Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1957, Síða 59

Samvinnan - 01.12.1957, Síða 59
Nýjar Norðrabækur Erling Brunborg, CM ÍSLAND TIL ANDESÞJÓÐA. Höfundur leggur upp frá Noregi, stefnir til íslands, þaðan til Kanada og vestur að Kyrrahafi, suður eftir Bandaríkjunum, Mexíkó og öðrum Mið-Ameríku-löndum, unz hann kemst til Galapagos-eyja, þar sem dýralífið er eins og á þeim tímum, er risa- eðlur voru til. Síðan fer hann aftur til meg- inlandsins, þar sem hann ferðast milli hafa á öllum hugsanlegum farartækjum. Og loks vinnur hann fyrir farinu heim. (Tíminn, Sigurður Þórarinsson): „Höf- undur hefur ekki aðeins vökul augu, hann hefur hjartað á réttum stað. Bókin er brunnur fróðleiks um lönd þau, er höfund- ur gistir. Frásagnamátinn er fjörlegur og hressilegur, stíllinn dálítið unggæðingsleg- ur á köflum, en batnar þegar á bókina líð- ur. Ekki þykir mér ólíklegt, að Erling Brun- borg eigi eftir að verða frægur ferðabóka- höfundur —“. Elinborg Lárusdóttir: FORSPÁR OG FYRIRBÆRI. Þeir munu vera fjölmargir íslendingar, sem þekkja eða hafa þekkt Kristínu Helga- dóttur Kristjánsson og kynnzt skyggni- og spásagnahæfileikum hennar. Færri hafa þó vitað að hún er miðill líka. Elínborg hef- ur farið líkum höndum um efni þetta og í bókinni „Miðillinn Hafsteinn Björnsson". Sigurður Þórðarson söngstjóri ritar formáls- orð. Bókin fjallar um efni, sem íslendingum hefur löngum verið hugleikið. (Tíminn, Jónas Þorbergsson): — dul- rænar gáfur Kristínar eru meðal þeirra fá- gætustu og jafnframt dularfyllstu, með því að hún sér og segir fyrir óorðna hluti —, bók þessi er vönduð að gerð, frásagnar- háttur öfgalaus og trúverðugur og stílsetn- ing smekkvísleg. Gunnlaugur Björnsson: HÓLASTAÐUR. „Heim að Hólum“ er fornt orðtæki, sem lifað hefur og lifir enn í huga og hjörtum íslendinga. Á Hólum í Hjaltadal mætast forn og frægð og nýi tíminn. Enn sækja íslendingar vizku og lærdóm til hins forna höfuðbóls og menntaseturs. Á þessu ári voru 75 ár liðin frá þvi að búnaðarfræðsla hófst á Hólum. I tilefni þess hefur Gunnlaugur Björnsson bóndi í Brim- nesi og fyrrum kennari á Hólum tekið sam- an þessa girnilegu bók. Gunnlaugur er manna fróðastur um sögu Hóla að fornu og nýju. Hann er ágæt- lega ritfær, enda er HÓLASTAÐUR skipu- lega samin bók, framsetning ljós, stíllinn í senn lipur og þróttmikill og málið vandað og kjarngott. Höfundi hefur tekizt með af- brigðum vel að fella mikið og margþætt efni í lifandi heild. Bændastéttinni, og ekki sízt Hólasveinum, ungum sem öldnum, verður því þessi bók kærkomið lestrarefni. (Alþýðublaðið, Helgi Sæmundsson): „Hon- um tekst að láta ýmiskonar frásögn mynda trúverðuga og samfellda heild. — Gunn- laugur speglar í fáum orðum það sem svo mörgum yrði á að teygja og toga von úr viti. Honum ber há einkunn að verkalokum. Pálmi Hannesson og Jón Eyþórsson: HRAKNINGAR OG HEIÐAVEGIR IV. Hér er enn sem fyrr brugðið upp sönnum og eftirminnilegum svipmyndum af viður- eign íslendinga við svipula náttúru hins ógnfagra lands, er þeir byggja. Þetta bindi er hið fjórða og jafnframt hið síðasta í hinu stórmerka og vinsæla rit- safni. (Alþýðublaðið, Helgi Sæmundsson): — þættirnir í ritverkinu eru flestir ágætir og sumir afburðavel sagðir. Má þar kenna handbragð þeirra beggja, ritstjóranna. — Ólafur Jónsson: SKRIÐUFÖLL OG SNJÓFLÓÐ, I—II. íbúar fjallalanda þekkja þær hrollvekj- andi hamfarir náttúrunnar, er skriður falla eða snjór flæðir niður hlíðar. Fáar hörm- ungar eru þeim, sem fyrir þeim verða, eins afdrifaríkar, enda hefur margur dalbúinn hlotið grimmileg örlög, er skriður eða snjó- flóð féllu á bæ hans. — Frá slíkum viðburð- um segir í þessu mikla ritverki. Hér er ekki um að ræða einangraða þætti, heldur ítar- legt rit um orsakir skriðufalla og snjóflóða, varnir gegn þeim og nákvæmar frásagnir slíkra atburða hér á landi svo langt aftur, sem heimildir geta. Þessi tvö bindi segja hrikalega sögu, sem er snar þáttur í mótun landsins og baráttu íslenzku þjóðarinnar fyrir lífi sínu í harð- býlu og veðraþungu landi. (Tíminn, Sig. Þórarinsson): „— Það er því þjóðþrifaverk, sem Ólafur hefur nú unnið af dæmafárri elju og þarf hann sannarlega ekki að afsaka það, að þetta verk hafi stundum stolið stundum frá öðr- um störfum, og vel má hann vita, sem vís- indamaður, að þetta rit er hin þarfasta lesning sérhverjum íslenzkum búfræðingi, — en það á t. d. erindi til allra fjalla- og skíðamanna. Ég hygg mér sé þó óhætt að spá því, að það muni síðar þykja hafa verið skynsamleg fjárfesting að kaupa þetta rit. — Sumir kaflarnir eru beinlínis spennandi aflestrar." (Frjáls þjóð, Jón Helgason): „— Höfund- ur hefur unnið stórkostlegt brautryðjenda- starf á því sviði, sem hann hefur helgað sig, og skilað verki, sem lengi mun verða talið hið mesta stórvirki. — Norðri hefur gefið bækurnar út með sóma, til útgáfunn- ar hefur sýnilega verið vandað“ Þórarinn Grímsson Víkingur: MANNAMÁL. Löngum hefur það verið háttur íslend- inga að segja frá og skrá það merkverð- asta, sem skeð hefur í byggðalögunum. Þórarinn Gr. Víkingur er fjölhæfur og gáfaður fræðimaður. Stíll hans er léttur og blæfagur og yfirsýn hans ágæt. Um efnið allt, þótt ólíkt sé að uppruna, fer hann nærfærnum höndum. Efniviðurinn er úr ýmsum áttum, og þegar saman er komið lýsir hann sérstaklega vel aldarhætti og hugsanaferli manna, er lifðu hér um alda- mótin. (Vísir, Guðm. Daníelsson): — sumir þeirra munu vekja athygli og þykja fengur í bókmenntum vorum. Guðmundur Gíslason Hagalín: SÓL Á NÁTTMÁLUM. Stórbrotin skáldsaga. Eftir 12 ára þögn, kemur skáldsaga frá Hagalín, óviðjafnanleg í byggingu, stíl og frásögn. Persónurnar koma fram skýrar og ógleymanlegar. Sögu- sviðið er lífið sjálft — með öllum sínum áætlunum. — Einn verður ríkur í dag, en tapar um leið rótfestunni, annar bíður og missir af vagninum, en stendur eftir sterk- ari á eigin fótum. Bókin talar máli unga fólksins sem á að erfa landið og sannar, að það muni standast strauma lífsins. Sól á náttmálum mun veita Hagalín æðsta sess á skáldbekk þjóðarinnar. (Alþýðublaðið, Helgi Sæmundsson): „Höf- undinum hefur svo tekizt, að þetta mun verða talin merkilegasta skáldsaga hans ef hún er vel lesin og rétt skilin." (Morgunblaðið, Rvk.bréf B. Ben.): „Hin nýja skáldsaga Guðm. G. Hagalíns, Scl á náttmálum, vekur athygli og umtal þeirra, er lesið hafa. Öllum kemur saman um, að bókin sé skemmtileg aflestrar. (Vísir, Guðm. Daníelsson): „Annars tel ég, að í heild standi „Sól á náttmálum" fyllilega jafnfætis því, sem Hagalín hefur áður bezt gert í skáldskap. Hann hefur enn stokkið hæð sína og vel það.“ (Tíminn, Andrés Kristjánsson): „Haga- lín hefur skrifað skáldsögu, sem mun lifa. Áhrifameiri bók hefur hann ekki skrifað til þessa“. BÓKAÚTGÁFAN NORÐRI SAMVINNAN 59

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.