Samvinnan - 01.10.1971, Síða 26

Samvinnan - 01.10.1971, Síða 26
af hópnum Línuritin sýna hvernig karlar og kon- ur innan Verzlunarmannafélags Reykjavíkur skiptast í launaflokka. Laun þeirra, sem lenda ofar en í 12. launaflokki; eru samningsatriði milli launþega og atvinnureleanda, en eru elclci ákveðin af stéttarfélaginu. Tafla II. Menntun Lágmenntun Miðlungsmenntun Hámenntun Starfsaldur 0— 5 ár 5—15 ár 16 árog I. 0— 5 ár 6—15 ár 16 árog I. 0— 5 ár 6—15 ár 16 árog I. I . II I. IV. V. VI. VII. VIII. IX. Kyn kk kvk kk kvk kk kvk kk kvk kk kvk kk kvk kk kvk kk kvk kk kvk 5—10 launafl. 10 2 1 2 2 11—14 launafl. 1 3 4 2 3 3 1 1 15—19 launafl. 3 1 3 20—27 launafl. 1 4 1 1 2 Tafla III. Menntun Lágmenntun Miðlungsmenntun Hámenntun Starfsaldur 0— 5 ár 6—15 ár 16 árog I. 0— 5 ár 6—15 ár 16 árog I. 0— 5 ár 6—15 ár 16 árog I. I. I . III. IV. V. VI. VII. VIII. IX. Kyn kk kvk kk kvk kk kvk kk kvk kk kvk kk kvk kk kvk kk kvk kk kvk 5—10 launafl. 1 3 1 3 1 3 1 1 11—14 launafl. 1 1 3 1 1 1 15—19 launafl. 2 2 2 5 3 7 2 1 1 1 20—27 launafl. 1 1 3 3 2 1 Tafla II: Konur dreifast á 5.—14. launaflokk. Karlar dreifast á 12.—27. launaflokk. Konur með miðlungsmenntun taka í hæsta lagi laun samkvæmt 10. launa- flokki. Karlar með sambærilega menntun eru í 14.—21. launaflokki. Tafla III: Konur með miðlungsmenntun dreifast á 8.—17. launaflokk. Karlar með sambærilega menntun dreifast á 13.—25. launaflokk. Tafla III lítur miklu skár út, en þó má þar gagnrýna ýmislegt. Til dæmis er aðeins ein kona í þeirri línu, þar sem hæstu launaflokkarnir eru sýndir, og hefur hún hámarks- menntun og starfsaldur. í þessum flokkum eru hins vegar 10 karlmenn, þar af einn með lágmarksmenntun og lág- marksstarfsaldur. Þar sem launaflokkaskiptingin kemur ekki nægilega glöggt fram á töflunni, er myndin ekki alger- lega nákvæm. Því skal það tekið fram sérstaklega, að engin kona með miðlungsmenntun er yfir 17. launaflokki, en þar eru 5 karlmenn með hliðstæða menntun. Tvö litil dœmi: Þótt töflur og línurit sýni ástandið betur en orð fá lýst, verða þó dæmi úr daglega lífinu oft áhrifaríkari, og því skulu tvö slík nefnd. í öðru ríkisfyrirtækinu, sem tekið var til at- hugunar, vinna karlmaður og kona mjög hliðstæð störf. Karlmaðurinn hefur lágmarksmenntun, en konan stúdents- próf, háskólapróf og frekara sérnám. Hún er í 16. launa- flokki, hann í 20. Hitt dæmið er á þá leið, að 4—5 þúsund króna launamun- ur er á starfsfólki annars vegar í verzlun, sem selur kven- fatnað, hins vegar verzlun, sem selur fatnað fyrir karlmenn. Störfin eru þau sömu, og því kröfur til menntunar og hæfni væntanlega svipaðar, en einungis karlmenn afgreiða í karl- mannafataverzluninni, og kvenfólk í hinni. Ætla mætti, að talið sé ábyrgðarmeira að máta föt á karlmenn en konur, þótt „veikara kynið“ hafi yfirleitt frekar verið bendlað við hégómaskap og kröfuhörku í sambandi við fatnað. Um þessa könnun verður ekki fjölyrt frekar, en ekki sakar að geta þess, að hún er aðeins byrjunin. Nú í haust ætlar sá starfshópur, sem að henni vann og nefnir sig launarann- sóknahóp, að snúa sér að launajafnréttismálinu af auknum krafti, og í bígerð er, að aðrir starfshópar verði myndaðir til að vinna að svipuðum verkefnum. Launamisrétti er eitt skýrasta dæmið um misrétti kynjanna, og jafnframt það, sem fyrst og fremst þarf að uppræta. Launarannsóknahójmr Rauðsokka. TIL BÆJARSTJÓRNAR KÓPAVOGS Kópavogi, 1. september 1971. Til bæjarstjórnar Kópavogs. Við undirritaðar leyfum okkur að senda yður hér yfirlit um athuganir, sem við gerðum á siðast liðnum vetri, um útivinnu kvenna í bænum og þörf þeirra á gæzlu fyrir börn undir skóla- aldri, þar sem við teljum, að bæjarfélagið eigi að hafa forgöngu urn að leysa úr þessari þörf. Jafnframt munum við senda Fjár- veitinganefnd Alþingis þetta yfirlit, en að okkar dómi ber ríkinu að taka þátt í byggingu dagheimila og leikskóla. Einnig verður nýskipaðri nefnd á vegum rikisstjórnarinnar til athugunar á tekjustofnum sveitarfélaga sent eintak af þessu yfirliti. Starfshópur Rauðsokka i Kópavogi gekkst fyrir skoðanakönnun um barnaheimilismál í bænum dagana 8. 9. og 10. jan. 1971. Fjórðu hverri konu á aldrinum 20 til 50 ára var sendur spurn- ingalisti með 13 spurningum. Voru það 525 konur. Af þeim reyndust 77 vera fluttar eða 14,7%, 16 voru erlendis eða úti á landi, ein lá á sjúkrahúsi og ein var dáin. Þær sem fengu listann í hendur voru því 430. Þar af voru 344 eða 80%, sem fylltu listann út. 86 vildu ekki svara og voru ástæður ýmist viljaleysi, áhuga- leysi, sögðust vera of gamlar, áttu ekki börn, voru ógiftar eða höfðu týnt listanum. Hópnum til aðstoðar við gerð spurninganna og úrvinnslu var Þorbjörn Broddason félagsfræðingur. Fyrst var spurt, hvort konan hefði launað starf utan heimilis, og ef svo var, þá hvort um væri að ræða fullt starf eða hluta úr starfi. Einnig var spurt, hvort tekin væri vinna heim eða unnið úti hluta úr ári. Við úrvinnslu voru konurnar flokkaðar i 3 hópa eftir því hvort þær áttu börn undir 6 ára aldri og e. t. v. eldri, hvort þær áttu börn 7—12 ára, ekki yngri, en e. t. v. eldri, og loks þær sem ekki áttu börn undir 12 ára aldri. í fyrsta hópnum vinna 24 konur fullt starf utan heimilis eða 12%, 33 vinna hluta úr degi úti eða 16%, 10 vinna hluta úr ári úti eða 5%, 15 taka vinnu heim eða 7%. 120 vinna eingöngu heim- ilisstörf eða 60%: (Sjá myndir 1, 2 og 3.) í 2. hópnum vinna 10 konur fullt starf utan heimilis eða 11%, 33 vinna hluta úr degi eða 36%, 9 vinna hluta úr ári úti eða 10%, 2 taka vinnu heim eða 2% og 37 konur vinna eingöngu heimilis- störf eða 41%. í 3. hópnum vinna 18 konur fullt starf utan heimilis eða 38%, 7 konur vinna hluta úr degi eða 15%, 2 konur vinna hluta úr ári eða 4%, 3 taka vinnu heim eða 7% og 17 konur vinna eingöngu heimilisstörf eða 36%. Þá var spurt, hvort börn væru á heimilinu 0 til 6 ára og síðan hvort það eða þau dveldust að staðaldri annars staðar en á heimili sínu og þá hvar. 28% kvennanna vinna úti og eiga börn 26

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.