrr en með svartadauða, sem slík sturlun fer að taka á sig svip almenns faraldurs. Hið fyrsta mikla dansæði miðaldanna brýzt út árið 1374, og eru til heimildir um það frá borginni Aachen. I júlí þá um sumarið kom mikill mannsöfnuður dans- andi inn um borgarhliðin í Aachen, dansaði um götur og sund, inn í mið- borgina, frávita af tryllingi, og þar liélt dansinn áfram dag og nótt, svo hams- laus, að margir sprungu af áreynslunni, en aðrir voru troðnir undir. Verst var þó, að dansæði þetta var bráðsmitandi; ung- ir og gamlir slógust í hópinn, svo við ekkert varð ráðið. Samkvæmt heimild- um þessa tíma, svo sem frásögn Petrus de Herentals, fylgdi blvgðunarlaust sið- leysi í kjölfar dansins og mjög almenn geðsturlun. IMeðan fólk var haldið æð- inu, þóttist það sjá sýnir: við sumum glotti djöfullinn sjálfur, aðrir sáu opinn himininn, heilaga júngfrú og allan henn- ar dýrðlega skara, enda er ekki um að efast, að múgsefjun þessi hefur átt or- sök í þeirri kviku trúar og hjátrúar, sem ýfðist svo mjög eftir pláguna miklu. Ein borgaradóttir í Basel. Annar þessara miklu dansfaraldra gekk yfir árið 1418, og virðist liafa átt uppruna sinn í Strassburg. Um það er enn til þetta erindi: Viel hundert fingen zu Strassburg an Zu tanzen und springen, Frau und Mann; An offnen Markt, Gassen und Strassen, Tag und Nacht, Ihren viel nicht assen, Bis in das Wiiten wieder gelag, Sankte Vits Tantz ward genannt die Plag. En það þýðir, lauslega útlagt: í Strass- burg hófu hundruð manna hopp og dans, jafnt karlar sem konur. Þau dönsuðu á opnum torgum, á strætum og stígum, nótt og dag, og neyttu lítils matar, unz æðið hjaðnaði að lokum. Plága þessi var kölluð dans hins heilaga Vítusar. Iðulega endaði slíkt dansæði með skelfingum. Árið 1278 er þess getið, að mannfjöldi hafi dansað svo æðislega á brú einni nálægt Utrecht, að hún brotn- aði undan, og nær tvö hundruð manna drukknuðu í ánni. Til er tréstunga eftir Michel Wolgemuth frá síðari hluta 15. aldar, sem sýnir þennan atburð. Yfirvöld borganna, sem herjaðar voru af dansæðinu, reyndu ýmis meðöl til 22 SAMVINNAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.