Samvinnan - 01.10.1971, Page 52

Samvinnan - 01.10.1971, Page 52
Vainö Linna: í haust kemur út skáldsagan ÓÞEKKTI HERMAÐURINN eftir Váinö Linna, heimsþekkt stríðssaga og bókmenntalegt stórvirki, sem fyrr hefði mátt koma fyrir sjónir íslenzkra lesenda. Sagan greinir frá lífi og dauða eins herfylkis í stríði Finna og Rússa i heimsstyrjöldinni síðari. Sagt er að finnski herinn sé furðulegasti og mótsagnakenndasti her sem nokkru sinni haji marsérað á jörðinni, agalaus að mörk- um uppreisnar i bardagahléum, en ein sál þegar á reyni. Það er grímulaust andlit stríðsins sem Linna sýnir okkur, séð með augum óbreytts hermanns og túlkað með beinskeyttu orðfœri hans. Bókin vakti hat- ramar deilur í Finnlandi á sínum tíma, svo sem títt er um miklar bókmenntir, enda varð Linna annar í röðinni þeirra manna sem hlotið hafa bókmenntaverðlaun Norð- urlandaráðs. Jóhannes Helgi hefur ís- lenzkað bókina, en Skuggsjá í Hafnarfirði gefur út. Samvinnan hefur aflað sér leyfis útgefanda til að birta tvo kafla úr bókinni. Bækistöðvar vélbyssuherdeildarinnar lágu við bugðótta skógargötu. Vopnavið- skipti voru í fullum gangi. Sprengikúlur féllu milli víglínunnar og bækistöðvanna. Lamnio og Sinkhonen voru að taka á móti nýjum mönnum, og skrifarinn skráði nöfn þeirra á nafnalista herdeild- arinnar. Meðal hinna nýkomnu voru átta nýliðar, og skrifarinn, sem hlotið hafði liðþjálfanafnbót, lagði fyrir þá spurning- ar hvellri röddu. Hann hafði tileinkað sér fas Lamnio og nálega öll raddbrigði. Auk ungu mannanna átta voru þrír varaliðsmenn á fimmtugsaldri. Þeir höfðu grafið sér holur til að skýla sér fyrir sprengjubrotum, og i hvert sinn sem jörð- in skalf undan sprengikúlu, hnipruðu þeir sig saman i holunum. Lamnio sló með prikinu í stígvél sín og sagði við Sinkhonen: — Við gerðum bezt i að gera þessa gömlu hérna að kúskum í stað þriggja yngri kúska. Hietanen á að fá fjóra ný- liðanna. Hann hefur orðið fyrir mestu manntjóni. Ég var raunar að fá tilkynn- ingu um að Kariluoto væri kominn aftur, sem þýðir að Koskela tekur aftur við sveit sinni — ekki þó til frambúðar. Hon- um verður fengin stjórn herdeildar í Þriðja herfylki það ég bezt veit. Sarastie vill ekki missa hann, en eins og ástandið er orðið tekst honum tæpast að halda honum. Annars kemur það í ljós von bráðar. Hietanen er fullfær um að stjórna sveitinni. En mennirnir eiga að nærast áður en þeir leggja af stað. — Já, herra kafteinn. Sinkhonen benti á stóran þeldökkan mann sem sat þungbúinn á brún holu sinnar og tuggði strá taugaóstyrkur. En í stað þess að svara horfði maðurinn í hina áttina og tautaði: — Hvað ég heiti? Svo þú veizt það ekki. Hví skyldi drjóli eins og þú yfirleitt vita nokkuð? Lamnio steig nokkur skref í áttina til hans. — Ég vona að þú vitir hvað þú heitir? Stráið var á fleygiferð milli munnvika mannsins. — Það stendur i pappírunum. — Svaraðu skilmerkilega. Hvernig á ritarinn að vita hver bókanna er þín? — Það er sú síðasta auðvitað. Þessi sem er eftir. — Nú segirðu til nafns. Hvað á þessi þrjózka eiginlega að þýða? — Þið ættuð gerst að vita hvað ég heiti. Þið sóttuð mig heim og fluttuð mig hing- að. Lamnio var kominn á fremsta hlunn með að hækka röddina, en mundi þá að honum hafði verið tekinn strangur vari við þvi að æsa mennina upp að óþörfu. Hann stillti sig, en af því að hann mátti ekki beita þeirri aðferð sem honum var eiginleg þá gætti úrræðaleysis í radd- blænum þegar hann spurði: — En þú berð þó nafn, er ekki svo? — Hemm. Korpela heiti ég. Maðurinn slengdi nafninu í andlit Lamnio. — Óbreyttur. Korpela hélt áfram að tyggja stráið, en svo skyrpti hann því gremjulega. Hann talaði ekki við neinn, sat bara afsíðis og starði útí bláinn, og þegar Sinkhonen fór með mennina til eldhússins að útvega þeim mat reis hann treglega á fætur, 52

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.