Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Síða 6
154
vörur vorar eru boðnar til sölu, sem athugi vandlega allt
sem þar að lýtur og geri því næst, nægilega opt, skýra
og Ijósa grein fyrir árangrinum af störfum sínum. Þetta
þarf svo að auglýsa í hverju því hreysi þar sem vara er
framleidd til útflutnings. Allan kostnað, sem af þessu
leiðir, á að greiða af sameign landsmanna: landssjóðnum.
F*að er engum efa bundið að þetta væri mesti búhnykk-
ur fyrir landssjóð, sem margborgaði sig með auknum
tekjum, innan lítils tíma. A þessu er nú byrjun gerð með
fjárveitingu síðasta alþingis og er vonandi að þar reynist
»mjór mikils vísir«, þó erindisbrjef erindisrekö«/7ö (?) sje
eigi almenningi kunnugt. Jafnhliða þessari tilraun og með-
an erindisrekafyrirkomulagið er eigi komið í fast og full-
komið horf, eptir ráðstöfun þings og stjórnar, ætti það
eigi að vera ofvaxið sameinuðum kröptum samvinnufje-
laganna hjer á landi, að senda við og við menn til út-
landa, til að líta eptir vörusölunni og kynna sjer það,
hvað helzt er í vegi fyrir áliti og góðu verði á vörum
fjelaganna. »Sjálfs er höndin hollust.« Pað er ólíklegt að
það fyrirkomulag sje einhlýtt, sem nú mun þó víðast lát-
ið duga, að sjá allt með augum umboðsmannanna. Pegar
þeir svara fyrirspurnum fjelaganna um íslenzkar vörur,
eru upplýsingar þeirra vanalega af skornum skammti. Og
víst er það, að svona fyrirkomulag myndi engin þjóð,
nema íslendingar, láta sjer lynda árinu lengur.
í þessu efni mætti benda á Rjómabúasamband Suður-
lands og Sambandskaupfjelag íslands. Pað yrði eigi þung-
ur skattur á öll rjómabú landsins þó þau kostuðu, sam-
eiginlega, einn mann til utanfarar svo sem þriðja hvert
ár til þess að kynna sjer smjörframleiðsluna í Danmörku
og markað smjörsins á Englandi; vel hæfan mann, sem
fylgdi öllu því eptir, sem að þessu lýtur, frá stigi til
stigs, frá uppeldi og meðferð mjólkurgripanna allt til þess
að smjörið er kornið á borð neytendanna. Eptir framleiðslu
búanna síðastliðið ár, sem allar horfur eru á að fari vax-
andi eptirleiðis, myndi nægja að þau legðu árlega um ’/io