Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Síða 21
160
1. Rjúpurnar þarf að friða lengur en nú á sjer stað, að
minnsta kosti mánuði lengur að haustinu til, eða fram
i miðjan Október. Rjúpum er áreiðanlega að fækka
og er því frekar ástæða til þess að koma í veg fyrir
gagnslausa drápgirni á þeim tíma þegar rjúpan getur
naumast verið verzlunarvara, en hins vegar eru nóg
önnur störf fyrir hendi við haustannir bænda. Meðan
maðktíminn stendur yfir er líka varla unnt að varð-
veita rjúpuna óskemmda. Ró skotmaður að eins leggi
rjúpuna frá sjer, litla stund, geta flugur komið lirfum
sínum fyrir, án þess að sje gætt, og úr því er rjúp-
an ónýt vara.
2. Rjúpur sem finnast dauðar á víðavangi ætti aldrei að
hirða til útflutnings, ^ar má hvað helzt búast við að
skemmdir komi fram.
3. Rjúpurnar ættu aldrei að verða gamlar frá því skotnar
eru til þess þær eru látnar niður, helzt eigi eldri en
vikugamlar.
4. Mjög blóðugar rjúpur, eða þær, sem eru með stór-
um holsárum, ætti aldrei að taka til útflutnings.
5. Kassarnir utan um rjúpurnar ættu ekki að vera stórir,
láta helzt eigi yfir 50 rjúpur f kassa, en minna í suma,
eptir atvikum. Hver rjúpnaeigandi sje einn um kassa
og enginn þar í fjelagi. Móttókumaður rjúpnanna
merkir alla kassana, við sömu verzlun, með framhald-
andi raðtölum; hann ritar raðtöluna og rjúpnatöluna
í bók, út frá nafni eigandans. Við útsöluna eru rað-
tölur þeirra kassa skrifaðar upp, sem geyma skemmdar
rjúpur og tölurnar sendar móttökumanninum hjer á
landi. Pá er auðvelt að finna eigandann og láta hann
bera skaðann, eins og á að vera. Retta er sama regla
og sumstaðar er höfð, með smjörsendingar innanlands
og borið hefir góðan árangur. Danir fara og líkt að
með eggjaútbúnað sinn til Englands og telja þessa
reglu hafa leitt til mestu umbóta í vöruvönduninni.
Ró eigi sje um stórvægilega vörugrein að ræða, þar