Samvinnan - 01.10.1971, Qupperneq 35

Samvinnan - 01.10.1971, Qupperneq 35
mönnum tjáning, sköpun og gleðigjafi, væri hún nú orðin böl, erfiði og ábján. Hi5 lífræna samband milli „þess sem skapar“ og „hins sem er skapað“ e: að hverfa meir og meir úr öllu starfi, og í stað þess er komin skynjun framandleik- ans, sú tilfinning að vera með öllu slitinn úr tengslum við þann sköpunarþátt, sem er uppistaða og markmið allrar fram- leiðslu. Þessi hörmung firringarinnar varð að sama skapi örlagaríkari sem vinnudagurinn var lengri og kaupið lægra, en af því leiddi að mönnum var fyrirmunað að létta af sér oki firringar- innar eða bæta sér hana upp utan þræl- dómsins og stritsins. Þar með var líka komið í veg fyrir að verulegu leyti, að auðið mætti verða að breyta firringunni i sérstakt fjarlægðarskyn, en á þeirri lausn hefur mjög verið vakin athygli á síðari árum. Er þá gjarna talað um að breyta „Entfremdung" þeirra Hegels og Marx í „Verfremdung“, sem Bertolt Brecht hefur gert að grundvallaratriði í leiklist sinni. Brecht telur það manninum hið nauðsynlegasta að geta losnað undan René Dcscartes oki þess hversdagsleika, sem umvefur hann. Það verður hins vegar því aðeins gert að manninum takist að verða óháður og sjálfstæður gagnvart umhverfi sínu og aðstæðum. Takist manninum það, verður hann fær um að fella dóma, meta og endurbæta á allt annan og áhrifarik- ari hátt en fyrr. Þar með hefur líka nýr þróunarferill hafizt og skynjun meiri og sannari orðið hlutskipti mannsins. Hvað Brecht raunverulega á við, hefur stund- um verið skýrt með spurningu og svari á þessa leið: „Spurt er: Hver uppgötvaði hafið? Og svarið er: Um það verður ekk- ert fullyrt. En eitt er vist, það voru ekki fiskarnir.“ — Sá, sem meta vill aðstæður sínar og komast að raun um hið sanna varðandi þær, verður að losna undan fargi þeirra, verða frjáls gagnvart þeim og geta séð þær í nýju og framandi ljósi. Það virðist ekki fjarri lagi að fullyrða, að óttinn hafi tekið á sig þrjár mismun- andi myndir í sögu Vesturlanda eða um þrenns konar afbrigði óttans hafi þar verið að ræða. Sá fræðimaður, sem einna ljósast hefur gert þessu skil, er þýzk- bandaríski þjóðfélagsfræðingurinn og guðfræðinguiinn Paul Tillich. Að hans áliti má skipta sögu Vesturlanda í þætti og miða skiptinguna við óttaafbrigðin. Þessi er fullyrðing Tillichs: Ótti fornald- arinnar var fyrst og fremst óttinn við dauðann, og er það óttaafbrigði á marg- an hátt náttúrlegast og eðlilegast. Það er ótti, sem tengist lífinu í upprunalegastri og eiginlegastri mynd, óttinn við að glata þeim fjársjóði sem lífið er. Á miðöldum kom á Vesturlöndum fram önnur tegund ótta. Sá ótti beindist ekki að líkamsdauð- anum og þannig að jarðlífinu öðru frem- ur. Ótti miðaldanna á Vesturlöndum var óttinn við fordæminguna, eilifa útskúfun úr sæluvist himnanna eftir að jarðlifinu lyki og reyndar líka meðan á því stóð. Hér var í raun og veru um missi og glötun annars konar lífs að ræða, hins eilífa lífs eða guðsríkisins, eins og guðspjöll Nýja testamentisins kalla það. Enda þótt ann- að afbrigði óttans bættist Vesturlandabú- um á miðöldum, hvarf hið fyrra að sjálf- sögðu ekki; aðeins hafði óttahugmyndin orðið blæbrigðarikari. Þriðja blæbrigði óttans hefur svo Vesturlandabúum bætzt á allra síðustu áratugum og orðið því að- sópsmeira sem timinn hefur lengur liðið. Hið síðasta blæbrigði óttans er óttinn við tómið eða tilgangsleysið. Sá ótti er reynd- ar af líkum toga spunninn og ótti for- dæmingarinnar. Það er óttinn við að geta ekki fundið lifi sinu inntak, markmið, eitthvað sem fyllir og veitir fullnægingu. Þetta þriðja blæbrigði óttans hefur einn- ig margt sameiginlegt með fyrirbæri firr- ingarinnar, sem áður hefur verið vikið að, og er það reyndar harla augljóst. Ótt- inn við tóm og tilgangsleysi annars vegar og skynjun firringarinnar (Entfremdung) hins vegar eru tvær greinar á sama meiði, benda til hinnar sömu vöntunar og hins sama skorts, skorts á raunverulegri, pers- ónulegri snertingu við samferðafólk sitt og umhverfi. En einmitt sú staðreynd verður til að sýna sambandið á milli hugsanlegrar breytingar á þessu ömur- lega hlutskipti Vesturlandabúa og félags- og menningarhlutverki samvinnuhug- sjónarinnar og samvinnuhreyfingarinnar. Eins og áður hefur verið greint frá hef- ur samvinnuhreyfingin sem og aðrar al- þýðuhreyfingar lagt sérstaka áherzlu á gildi persónuleikans, mikilvægi þess að sérhver maður skynji sig að jöfnu sem félagsveru, í heildinni eða hópnum, og sem einstakling, sérstæða veru, er hefði þá köllun eða kall að leggja fram sinn sérstaka skerf til ávinnings fyrir heildina og til eflingar lífsins. í félagslegu og menningarlegu tilliti er þetta kjarni sam- vinnuhugsjónarinnar og uppistaða sam- vinnuhreyfingarinnar. Að skynja sjálfan sig sem hluta af stórri heild, en vera sér þess um leið meðvitandi að hver ein- staklingur er heildinni mikilvægur, ómissandi vegna þess að hann býr yfir sérstæðri auðlegð hæfileika og hæfni, sem hægt er að virkja til hagsældar og ávinn- ings fyrir alla. Firring samtíðarmanna okkar og okkar sjálfra og óttinn við tómið Sören Kierkegaard Karl Marx Friedrich Ilegel 35
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.