Samvinnan - 01.10.1971, Side 41

Samvinnan - 01.10.1971, Side 41
Ólafur Haukur Símonarson: i. Alltaf eru einhverjir tilað viðra áhyggj- ur um hagi leikhússins. Síðast á dögunum lét hinn stórhuga og venjulega bjartsýni þjóðleikhússtýrimaður Guðlaugur Rósin- kranz þess getið, að hann teldi enga van- þörf á „herferð“ tilað draga fólk í leik- húsin með íllu eða góðu líklega. „Því raunverulega getur fólk ekki verið án leikhússins". Það er mátulega satt. Leik- hús er svo mart. Þó eru hinir íslensku leikhússtýrimenn lukkunnar pamfílar sé tekið mið af kollekum þeirra „á hinum norðurlöndunum". Þeir eru hreinlega móðursjúkir. Leikhússókn á fslandi er hlægilega mikil í % miðaðvið sóknina hjá þeim. Ég las, að 3% dönsku menníngar- þjóðarinnar drattaðist í leikhúsin árlega. Veldur þessi prósentutala árlegum æsíngi hjá þeim sem með peníngavöld fara hjá því „opinbera“. Þykir þeirn með ódæmum hve mörgum krónum leikhúsunum tekst að koma í lóg, en fáum áhorfendum í sal- ina. Hér í Danmörku er fastur árlegur liður í menníngarstappinu svokölluð „teater- krise“. Er þessi krísa sífellt að verða stór- brotnari harmleikur. Síðast þegar „krís- an kvaddi dyra“, þá hótuðu leikhússtýri- mennirnir að loka. En þá átti líka að skera við trog peníngana, eða jafnvel að taka af þeim styrkinn. Það gengur ekki i lýðfrjálsu landi þar sem allir hafa leyfi til alls sem þeim dettur í hug nema að láta sér detta í hug að breyta um lit á útihurðinni í raðhúsinu. Það kynni að stinga í stúf. Bentu leikhússtýrimennirnir af skiljan- legum ástæðum á fjárútlát ríkisins til annars óþarfa. „Tilað réttlæta sig bendir fólið á fífl“. Til dæmis mætti fækka fall- byssufóðrinu, sögðu þeir einsog allir danir sem ekki eru hernaðarsinnar. Siðasta og besta trikkið hjá hinum að- þrengdu leikhússtýrimönnum var auðvita að hóta lokun og þarmeð endalokum glæsilegrar vestrænnar leikhúshefðar. Þá risu uppá afturlappirnar allar þær hundruðir blekiðnaðarmanna sem lifa praktuglega á því að „skrifa um listir, bókmenntir og leikhús“. Þetta fólk er í órjúfanlegu hagsmunasambandi við starfslið leikhúsanna. Hinum skynsömu mönnum sem ekki vilja ausa úr ríkis- aamæBa- LEJKIjáS 3BHK 0Q FYR3R kassanum i rekstur tómra leikhúsa var einfaldlega drekkt í bleki. Endir dramans var samkvæmt hefðinni: Krísunni stúng- ið undir stól og gleymt í bili, því auraum- slögin koma reglulega frá „því opinbera“, sem allir eru alltaf að rexa í nema þegar þeir geta ekki ánþess verið, sem er oft. Þetta er auðvita sárgrætilegt ástand fyr- ir manneskjur „sem aldar eru upp i leik- húsinu“, hafa „helgað þvi lif sitt“ og „lifað þar sínar dýrðlegustu stundir“. Einnig fyrir taugabilaðar kellíngar sem gángast uppí heimilislífi þekktra leikara sem er útpenslað í vikublöðunum. En sem betur fer (og skiljanlega) er til fólk sem tekur mið að krísunni, dregur af henni lærdóm og ályktar. Sumir tala meirasegja um nauðsyn á nýju þróun- arferli. Og einstaka kjaftur gerir eitthvað. Þeir sem „gera eitthvað" eru úngir upptil hópa, óbundnir smáborgaralegu líferni og neyslu og vilja einlægir bifa sér úr fen- inu. Til dæmis um nýjabrumið ætla ég að taka BANDEN. Það er flokkur sem starf- ar á hugmyndalegum, félagslegum og efnahagslegum grundvelli áður óþekktum fyrir leikhússtarfsemi í þessum umræddu löndum. UMRÆÐULEIKHÚS. Nafnið hljómar áreiðanlega bjánalega í eyrum islendínga sem eru uppaldir með þeim sannindum að betra sé að narta í eyru náúngans heldren að tala i þau. Dönum og svium (sem höfðu forgöngu um um- ræðuleikhús) geðjast (annaðhvort vel eða ílla) að umræðuleikhúsinu. Það ryður sér til rúms og sýgur til sin marga hina bestu krafta úr hópi úngra leikara. BANDEN, sem áður var á minnst, hefur vetrarlángt hrist uppí skólamálum dana, aukþess fjallað um hermennsku þjóðar- innar. Bæði skólakerfið (þ. e. a. s. það lifandi fólk sem velkist innan þess) og fallbyssufóðrið hefur ekki komist hjá því að heyra sitthvað sem ekki er vinsælt að flika í þeim herbúðum. Svíar, sem eru „komnir lengra" en danir i þessu sem flestu öðru, hafa heldurbetur orðið varir við umræðuleikhúsin. Hópur sem kallast NJA í höfuðið á NORRBOTTEN JÁRN- VÁRK varð fyrstur til. Leikir þeirra, t. d. Volvo-verkfallið og Leikurinn um Norr- botten, höfðu mikla samfélagslega þýð- íngu. Tilað gefa vísbendíngu um grund- völl leikjanna: Umþaðbil 12% af útflutn- ingsverðmæti svía kemu frá Norrbotten, fyrst og fremst járn. En aðeins 3% þjóð- arinnar búa á framleiðslusvæðinu sem jafnframt á metið i atvinnuleysi yfir landið eða um 25% atvinnulausra svía. Annað dæmi: Slys, þreyta, firríng og launabarátta þess fólks sem starfar hjá Volvo-verksmiðj unum. Þessar sýníngar voru þess megnugar að breyta sinnuleysi og hugmyndunarleti í andstæðu sina. Leikirnir voru grundvall- aðir á félagslegri, efnahagslegri og sál- fræðilegri rannsókn kunnáttufólks í sam- vinnu við hlutaðeigandi iðnverkalýð. Danirnir eru eftilvill ekki jafn vísinda- legir eða róttækir og svíarnir, en vegna- þess ég þekki skár til danskrar starfsemi heldren sænskrar á þessu sviði, þá er eftirfarandi fremur miðaðvið danskar að- stæður. II. Enginn skortur er á gáfufólki sem „hef- ur komið auga á vandann". Það er auð- vita góðra gjalda vert. Svo lángt sem það nær. Ef litið er í skrif þeirra sem breiða sig útum leikhúsið, þá eru þeir sammála um eitt: Mart og mikið amar að og stend- ur leikhúsinu fyrir þrifum. Ýmislegt er tint til, m. a.: Skortur á hæfum leikurum, jafnvel í hefðbundnar sýningar. Skortur á hæfum leikstjórum. Óhentugar leikhúsbyggíngar sem færa allt í stakk úrelts leikmáta og gera sýn- ingarnar óhæfilega dýrar. Aðrir, venjulega þeir róttækari, nefna: Yfirgnæfandi tilboð annarra miðla (sjónvarps, kvikmynda, hljóðvarps og fl.). Einángrun leikhúsfólks bæði sem ein- staklínga á vinnustað og sem starfshóps i þjóðfélaginu; þarafleiðandi stéttarleg og mannleg vönkun. Mótsetnínguna: Þjóðlegt leikhús/ heimsþorpið Jörð (leikhúsið Jörðin). Andagtina í leikhúsunum og yfirleitt andspænis listum og bókmenntum. Algjöra vanrækslu þeirra þátta uppeld- is og innræslu sem gera manneskju kleift að taka miðlun leikhússins. Hér er átt við limlestíngu þá sem framin er á nær öllum eiginleikum barna að undanskild- um minniseiginleikanum. Flestir eru sammála um að leikhúsið 41

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.