Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Side 19

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Side 19
16 7 þolgæðisleysið til sögunnar, svo vjer gætum eigi þess, að brautin nær lengra, miklu lengra en augað eygir, og að það fara margir menn eptir henni, á hraðri göngu fram undan oss. það viðurkenna flestir að með stofnun rjómabúanna og endurbættri smjörgerð hafi verið stigið framfaraspor í íslenzkum landbúnaði. Nú veltur á því, hversu þetta gefst til frambúðar, en það er aptur mest komið undir þolgæði voru og vandvirkni vorri. Um tíma voru horf- urnar ekki sem. álitlegastar (einkum á Norðurlandi), nú eru þær að batna aptur; smjörframleiðslan hefir vaxið og smjörverðið hækkað, síðustu tvö árin; næsta sumar verða skipagöngur miklu hentugri, og hefir það mikla þýðingu. í ár er líklegt að útflutt rjómabúasmjör verði um 300 þús. pund (árið 1907 útflutt 240 þús.). Ef endurbætt smjörverkun gæti hækkað pundsverðið á út- fluttu smjöri um 5—10 aura, næmi það 15—30 þús. kr. Þessi litli herzlumunur hlyti að hafa mikla þýðingu og, að öllum líkindum, hafa það í för með sjer: að þeim rjómabúum sem nú starfa væri vel borgið, ný rjómabú risu á fót og smjörframleiðsla landsins færi stórum vax- andi, án þess af því, út af fyrir sig, þyrfti að leiða verð- fall á útlendum markaði. Að fáum árum liðnum ættum vjer, með þessu móti, að geta fengið mil. kr. fyrir útflutt smjör. Það er laglegur skildingur fyrir vöru, sem varla var teljandi sem útflutningsvara fyrir stuttum tíma síðan. Rjúpur mega teljast sjerstaklega íslenzk vörutegund. I sumum árum munar talsvert um þessa vöru. Pað er t. d. eigi svo fátítt á sumum heimilum í Ringeyjarsýslu að skotnar sjeu 200 — 800 rjúpur á ári sem fluttar eru til útlanda. Árið 1905 voru rúmlega 23 þús. rjúpur flutt- ar til annara landa frá Húsavík. Skemmdirnar sem koma í ljós á þessari vöru, þegar farið er að selja hana í útlöndum, eru líklega meiri en á nokkurri annari íslenzkri vörutegund. Eru svo mikil 12*

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.