Samvinnan - 01.10.1971, Side 66
hafði við hirð sína hagort hirð-
fífl. Franskur aðalsmaður hót-
aði að berja fíflið til óbóta fyr-
ir nokkrar háðvísur sem það
hafði ort um hann. Hirðfíflið
flýtti sér til konungs og kvart-
aði undan hótuninni, en kóng-
ur róaði hann strax:
— Vertu óhræddur. Ef hann
drepur þig, læt ég hengja hann
stundarfjórðungi síðar.
— Æ, yðar hátign, sagði
hirðfíflið órólegt, gætuð þér
ekki heldur látið hengja hann
stundarfjórðungi áður?
Hinrik IV (1553—1610),
konungur Frakklands frá 1589,
var á veiðum seinni hluta dags
og varð viðskila við fylgdarlið
sitt í garðinum við Fontaine-
bleau. Eftir að hann hafði riðið
stundarkorn varð á vegi hans
náungi sem virtist vera sveita-
maður. Kóngur spurði hvort
hann væri að bíða eftir ein-
hverjum, en maðurinn svaraði,
að þareð hann hefði haft
spurnir af því að konungurinn
ætlaði á veiðar þennan dag,
hefði hann lagt niður vinnu ef
ske kynni að hann fengi að sjá
konunginn sem snöggvast.
— Seztu á bak fyrir aftan
mig, sagði Hinrik, og svo skal
ég fara með þig þangað sem
konungurinn er. Þú átt að geta
þekkt hann á því, að hann er
sá eini sem ekki tekur ofan
höfuðfatið.
Maðurinn steig á bak hestin-
um og þeir riðu af stað. Innan
stundar fundu þeir hið kon-
unglega fylgdarlið. Jafnskjótt
og Hinrik birtist tóku allir við-
staddir ofan.
— Jæja, þá geturðu séð hvar
konungurinn er, hrópaði Hin-
rik.
— Eftir því sem ég fæ bezt
séð, svaraði hinn hugaði gest-
ur, hlýtur það að vera annað-
hvort þér eða ég, því við erum
þeir einu sem ekki hafa tekið
ofan.
Áður
hörðum
höndum -
með
atrix
mfúkum
höndum
HÚSGÖGN
HÚSGÖGN
Gera
ród fyrir
yðar eigin smekk
HUSGOGN
Varía húsgögn eru einstök að gæðum.
Hægt er að velja um 16 mismunandi Varía
einingar, sem gefa margvíslega möguleika
í uppsetningu. Varía húsgögn fást bæði í
Ijósum og dökkum viðartegundum.
HIÍSGAGNAVERZLUN
. - KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
HUSGOGN Laugavcgi 13, Reykjavík
66