Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Qupperneq 48
Pistlar
eptir Jón Jónsson, Gauta.
I.
Fyrir tveim árum, er eg var staddur í Kaupmannahöfn,
hjelt einn af merkari þingmönnum Dana ræðu í þinginu,
sem vakti allmikla eptirtekt, sjerstaklega meðal kaupfje-
lagsmanna. Hann hafði áður verið talinn fremur and-
vígur kaupfjelögunum. Hann hjelt því fram, að smásal-
arnir væru að setja bæinn (Kaupmannahöfn) á höfuðið.
Hann gæti aldrei risið undir því að ala 12,000 smákaup-
menn. Þetta eyðslunnar og munaðarins höfuðbói, þessi
Babylon Norðurlanda gœti ekki þetta borið. Allt annað
væri hjegómi einn, hjá þessari vanspilun efnanna. þetta
var að minnsta kosti efni ræðunnar.
Eg skrifaði, fyrir nokkurum árum, grein í »Norðra&
um verzlunina, sjerstaklega miðað við F’ingeyjarsýslu.
Sýndi að nokkuru hvernig henni væri komið, hver um-
setningin væri og í hverra höndum.
F*á voru, í F’ingeyjarsýslunum báðum, og eru enn, þrjú
kaupfjelög og ein útlend verzlun, sem höfðu þá verzl-
unarmagnið í höndum sjer. En innlendu kaupmennirnir
voru þá 15 eða 16, að mig minnir, og voru þá að þjóta
upp.
Eg leitaðist við að sýna fram á, að þessi verzlunar-
keppni, þessi fýsn í að gera verzlun að atvinnuvegi sín-
um og gróðavegi hlyti að hafa illan enda. Verzlunin í
F'ingeyjarsýslu gæti eigi fætt svona marga verzlara, auk