Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Side 16

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Side 16
164 um það hvað til vöruvöndunar útheimtist, að því leyti sem einstakar vörutegundir snertir. Petta getur samt eigi orðið að nokkuru verulegu ráði, nema með aðstoð sjer- fróðra manna og þá jafnframt með því, að tímaritinu sje skýrt frá þeim tilraunum, sem gerðar kunna að verða í þessu máli, hjer og þar á landinu. Slíkan stuðning vantar tímaritið enn, eins og í fleiri greinum, hvernig sem síðar kann úr að rætast. . Að svo komnu máli verður tímaritið að láta við það lenda, að mestu leyti, að benda á það, hversu allar landvörur vorar, nema ef til vill æðardúnn, eru meira og minna vanhirtar, og líta lakar út á erlendum mark- aði en vera þarf. Langmestar leiðbeiningar og opinberan stuðning hefir smjörgerð landsmanna fengið, og mun þó talsvert á bresta að þar sje allt í góðu lagi, að minnsta kosti á rjómabúunum á Norðurlandi. Aðalmarkaðurinn fyrir út- flutt smjör, hjeðan, er á Englandi, og erum vjer því í mjög mikilli fjarlægð við hann, en hins vegar svo afar- áríðandi að koma smjörinu þangað sem allra ferskustn. Þetta hefir verið mjög örðugt, af því skipagöngurnar hafa verið svo fáar og auk þess að öllu leyti illa lag- aðar fyrir smjörflutning frá rjómabúunum norðanlands. Aðalgallinn á smjörinu þaðan hefir verið talinn sá: að það tapaði svo fljótt nýjabragðinu og geymdist illa. þetta er vafalaust að miklu leyti því að kenna, hvað smjörið verður að bíða langan tíma, opt margar vikur, og jafn- vel flækjast á milli skipa, en hitt er einnig víst að geymsl- an hjer heima og útbúnaður er ekki í æskilegu lagi. Smjörið frá Norðurlandi hefir stundum komið stórgallað á markaðinn. Það hefir þurft áð slá smjördunkana sund- ur og skafa myglu utan af smjörinu. Það liggur í aug- um uppi, hve þetta spillir smjörverðinu, það er nýr kostn- aður, smjörið ljettist, og leifunum er ekki liægt að halda frarn sem góðri vöru. Nú er útlit fyrir að flutningstæki batni til muna á

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.