Samvinnan - 01.10.1971, Síða 22

Samvinnan - 01.10.1971, Síða 22
1970 (91. löggjafarþing) — 51. mál Sþ. 51. Tillaga til þingsályktunar um rannsókn á jafnrétti þegnanna í íslenzku þjóðfélagi. Flm.: Magnús Kjartansson. Alþingi skorar á rikisstjórnina að láta framkvæma rannsókn á jafnrétti þegnanna í íslenzku þjóðfélagi. Sérstaklega skal rann- sóknin beinast að því, hvernig háttað er raunverulegu jafnrétti karla og kvenna að því er varðar menntun, störf, launakjör og hvers kyns þátttöku í félagslegum verkefnum. Jafnframt skal kannað, hverjar breytingar á gerð þjóðfélagsins gætu stuðlað að því að auka jafnrétti manna. Að rannsókninni lokinni skulu nið- urstöður hennar birtar. 1970 (91. löggjafarþing) — 51. mál. Sþ. 424. Nefndarálit um till. til þál. um jafnrétti þegnanna í islenzku þjóðfélagi. Frá meiri hl. allsherjarnefndar. Nefndin hefur haft þáltill. þessa til athugunar og sent ýmsum aðilum til umsagnar. Hefur nefndin ekki orðið sammála um af- greiðslu þáltill. Undirritaðir nefndarmenn leggja til, að Alþingi samþykki til- löguna, en vekja jafnframt athygli þeirra, sem framkvæmdu rannsókn þá, er tillagan greinir, á umsögnum þeim, er birtar eru hér með sem fylgiskjöl. Alþingi, 25. febr. 1971. Bragi Sigurjónsson, Gísli Guðmundsson. Jónas Árnason. form., frsm. Vilhjálmur Hjálmarsson. 1970 (91. löggjafarþing) — 51. mál. Sþ. 442. Nefndarálit um till. til þál. um jafnrétti þegnanna í íslenzku þjóðfélagi. Frá minni hl. allsherjarnefndar. Allsherjarnefnd hefur rætt tillöguna á mörgum fundum og varð ekki sammála um afgreiðslu. Minni hluti nefndarinnar, sem að þessu áliti stendur, sér ekki ástæðu til að skora á ríkisstjórnina að beita sér fyrir sérstakri rannsókn á því, sem nefnt er jafnrétti þegnanna i tillögunni, enda þótt taka megi undir það, sem í greinargerð till. stendur: „Hins vegar væri fróðlegt, að þetta við- fangsefni yrði kannað gaumgæfilega . . .“ Mörg eru þau viðfangs- efni í þjóðfélagi okkar, sem fróðlegt væri að kanna. Væntanlega yrði skipuð nefnd til að rannsaka það efni, sem tillagan fjallar um, ef samþykkt yrði. Langt er síðan nefndir þóttu nægjanlega margar á opinberum vettvangi, misjafnlega starfsamar. Sífellt er unnið í löggjöf og stjórnsýslu að jafnrétti þegnanna. Greinargerð tillögunnar ber með sér, að ýmsir hópar hafa verið athugaðir út frá skiptingu milli kynja, t. d. í skólum og nokkrum starfsgreinum. Ágætt er að sjá slíkar upplýsingar. Hitt mætti meir telja vafa, hverjar upplýsingar um jafnrétti þær gefa. Frá sköpun heims virðist um nokkra grundvallarskiptingu ætlunar- verka hafa verið að ræða milli karla og kvenna, og hefur Alþingi ekki farið inn á þær brautir að reyna að hafa þar áhrif á, en á hinn bóginn viljað stuðla að sem fyllstu jafnrétti milli kynja og með þegnunum yfir höfuð. Með skírskotun til framanritaðs telur minni hl. nefndarinnar ekki ástæðu til, að Alþingi samþ. tillögu þessa, en viil eftir at- vikum leggja til, að henni verði vísað til ríkisstjórnarinnar. Alþingi, 1. marz 1971. Jónas Pétursson, Friðjón Þórðarson. Ásm. B. Olsen fundaskr., frsm. Fylgiskjal I. KVENFÉLAGASAMBAND ÍSLANDS Reykjavik, 21.1 ’71. Til allsherjarnefndar sameinaðs Alþingis, Alþingi. Allsherjarnefnd sameinaðs Alþingis hefur sent Kvenfélagasam- bandi íslands til umsagnar tillögu til þingsályktunar nr. 51, um rannsókn á jafnrétti þegnanna í íslenzku þjóðfélagi. Stjórn K. í. telur æskilegt, að tillaga þessi verði samþykkt og sú rannsókn, sem hún fjallar um, verði látin fram fara hið bráð- asta. En i þvi sambandi vill K. í. benda á eitt rannsóknarefni til viðbótar þeim, sem nefnd eru í greinargerðinni, sem þingsálykt- unartillögunni fylgir. Það er munur að vera maður og miga standandi! í kauphöllinni í London eru konur óvelkomnar. Verðbréfasalar Lundúna höfnuðu því að veita konum inngöngu í félag sitt. Ein röksemdin var þessi: í kauphöllinni í London eru eingöngu karlasalerni. í Reykjavík taorga konur 7 krónur fyrir að pissa á almenningssalernum taorgarinnar, en karlmenn pissa ókeypis. í hagskýrslum hérlendis eru hvergi metin til fjár þau störf, sem húsfreyjur inna af höndum með því að veita heimilum for- stöðu og sinna þeim margvíslegu verkefnum, er falla innan þeirra verkahrings. Vitað er til dæmis, hver fjárútgjöld fylgja því að búa barni vist á dagstofnun eða vistheimili, hvaða fjár- muni þarf til að byggja og reka stofnanir fyrir aldrað fólk og langlegusjúklinga, en umönnun barna, gamalmenna og lang- legusjúklinga er meðal þeirra starfa, sem fjölmargar húsfreyjur leysa af rendi á heimilum sínum, auk almennra heimilisstarfa. Sem dæmi um það, hver liður störf húsmæðra geta reynzt tölu- lega i þjóðartekjum, má benda á, að í Noregi voru þessi störf tekin með i hagskýrslu árið 1947 og var þá verðgildi þeirra talið samsvara 14 hundraðshlutum þjóðarteknanna. Full ástæða virðist til þess að meta hin ólaunuðu störf hús- mæðranna til fjár, m. a. til að tryggja þessari fjölmennu stétt óhrekj anlega tilkall til ýmissa hlunninda til jafns við aðrar at- vinnustéttir, svo sem til bóta frá almannatryggingum og til or- lofsfjár. Má það vissulega teljast einn þáttur þess að mismuna þegnum þjóðfélagsins, að starfa þessarar fjölmennu stéttar sé að engu getið í þeim tölum, sem sýna eiga framlag atvinnustétt- anna til fjármunamyndunar þjóðarbúsins. Virðingarfyllst, f. h. KVENFÉLAGASAMBANDS ÍSLANDS Helga Magnúsdóttir. 22

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.