Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 37

Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 37
því að tilfæra þá þreytingu, sem einn af túlkendum hins nýja viðhorfs, rithöfund- urinn og heimspekingurinn Jean-Paul Sartre, gerði á hinni frægu setningu Descartes, sem áður hefur verið tilfærð. í stað þess að fullyrða eins og Descartes: Ég' hugsa — þess vegna er ég til, „cogito — ergo sum“, fullyrðir Sartre: Ég er ekki — þess vegna hugsa ég, „non sum — ergo cogito“. Með þessu á Sartre við eftirfar- andi: Sem maður er ég ekki fyrirfram ákveðin og afmörkuð vera. Ég bý sem maður yfir óteljandi möguleikum, auð- legð hæfileika og getu. Af því stafar vandi minn og hin mikla áhætta lífs míns. Eða eins og Camus, annar rithöf- undurinn frá sem aðhyllist sömu stefnu, fullyrðir: „Maðurinn er eina vera sköp- unarinnar, sem getur neitað að verða það sem hún er.“ Maðurinn er eina veran, sem getur hafnað möguleikum sínum, af- neitað sjálfstæðu og sérstæðu hlutverki sínu, neitað að finna lífi sínu tilgang og skynja maikmið þess. Sú hætta er einmitt fyrir hendi, ef maðurinn lætur undir höfuð leggjast að gera sér grein fyrir þeirri veru, sem hann er bæði hluti af, þátttakandi í og ábyrgur skapari að. í enn fyllra samræmi við sjálfa kviku Albert Camus Jean-Paul Sartre Bertolt Brecht Paul Tillich samvinnuhreyfingarinnar er svo hin merkilega útlistun túlkenda þessa af- brigðis verufræðanna á þeim þrem „heimum“ eða skynsviðum, sem maður- inn lifir og hrærist í. Þar er fyrst um- hverfi mannsins, umheimurinn, „die Urnwelt", sem maðurinn verður að laga sig að, gera sér fulla grein fyrir að þar má hvorki slíta lífkeðju né raska hlut- föllum. Á þeirri virðingu, sem maðurinn ber fyrir umhverfi sínu og þá alveg sér- staklega fyrir þvi undri lífsins í fjöl- breytni og samskiptum sem þar þirtist, byggist framtíð hans sem lifveru á jörðu í tengslum og samstöðu við annað lif. Annar heimur eða annað skynsvið mannsins er svo hin mennska veröld, ver- öld samskiptanna og tillitsseminnar, „die Mitwelt". Sá heimur leggur manninum enn meiri vanda á herðar. Er það að von- um. Þar mótast persónuleiki mannsins, þar veitist sú fylling og fullnæging, sem gerir lifið rismeira og fjölþættara. En þá kemur um leið vandinn að greina milli hugrænnar, persónulegrar skynjunar, og hlutlægrar, ópersónulegrar, vandinn að skynja þann mun sem í því felst að eiga samskipti við aðra menn, en ekki fjall eða mörk. Því miður hefur mörgum svo farið, að þeir hafa ekki kunnað að greina þennan mun, og því hafa tengsl þeirra við aðra menn orðið ópersónuleg. Þá er talað um að „Medúsuaugun“ hafi komið til skjalanna, það augnaráð og þau atlot, sem allt gera að steini í návist sinni, jafnt lifandi sem dautt. Það er á vettvangi þessa annars skynsviðs mannsins, sem samvinnuhugsjónin og samvinnuhreyf- ingin hefur hinu mesta hlutverki að gegna, en einmitt þetta skynsvið verður að því er ég ætla árið 2000 talið hið mikla lykilsvið, sem tengir á sérstæðan hátt hið fyrsta, sem þegar hefur verið getið um, og hið þriðja, sem gerð verða skil í næstu andrá. Lykilsvið hinna persónulegu sam- skipta er grundvöllur tveggja annarra hugmynda, sem mikil áherzla er lögð á í hinu þriðja afbrigði verufræðanna. Þar er fyrst um að ræða þá sérstöðu manns- ins að vera jarðbundinn með íbúandi lög- málum jarðarinnar, vera immanent, en búa jafnframt yfir þrá til umbreytingar, vera aldrei hinn sami, eðlið að jöfnu transcendenz, ummyndun, nýsköpun; maðurinn er alltaf á leiðinni, hann stig- ur yfir allar markalinur. Þar er í öðru lagi um að ræða þá vitund mannsins, að ævi hans streymir fram, hann er háður mældum og afmörkuðum tíma, krónos, en býr að jöfnu yfir hæfileikanum til að skynja og opna hæð og dýpt tímans, nema eilífðina i nútíðinni, fá hlutdeild í eilífum tíma, kairos. — Þriðji heimur eða þriðja skynsvið mannsins er svo víðáttur hins innra hugardjúps, „die Eigenwelt", sá heimur sem er forsenda hins sérstæða þroska hvers einstaks manns, hið mikla forðabúr og uppspretta, sem gerir sér- hvern einstakling að ómetanlegum þátt- takanda í lífsbaráttunni, og tryggir að framlag hvers og eins getur verið meira og stórbrotnara en hægt er að gera sér í hugarlund. Hið innra hugardjúp er vandasamasti vettvangur mannsins, en hlutur þess og hlutdeild i beinum tengsl- um við þátttöku í hinum tveim fyrri skynsviðum, umheimi og veröld mann- legra samskipta. III. NIÐURLAG Um næstu aldamót, árið 2000, hafa samvinnuhreyfingunni á íslandi eins og annars staðar í veröldinni opnazt „víðar dyr og verkmiklar“ eins og komizt er að orði í hinni helgu bók. Það er sannfæring min, að þá hafi hugsjón hennar um manngildi og mikilvægi samstöðunnar og samskiptanna í verulegum atriðum orðið að rikjandi stefnu. Þá verður horfið frá þeirri útilokunarstefnu á flestum sviðum, sem nú er því miður alltof áberandi. Mannanna er ekki að gera jörðina að baráttuvettvangi og meta hæfileika sína eftir því, hve vel þeim hefur tekizt að olnboga sig áfram, hve mörgum þeir hafa skotið aftur fyrir sig, hve marga þeir geta á einn eða annan hátt litið niður á. Mannanna er að gera jörðina að vett- vangi þroska og manndóms, sem er því meiri sem fleiri geta orðið virkir þátttak- endur. Þá verður matið annað og spurt með orðum Einars Benediktssonar: Hvað vannst þú Drottins veröld, til þarja? Þess verðurðu spurður um sólarlag. + 3T
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.