Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Síða 45

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Síða 45
Af Samvitmufjelagsskap landsmanna er fátt nýtt eða markvert að segja. Af því næstum öll kaupfjelög lands- ins hafa sáralítið veltufje, af eigin efnum, áttu mörg þeirra f mestu herkjum með það, að geta fengið starfs- fje til nauðsynlegustu athafna sinna. Bankar landsins áttu óhægt með að veita fjelögunum mikil lán og munu naumast heldur hafa talið það áhættulaust, eptir nýaf- staðin óþægileg dæmi í þá átt. í útlöndum var eigi held- ur auðgengið að því að fá lán, bæði vegna peninga- kreppunnar þar, og jafnframt sökum þess að traustið á skilsemi íslendinga var orðið af skornum skamti, eins og við mátti búast eptir því, sem á undan var gengið. Þrátt fyrir þetta gátu samt flest fjelögin útvegað nauð- synlegustu vörur handa fjelagsmönnum og það jafnvel þar, sem aðsókn manna fór vaxandi, sem víða mun hafa átt sjer stað, af því margir kaupmenn voru óbirgir að vörum og sumir fengu alls ekki nýjar vörur. Af því kaupfjelögin fóru víst með varlegra móti í vörukaup, en lögðu fram gjaldeyrir, í meira lagi er enginn vafi á því að þau standa nú i talsvert minni skuldum en við síð- ustu áramót. Það hefir því ræzt vonum betur úr fyrir kaupfjelögunum á þessu ári og traustið á þeim, bæði ■nn á við og út á við, mun fremur hafa farið vaxandi, þar sem viðskiptamunurinn hjá þeim og kaupmönnum hefir verið með meira móti. Kaupmenn fóru gætilegar en áður í samkeppninni, gagnvart fjelögunum, enda munu flestir þeirra hafa þurft þess, vegna fjárhags síns; það ber því minna en áður á teygingum og kapphlaupi frá þeirra hálfu. Rjómabúunum hefir flestum farið vel að stofni, þ. á. Framleiðslan hefir verið með mesta móti og smjörverðið gott. Jafnvel á Norðurlandi, þar sem horfði fremur óvæn- lega við með rjómabúin, fyrir tveim árum síðan, hefir útlitið mikið batnað frá þeim tíma, og með viðlíka fram- haldi eru þau viss með að koma að tilætluðum notum. Það hefir stórlega aukið vinsældir rjómabúanna að menn

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.