Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Page 2

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Page 2
150 fjelágsheildin við að uppörva þá og aðstoða á allar lundir, með lagasmíðum og fjárframlögum. Verndartollar eru víða látnir ýta undir innanlandsframleiðslunni, verð- launum útbýtt fyrir aðra framleiðslu; einkaleyfi gefin íyrir nýjum uppgötvunum og endurbótum; ákaflega miklu af ríkisfje varið til að launa ýmsum erindisrekum og eptirlitsmönnum; stærri og smærri sýningar, tilrauna- stofnanir og rannsóknarstofnanir eru ríflega styrktar og s. frv. Að verða fremstur með varning sinn, er markið sem allt þetta stefnir að. Vakandi og óþreytandi ástundun er lögð á það, að komast eptir því, hvernig kaupendur vilji helzt hafa vöruna, og síðan er leitast við að laga hana eptir því, svo sem framast má verða. Sje einhver vara, frá annari þjóð, í almennu áliti, er óðara reynt að komast eptir því, hvað hún hefir mest sjer til ágætis og hvernig hún sje framleidd. Að þessu fengnu byrjar svo tafarlaust kapphlaup um það, að komast eins langt og helzt svo lítið lengra, ofurlítið fram fyrir, til þess að geta látið sína vöru verða fyrsta »númer á mark- aðnum. í þessu kapphlaupi verða allar menningarþjóðir að taka þátt — nauðugar, viljugar. — Að vísu nær þetta kapphlaup allra mest til allskonar iðnaðarvarnings, en þó jafnframt ákaflega mikið til þeirra vörutegunda, sem seldar eru óunnar eða lítið unnar og kappið og kröf- urnar fara þar einnig vaxandi. Flestir munu kannast við kappið meðal Breta og Þjóðverja um tilbúning á ýnisum iðnaðarvörum. Bretar hafa lengi verið taldir fremstir allra þjóða í þeim greinum, og hafa haft víðáttumestan mark- að í hinum mörgu og þroskamiklu nýlendum ríkisins og víðs vegar annarstaðar. Nú skáka Þjóðverjar þeim með ýmsan iðnaðarvarning; Ameríkumenn sækja fast fram á vígvöllinn og jafnvel Austurálfuþjóðir: Kínvérjar og Japansmenn, leggja drjúguni orð í belg. Danskir bændur eiga uppgang sinn mikið því að þakka, á seinni

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.