Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1957, Síða 62

Samvinnan - 01.12.1957, Síða 62
ODÝRASTA LIFTRYGGING, SEM HÆGT ER AÐ FA Það er hverjum hugsandi manni nauð- synlegt og skylt að eiga líftryggingu. Þetta er skylda gagnvart fjölskyldu og henni til öryggis, svo að kona og börn standi ekki uppi með tvær hendur tómar, ef fyrirvinnan fellur frá. Líftryggingar hafa hingað til verið með þeim hætti hér á landi, að hver einstakur hefur orðið að tryggja fyrir sig, og hafa því alltof fáir menn gert það. En nú hefur Líf- tryggingafélagið Andvaka tekið upp nýja gerð trygginga, sem er þannig, að bæði munu miklu fleiri menn en áður kaupa sér líftryggingu, og þeir munu geta fengið hana ó- dýrari en nokkru sinni fyrr. Er þetta með svokölluðum hóp- líftryggingum, þar sem heilir hópar manna, til dæmis starfsfólk fyrirtækja, geta tryggt sig í einu lagi. Hóptrygging er aðeins áhættutrygg- ing þannig, að umsamin upphæð er greidd aðstandendum, ef hinn tryggði fellur frá. Hún gildir frá ári til árs, en er ekki samningur til langs tíma og ekki sparnaðarráðstöfun á sama hátt og venjuleg líftrygging. Kynnið yður hóplíftryggingar And- vöku. Verð þeirra er ótrúlega lágt, og það öryggi, sem þér getið skapað fjölskyldu yðar, mjög mikið. Athugið, hvort starfsbræður yðar eða félagar í einhverju félagi geta ekki sameiginlega skapað sér öyggi líftryggingar á hagkvæman hátt. Ef þér eruð að byggja eða afla atvinnutækja að ein- hverju leyti með lánsfé, er það meira virði fyrir fjölskyld- una en nokkru sinni, að þér séuð vel líftryggður. Lcitið allra upplýsinga í skrifstofu Andvöku í Sambandshúsinu í Reykjavík eða hjá umboðsmönnum fé- lagsins (t. d. kaupfélögunum) um land allt. Dragið ekki að koma öryggi fjölskyldu yðar í gott lag. Eng- inn veit, hvenær það kann að vera um seinan. LÍFTRYGGINGAFÉLAGIÐ -Andvaka Allar beztu húsgagnaverzlanir hafa áklæði frá Gefjuni. Nýjar gerðir koma fram reglulega og haldast hönd í hönd við tízkusveiflur okkar og annarra þjóða. ★ ★ ÁKLÆÐI FRÁ GEFJUNI Húsgögn frá Valbjörk, Akureyri 62 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.