Samvinnan - 01.10.1971, Page 59

Samvinnan - 01.10.1971, Page 59
Framhald af bls. 9. með því að staðsetja slíkar stofnanir í þéttbýliskjörn- um . . í sömu málsgrein: „. . . Norðmenn og Svíar hafa notað staðsetningu mennta- stofnana sem lið í markvissri byggðastefnu . . og enn: „fyrri áskoranir . . . um stað- setningu Tækniskóla íslands . . .“ (Allar leturbreyt. gerðar hér. G.M.). Svo er fyrir þakkandi, að enn hefur þessi eilífa staðsetning- arþvæla eigi náð að spjalla daglegt mál alþýðu manna, a. m. k. ekki þar sem ég þekki til; hún er að ofan komin eins og raunar fleira, það er til lýta horfir tungunni. Eigi fer það milli mála, að harðmæli er fegurra en lin- mæli. Þó hefur linmælið sótt á. Dr. Jakob Benediktsson, sem sjálfur er harðmæltur, telur, að „þó að ef til vill megi seinka eitthvað útbreiðslu linmælis og halda í varðveizlu eldri fram- burðar á nokkrum staðbundn- um framburðaratriðum“, þá verði sigurgöngu linmælisins ekki snúið við. Mig langar til að vera þarna á öðru máli. Ég held að stöðva mætti útbreiðslu linmælis eða jafnvel útrýma því, ef skólar, útvarp og sjón- varp legðust á eitt. Eða er þetta aðeins óskhyggja? Ég þykist mega fullyrða, að minna beri á linmæli í útvarpinu nú en áð- ur og færri þeir, sem þar koma fram og segja Reygjvíg. Þetta er sannarlega þakkarvert. Lin- mæltir menn mega helzt ekki tala í útvarp eða sjónvarp, hversu ágætir sem annars kunna að vera. — Nú er víst löngu mál að linni. Hefði þó verið gaman að drepa á sitthvað fleira, svo sem fátæklegt orðafar sumra þess- ara svokölluðu barnabóka, sem Hallfreður Örn telur — og vafalaust með réttu — að háska geti valdið. En það er ef til vill synd að eyða vönduðum pappír undir svona langloku- ITT FRYSTIKISTUR Ekki ódýrastar — aftur á móti leyna gæðin sér ekki! AFBORGANIR VIÐ HVERS MANNS HÆFI VERZLUNIN PFAFF SKÓLAVÖRÐUSTÍG SÍMI 13725 NÝR FISKIKASSI gerður eftir margra ára rannsóknir og upplýsingum frá fjölda aðila er við fisk- veiðar og fiskvinnslu starfa, um stærð og lögun. Staflast saman tómir, spara rými og gefa nægjanlegt vinnupláss. Standa mjög stöðugir eftir að sett hefir verið í þá. Staflast eftir lögun bátsins og nýta full- komlega lestarrými. B. SIGURÐSSON SF. Höfðatúni 2, sími 22716 59

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.