Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Page 53

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Page 53
Frá útlöndum. I. Almennar horfur. Eins og í flestum öðrum starfsgreinum, hefir undan- gengin verzlunardeyfð og peningadýrtíð verið til mikilla óþæginda fyrir samvinnufjelagsskapinn í útlöndum, eink- um á Norðurlöndum, þar sem einna mest hefir kveðið að þessum viðskiptaannmörkum. Afleiðingarnar hafa þó eigi orðið lakari en það, að árságóði fjelaganna síðast- liðið ár (1908) var víðast hvar með minna móti. Utbreiðsla og viðskiptavelta kaupfjelaganna hefir aukizt líkt og áður. Þetta á einnig heima í Danmörku, þar sem peningaþröng- in var einna mest, og jafnhliða því var hafin, þar í landi, megnasti andróður gegn fjelögunum og beinar árásir, af hálfu kaupmannastjettarinnar, sem illa getur unað því að láta smávinna landið undan sjer. Það mýkir heldur eigi hug kaupmannanna dönsku, þegar þeir verða þess varir, að óvinirnir eru komnir inn fyrir garðinn: inn f sjálfa höfuðborgina. í Höfn ráðgerir, nefnilega, sambandsstjórn verkmannafjelaganna að koma á fót öflugu kaupfjelagi meðal fjelagsmanna, sem eru um 53 þús. -Það átti að nota Albertshneykslið og ýmislegt t'leira sem vopn á kaupíjelagsskapinn, en tilgangurinn náðist ekki. Fjelögin gátu fyllilega hreinsað sig af áaustri mótstöðumannanna, i öllum greinum, og standa nú á fastari fótum en áður. Það er annars engin furða þó dönskum kaupmönnum svíði í lófana við það, að alltaí er dregiö meir og meir

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.