Samvinnan - 01.12.1957, Qupperneq 55
*7
JÓLIN eru hátíð heimilanna
Er heimili yðar
nægilega tryggt?
Margir halda, að heimilið sé öruggasti stað-
ur veraldar fyrir þá, sem þar dveljast. Því mið-
ur er þetta ekki með öllu rétt. Reynslan sýnir,
að margvísleg slys og óhöpp geta komið fyrir á
heimilum, ef ekki er gætt fyllstu varúðar í hví-
vetna, og valdið meiðslum, sorg, skemmdum og
jafnvel stórtjóni. Heimilisfeður og mæður verða
að vera á verði fyrir öllum hættum, ekki sízt
um stórhátíðir eins og jólin.
Fyrir þá, sem ekki vilja eingöngu treysta á
árvekni sína og heppni gagnvart slysum og
tjónum á heimilum, hafa tryggingafélögin sett
á fót margvíslegar tryggingar. Hið opinbera
hefur gert brunatryggingu íbúðarhúsa að
skyldu. Þar að auki hafa flestir heimilisfeður
tryggt innbú sín, en mikið skortir á, að þær
tryggingaupphæðir séu yfirleitt nógu háar. Það
verður að hækka slíkar tryggingar með hækk-
andi verðlagi, svo að þær nái ávallt því takmarki,
að hægt sé að endurnýja brunnið innbú fyrir
upphæðina.
Þá hafa Samvinnutryggingar nú um skeið boðið hina nýju heimilistryggingu, sem reynzt hefur
mjög vinsæl. Þar er auk brunatryggingar tryggt fyrir vatnsskaða, innbrotum, þjófnaði, tjónum á
farangri heimilisfólks á ferðalögum innanlands. Ennfremur ábyrgðartrygging (t. d. ef barn brýtur
rúðu) og loks slysatrygging húsmóður. Þessi margþætta heimilistrygging er mjög lítið dýrari heldur
en brunatrygging innbús en veitir heimilinu margvíslegt öryggi gegn ýmiskonar útgjöldum, sem geta
fallið á heimilið.
Hver sá, sem vill hlúa vel að heimili sínu og tryggja fjárhag sinn eins og frekast er unnt, ætti
SAMVINNAN 55