Samvinnan - 01.10.1971, Síða 36

Samvinnan - 01.10.1971, Síða 36
og tilgangsleysið, sem hvarvetna má sjá og skynja, eru i innsta eðli sinu ekkert annað en óræk sönnun þess að hið pers- ónulega og mennska hefur verið bælt og þvi vikið til hliðar að verulegu leyti i þjóðfélögum Vesturlanda. Um næstu aldamót hefur að minni hyggju orðið breyting á þessu. Þar sem vopnabyltingin, sem áður hef- ur verið greint frá, skapar hinar nei- kvæðu forsendur, opinberar þær hættur sem yfir vofa og sýnir dauðann og tor- tíminguna, sem við blasir svo ljóslega og berlega að ekki verður undan vikizt að taka eftir, þá mun mannréttindabyltingin leiða í ljós hinar jákvæðu forsendur og gera kjarna samvinnuhreyfingarinnar að dýrustu og dýrmætustu eign mannkyns- ins. Mannréttindabyltingin, sem væntan- lega hefur náð að festa verulega rætur um næstu aldamót, mun þá þegar hafa mótað hugmyndir alls þorra manna. Þetta mun hafa i för með sér margvísleg- ar breytingar á hugsunarhætti og við- horfum. En allar verða breytingarnar að mínu áliti á þann veg, að hvetja til sam- stöðu, samúðar og samábyrgðar og þann- ig i beinum tengslum við hugsjónastefnu samvinnunnar, sem hefur félags- og menningarþáttinn að meginvettvangi. Á þeirri undirstöðu er siðan hægt að reisa glæsibyggingu hinna margvíslegustu framkvæmda og athafnasemi. En án þeirrar undirstöðu verða allar fram- kvæmdir og athafnir í nafni samvinnu og samábyrgðar holar og hálfar. „Varðar mest til allra orða, að undirstaðan sé réttleg fundin“, eins og segir i Lilju Ey- steins. 3. Mannréttindabyltingin Mannréttindabyltingin mun í veruleg- um atriðum breyta hugsunarhætti jarð- arbúa. Það verður hún sem brúar bilið milli kynslóðanna. Það verður hún sem umskapar samfélög manna, treystir og jafnar stöðu kynjanna, lætur stjórnar- farið laga sig að vilja og viti þegnanna en ekki öfugt, gerir heimilin að nýju að lifandi og lífrænum einingum í hinum stóru heildum ríkja og ríkjasamsteypna. En fyrst og fremst verður það mannrétt- indabyltingin, sem verður þess valdandi að hinn nýi maður, homo novus, kemur fram, maður sem i senn er jarðbundinn og raunsær, hugmyndaríkur og fullur af draumum. Hann verður lifandi ímynd þeirrar hugmyndar, sem sumir fræði- menn hafa gert sér um mannlífið og menninguna. Samkvæmt skilgreiningu þeirra má líkja mannlífinu við blóm- jurtina. Blómjurtin hefur rætur í mold, sem veitir henni í senn öryggi, traust- leika og tryggir henni næringarefni frá jörðunni. En blómjurtin hefur líka skrúð sitt ofar mold, skrúð sem vex frá jörð- unni og í átt til heiðríkju og himins. Það skrúð og sá vöxtur gegnir líka sínu mikil- væga hlutverki, öndun, æxlun, svo og þvi að teyga lif frá uppsprettu birtunnar og ljóssins. Þessi líking, sem sumir mann- fræðingar hafa hagnýtt til að skýra mannlíf og menningu, en aðrir til að út- lista mismun þjóða, kynja eða einstakl- inga, á að minni hyggju vel við um þann alhliða og viðsýna mann, sem verða mun ríkjandi manntegund á jörðu um næstu aldamót. En mannréttindabyltingin og árangur hennar á ekki síður en vopna- byltingin og þær forsendur til breytinga, sem hún mun skapa, sína forsögu og tengist þar einmitt á líkan hátt hugsjón samvinnustefnunnar. 4. Þrjár fræðigreinar — Verufræðin Einmitt um miðja 19. öld, þegar sá hug- myndakjarni, sem samvinnuhreyfingin hefur fram á þennan dag varðveitt og ávaxtað, var að mótast og taka á sig hug- ræna og siðræna mynd, voru þrenns konar fræði i uppsiglingu, sem hvert á sinn hátt hafa haft veruleg áhrif á vest- ræna hugsun og vestræn viðhorf al- mennt. Þessi fræði voru í fyrstu fálmandi og lítt markviss, en hafa færzt því meir í aukana sem lengra hefur komið fram á 20. öldina. Einkenni þeirra allra er víð- feðmi, og má að því leyti segja að þau hafi verið í nokkurri andstöðu við rikj- andi hugsunarhátt bæði 19. og 20. aldar, en ríkjandi hugsunarháttur í flestum fræðum hefur verið einhæfing, sérhæfing með viðeigandi hvatningu um að beina athygli að þrengra sviði og takmarkaðra. Einmitt vegna þessarar sérstöðu hinna þriggja fræðigreina er í rauninni erfitt að velja þeim sérstök og ákveðin heiti. Hitt er aftur á móti augljóst, að hver þeirra um sig hefur sinn vettvang, þótt víðfeðmur sé og þær grípi þess vegna af eðlilegum ástæðum nokkuð hver inn í aðra. En eitt er samt víst. Það er fyrir til- stuðlan þessara þriggja fræða öðru frem- ur, að nú verður vart meiri og minni var- úðar gagnvart skefjalausri sérhæfingu og krafan gerist með hverjum deginum ákafari: Veröldin og mannkynið þarfnast ekki aðeins sérfræðinga, spesíalista; hún og það hefur kannski eins og málum er nú komið ennþá meiri þörf fyrir menn með viðan sjóndeildarhring og stórt skyn- svið, generalista. Hinar þrjár fræðigrein- ar, sem ég hef hér í huga, fjalla um eftir- farandi mennsk og mannræn heildarsvið: verufræði, sálfræði og málvísindi. Ég mun gera hinni fyrstu nokkur skil, en verð að sinni að láta nægja að geta hinna tveggja án frekari túlkunar. Verufræði, ontologia svonefnd, er í raun og veru harla gömul fræðigrein. Grikkir fjölluðu um hana á margvislegan hátt, og mun ekki rakið hér. Hins má þó geta, að þeir litu svo á að veran byggi yfir merki- legri tviskiptingu. Þar væri annars vegar um að ræða „það sem nú þegar er“, „hið verandi“, hó ón, en hins vegar væri svo sá þáttur verunnar, sem ekki er þegar til staðar, „það sem ekki er“. Síðari þáttur- inn væri aftur á móti að því leyti vanda- samari og torskildari, að þar gæti í senn verið um að ræða niðurrif, beina um- turnun á því, sem þegar er til staðar, en niðurrifið kölluðu Grikkir ouk ón. Enn gætu svo verið fyrir hendi möguleikar og forsendur nýrrar sköpunar, viðauki, framhald, lifrænn og sérstæður sköpun- arþáttur, er þeir nefndu me ón. Það af- brigði „þess sem ekki er“ er að sjálfsögðu forvitnilegast og að sama skapi örlaga- ríkast, þar sem það býr yfir sjálfri fram- vindunni og umbreytingunni. Ekki voru verufræðunum gerð sérstök skil á mið- öldum, þótt mjög væri að þeim vikið í kristinni trúarheimspeki. Nýr þáttur verufræðanna hefst með franska heim- spekingnum René Descartes á 17. öld. Descartes gerist formælandi þess af- brigðis tvihyggjunnar, sem einna fyrir- ferðarmest hefur verið á siðari öldum og reyndar allt til þessa dags. Descartes tel- ur einnig að tilveran búi yfir tveim sér- stæðum heildum, en að hans skoðun eru heildirnar efni og andi og undur tilver- unnar i því fólgið að tengja hinar miklu andstæður saman. í tilverunni býr and- inn yfir sérstöðu hugsunarinnar, og sú sérstaða kemur greinilega í ljós hjá mannkyninu. Ég hugsa — þess vegna er ég til, „cogito — ergo sum“, er hin fræga skilgreining Descartes á mennskri tilveru. Það gerist hins vegar á 19. öld, að veru- legrar andstöðu tekur að gæta gegn tví- hyggju Descartes, og kemur sú andstaða úr ýmsum áttum. Annars vegar eru for- mælendur efnishyggjunnar, materialism- ans, sem hafna andanum sem sjálfstæð- um og sérstæðum þætti tilverunnar. Að þeirra áliti er andinn aðeins eitt afbrigði efnisins, merkilegt afbrigði að vísu, en algerlega háð og bundið fjötrum eða lög- málum efnisins. Hins vegar eru svo þeir, sem rísa gegn hinum kyrrstæðu viðhorf- um, er tvihyggjan hafði átt sinn í að móta. Tvíhyggjan hafði í verulegum atr- iðum litið á tilveruna sem statíska, kyrr- stæða, og leiddi sú afstaða til myndunar hinna miklu hugmyndakerfa, þar sem gengið var út frá því að alls staðar mætti finna ákveðin lögmál, en hugmyndakerf- in áttu aðeins að vera hugrænn og áhrifaríkur búningur þeirra. í stað kyrr- stæðra viðhorfa hugmyndakerfanna túlka andmælendur þeirra skapandi og síkvik viðhorf, dýnamísk, en hafna al- gerlega öllum fyrirfram tilbúnum kerfum. Þeir vekja að nýju athygli á sköpunar- þætti tilverunnar, hinum miklu mögu- leikum til nýsmíða og endursköpunar, er hvarvetna blasi við. Mennsk tilvera verð- ur aldrei hneppt í fjötra að þeirra áliti og skiptir þar engu máli, hve fagurt heiti þeim fjötrum verður fengið. Frelsi og sköpun er aðal mannsins, en einmitt í sköpuninni og tjáningunni er maðurinn frjáls, þó því aðeins að hann hagnýti frelsið til að binda sig sjálfviljugur hug- sjónum sínum, vonum sínum, draumum og trú. Á flótta frá verkefnum og vanda er maðurinn ekki frjáls, heldur aðeins ánauðugur heigulskap sínum og hugleysi. Þetta þriðja viðhorf verufræðanna, sem Daninn Kierkegaard gerðist í fyrstu tals- maður fyrir um líkt leyti og samvinnu- hreyfingin var að koma fram sem sjálf- stæð félagsmálahreyfing og menningar- stefna og segja má að beri að mörgu leyti sama hugblæ vitni, hefur færzt verulega í aukana á 20. öld og það alveg sérstak- lega eftir síðari heimsstyrjöld. Má nú með miklum rétti fullyrða, að það sé fyrir- ferðarmesta heimspekistefna samtíðar- innar, sem teygir greinar sínar inn á svið bókmennta, lista og annarra vísinda- greina. í hnotskurn má e. t. v. skýra sér- stöðu þessa afbrigðis verufræðanna með 36

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.